Stjarnan - 01.07.1946, Qupperneq 5

Stjarnan - 01.07.1946, Qupperneq 5
STJARNAN 53 að gjörast. Hann benti á þá tíma, er hann mun ikoma sem dómari himins og jarðar, sitjandi í hásæti föður síns, og hans dómi verður ekki skotið til æðra dóms. Hann benti á þann dag, þegar hann, í stað þess að vera umkringdur af illmenn- um, er hæddu hann og svívirtu, kemur í skýjum himins með veldi og mikilli dýrð. Þegar hann kemur með mikinn fjölda heilagra engla með sér. Þegar hann verður dómari yfir óvinum sínum, meðal hverra munu verða margir þeirra, er í þetta sinn ákærðu hann. Þá er Jesús mælti þessi orð, og játaði hann væri guðs sonur og dómari heimsins; reif æðsti presturinn klæði sín sem merki þess, hve honum fyndist þetta óttalegt svar. Hann hóf upp hendur sínar og mælti: “Hann hefir lastmælt! Hvað þurfum vér framar vitnanna við? Sjá, nú hafið þér heyrt lastmælið. Hvað líst yður?” En þeir svöruðu og sögðu: “Hann er dauða sekur.” (Matt. 26: 65, 66). Það var móti lögum Gyðinga að yfir- heyra fanga að nóttu til, og þrátt fyrir það, þótt dómurinn yfir Kristi væri nú ákveð- inn, varð hann þó að yfirheyrast á lög- legan hátt að deginum. Síðan var farið með Jesúm í fanga- húsið, og þar varð hann fyrir háði og allskonar misþyrmingu af hermönnum og skrílnum. Snemma næsta morgun, var aftur farið með hann fram fyrir dómara hans, og hinn smánarlegi dauðadómur var kveðinn upp yfir honum. Þá varð fólkið gripið af djöfullegu æði, og hljóð þess urðu sem öskur villidýranna, það stökk móti Jesú og hrópaði: “Hann er sekur! Drepið hann!” Og svo óður var þessi morðingjaskari, að hann hefði þegar ráðist á hann og svift hann lífinu hefði ekki hin rómversku yfir- völd tekið í taumana og með vopnum og valdi haldið lýðnum í skefjum. Prestarnir, foringjar fólksins og fjöldi óguðlegra manna tóku nú þátt í því að hæða frelsarann. Þeir fleygðu yfir hann gamalli skikkju, slóu hann í andlitið og sögðu: “Spáðu fyrir oss, Kristur, hver var það, sem sló þig?” (Matt 26: 68). Þegar skikkjan var tekin af honum, hræktu þeir í andlit honum. Englar guðs skrifuðu upp allar mis- gjörðir við hinn elskaða höfðingja þeirra, hvort sem þær voru drýgðar með hugs- unum, orðum eða gjörðum. Sá dagur mun koma, þá er þessir aumu menn, sem hæddu frelsarann og hræktu í hið rólega, föla andlit hans, skulu fá að sjá það í dýrðinni, þegar það ljómar skærara en sólin. Skínandi framtíð “Hræðstu ekki, eg em hinn fyrsti og síðasti, og sá lifandi, eg dó, en sjá, eg lifi um aldir alda og hefi lykla dauðans og undirheima.” Op. 1: 18. Texti vor er einn hinna mest áríðandi í Biblíunni. í honum er þreföld hug- 'hreysting fyrir oss er vér horfum fram á ókomna tímann. Ver þú óhrœddur að lifa. “Eg lifi um aldir alda.” Hræðsla liggur í eðli manns- ins honum til varnar. En menn og konur leyfa hræðslunni stundum að ná valdi yfir sér, þegar einhverjum erfiðleikum lífsins er að mæta. Hann hræðist þegar sorg og mótlæti steðja að honum. Hann vildi miklu heldur ótruflaður mega halda áfram að safna fé, skemta sér, eða lifa í synd, heldur en vera heimsóktur af sorg og erfiðleikum. Þegar alt gengur vel er hann hraustur og hugrakkur, en í mót- læti bilar traust og kjarkur. Þá er það sem hann þarf að minnast orða Drottins er hann segir: “óttast ekki.” “Sjá eg lifi um aldir alda,” og “Eg skal ekki sleppa þér né yfirgefa þig.” Margir eru líka óttafullir þegar þeir líta fram á lífið og sjá ekkert fram Undan sér nema tilbreytingarlaust strit og erfiði. Það er tilbreytingarleysið sem skelfir þá. En sambandið við vorn lifandi frelsara hrekur burt allan ótta, svo vér njótum gleði og blessunar fyrir návist hans gegnum allar skyldur lífsins. Hann segir til vor: “Eg styrki þig, og hjálpa þér, eg held þér með minni trúfastri hægri hendi.” Stundum er ótti og órósemi afleiðing af vondri sam- vizku. Friðar og gleði hjartans getum vér aðeins notið þegar vér fylgjum Jesú

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.