Stjarnan - 01.06.1945, Page 7
STJARNAN
47
“Eg er ekki viss um það. Hvernig byrjar
það?”
Litla stúlkan söng fyrstu hendinguna.
“Þetta er ljómandi fallegt, lofaðu mér að
heyra það alt,” bað læknirinn.
Litla stúlkan söng meðan læknirinn var
að sauma saman sárið. Einu tárin sem
runnu voru frá augum móðurinnar.
Sagt er að það dragi úr sársauka ef
maður á einhvern hátt lætur í ljósi til-
finningar sínar. Grátur og andvörp hryggja
vini vora, svo það væri miklu betra fyrir
oss að syngja. Jesús hjálpar börnum sín-
um að syngja þrátt fyrir reynslu og þján-
ingar.
O. L. F.
Vakið og biðjið
“Óttist Guð og gefið honum dýrð, því
tími hans dóms er kominn, tilbiðjið hann,
sem gjört hefir himininn, jörðina, hafið og
uppsprettur vatnanna.”
Bráðum verðum vér allir að mæta fyrir
Krists dómstóli, þá mun hverjum einum
verða endurgoldið eftir því sem hans verk
verða.” Þegar menn mæta fyrir jarðnesk-
um dómstóli þá er dómurinn uppkveðinn
samkvæmt lögum landsins. Fyrir dómstóli
Drottins verðum vér dæmdir eftir hinu
óumbreytanlega lögmáli Guðs, tíu boðorð-
unum, sem ná yfir alla breytni vora bæði
gagnvart Guði og meðbræðrum vorum.
Foreldrar, prestar, sunnudagaskólakenn-
arar, þér, sem eigið að kenna öðrum krist-
indóminn, bendið þér þeim á að Jesús kom
til að frelsa sitt fólk frá þess syndum, frá
yfirtroðslu Guðs boðorða. Minnið þér fólk-
ið á, að sá sem brýtur eitt af Guðs boðorð-
um, verður sekur við þau öll (Jak. 2:10),
og að laun syndarinnar er dauði.”
Eða fyllið þér flokk þeirra, sem Guð tal-
ar um og segir að þeir “hafa brjálað lög-
máli mínu og vanhelgað helgidóma mína,
þeir hafa engan mun gjört á því sem er
heilagt og óheilagt, og eigi frætt menn um
muninn á óhreinu og hreinu, og þeir hafa
lokað augum sínum fyrir hvíldardögum
mínum, svo eg vanhelgaðist meðal þeirra.”
Ez. 22:26.
Ef menn vildu rannsaka spádóma Biblí-
unnar og bera þá saman við mannkynssög-
una þá mundu þeir geta skilið að vér lif-
um á síðasta tímabili þessa heims, og' þeir
fáu spádómar sem ennþá ekki eru upp-
fyltir geta komið fram á svo örstuttum
tíma, “því að Drottinn mun gjöra upp
reikning sinn á jörðunni, binda enda á
hann og ljúka við hann í skyndi.” Róm.
9:28.
Einn af þeim spádómum sem enn eru
ekki framkomnir er um sjö síðustu plág-
urnar, þær eru ennþá ekki fallnar. En það
alvarlegasta við þær er, að þá verður
náðartíminn á enda og þær falla aðeins
á þá, sem hafa merki dýrsins eða tilbiðja
þess líkneski. Op. 16:2.
Ó, að bæði lærðir og leikmenn vildu í
auðmýkt og einlægni rannsaka Guðs orð
með bæn um gjöf heilags Anda til að leiða
þá í allan sannleika. En um leið verða þeir
líka að vera fúsir til að meðtaka það ljós,
sem Guð gefur þeim, þó það kosti að slíta
sig lausan frá heiminum eða gömlum sið-
venjum, sem slæðst hafa inn í kristnina
án þess að hafa nokkra undirstöðu í Guðs
orði. “Sælir eru þeir sem heyra Guðs orð
og varðveita það.”
Sumir kvarta undan að það sé ekki hægt
að sklija Ritninguna. En ert þú fús til að
hlýða því sem Guð býður þér svo skýrt
og skiljanlega í orði sínu? Guð gefur
sinn heilaga anda þeim sem hlýðnast hon-
um. Post. 5: 32. Þeir sem ekki vilja hlýða
Guði, loka sjálfa sig úti frá ljósi og leið-
beiningu Guðs heilaga orðs og anda. Guð
forði oss frá slíku.
S. Johnson.
Hvernig mundir bú nota
tímann
Kona nokkur spurði John Wesley einu
sinni: Setjum svo þú vissir þú mundir
deyja um miðnætti annað kvöld, hvernig
mundir þú þá verja tímanum þangað til?
“Alveg eins og eg hefi þegar ásett mér
að nota hann”, svaraði Wesley. “í kvöld
prédika eg í Gloucester, og aftur klukkan
5 í fyrramálið. Svo verð eg að keyra til
Tewksbury og prédika þar um eftirmið-
daginn og mæta sóknarnefndinni að kvöld-
inu, svo fer eg heim til Martins vinar míns,