Stjarnan - 01.07.1946, Síða 8

Stjarnan - 01.07.1946, Síða 8
56 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ontario. Ritstjóm og afgreitSslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar_ Man., Can. um börnunum gátu bjargað sér, en þá var ómögulegt að frelsa fimta bamið, það skildi að líkindum ekki skipun föður síns að flýja. Hann gat heldur ekki bjargað konu sinni því það leið yfir hana þegar hún sá vatnsflóðið. Flóðið hreif með sér bílinn með konunni og barninu, eins og væri það lítill viðarkubbur. Slíkar fréttir snerta hjörtu vor alvar- lega, en lærum vér ætíð lexíuna sem í þeim felst? Minna þær oss á að flýja á óhultan stað áður en náðartíminn er á enda og hegningardómur Guðs fellur yfir þá sem lifa á láglendi syndarinnar? Hvetja slíkar fréttir oss til að gjöra vort ýtrasta líka til að bjarga öðrum? Þegar um andleg mál er að ræða, eru þá ekki margir meðal vor eins og strúts- fuglinn, sem oss er sagt að byrgi höfuð sitt í sandi til þess hann sjái ekki hætt- una? Vér erum í hættu staddir að vér sökkvum oss niður í störf vor, og látum þau svo taka upp allan tíma vorn, að vér höfum enga stund til að hugsa alvarlega um það í lífinu sem mest á ríður. Það er alt annað en skynsamlegt að hliðra sér hjá að hugsa um það sem ekki verður hjá komizt og búa sig sem bezt undir að mæta því á réttan hátt. Meira að segja, það er ihin fyrsta og helsta skylda kristins manns í þessum heimi að frelsa þá sem eru í hættu að farast umhverfis hann. Margir meðal vor þrá að heyra hug- hreystingarorð. Margt brosandi ' andlit ber í brjósti sér brotið og blæðandi hjarta, sem vér höfum enga hugmynd um. En Guð sem þekkir allra hjörtu veit hvernig þeim líður og hann talar til barna sinna og býður þeim að flytja huggunarorðin sem eru eins og græðismyrsl sundur- krömdu hjarta. En stundum erum vér svo fjarlæg að vér heyrum ekki rödd Guðs tala til vor. Jesús gjörði ætíð föðursins vilja. Hann hefði getað aflað sér auðs og frægðar með- al þjóðar sinnar. Skemtanir voru líka nóg- ar á þeim dögum, sem heilluðu huga manna. En Jesús snéri burt frá öllu þessu. Hans helzta áhugamál, já, hið eina áhugamál lífs hans, var að leita þess sem glatað var og frelsa það. Hann sneri ekki hársbreidd frá þeirri braut þó hann vissi hún lægi til krossins, niðurlægingar og þjáninga. Setjum svo, að þú sæir nágranna þinn á sundi svo sem mílu fyrir ofan hættulegan foss, og horfðir á hann leggjast á bakið til að virða fyrir sér skýin í loftinu og fjalls- hlíðarnar umhverfis, og léti þannig ber- ast með straumnum. Hvernig yrði þér innanbrjósts? Mundir þú láta hann ber- ast áfram án þess að vara hann við hætt- unni? Auðvitað ekki. Enginn vor á meðal mundi vera svo kærulaus þegar líkam- legt líf væri í veði. En hvernig er því varið með andlega lífið? Hefir þú enga ástvini, nágranna eða vini, sem hugsunar- laust láta berast með straum heimsins, er bráðum steypir þeim niður í hyldýpi ei- lífrar glötunar. Einu sinni var mér endursent bréf sem ekki hafði verið opnað. Þvert yfir utaná- skriftina var skrifað skýrt með blýant: “Dáin.” Það lá mikið í því orði, það talar til mín enn í dag. Eg lét bréfið lengi liggja óuppbrotið á skrifborði mínu. E'g vissi vel hvað í því stóð. Afmælisboð- skapurinn hafði verið sendur of seint til að geta glatt hjarta vinstúlku minnar. Eg vildi það væri hægt að gjöra það sem van- rækt var í gær, til að gleðja og hughreysta. En alt sem endurhljómaði í huga mínum var: “Það er of seint.” Vinur minn, hefir þú komist á óhultan stað uppi í fjallshlíðinni með Jesú? Og hvað líður nágrönnum þínum? Mrs. E. E. Andross. Þrjátíu hundruðustu af þeim sem fluttir voru á spítala í Virginia ríkinu gátu kent áfenginu um sjúkdóm sinn. Drukknir keyrslumenn voru orsök í 20 hundruðustu af þeim sem dóu af slysum á þjóðvegun- um. Og af þeim 104 þúsundum sem settir voru í fangelsi var helmingurinn settur inn fyrir drykkjuskap.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.