Stjarnan - 01.05.1947, Qupperneq 3

Stjarnan - 01.05.1947, Qupperneq 3
STJARNAN 43 “Sá sem þetta vottar segir: Já, eg kem skjótt Amen. Kom Drottinn Jesús.” Op. 22:20. Síðasta bænin í Biblíunni er: “Kom Drottinn Jesús.” “Hóf hann þá svo ræðu sína: Maður nokkur eðalborinn ferðaðist í fjarlægt land til að afla sér ríkis og koma svo heim aftur. En er hann hafði kallað fyrir sig 10 af þjón- um sínum, seldi hann þeim í hendur 10 Pund og sagði við þá: verzlið með þau þangað til eg kem aftur.” Lúk. 19:12.13. Miklu af tíma vorum er eytt í heimsku- iegar ráðagjörðir, en vér eigum að vera kappsamir í starfi til eflingar guðs ríki. ^eir sem í sannleika vænta endurkomu Krists standa fremstir í að styðja kristni- boðsstatrf, kristilega mentun og líknarstarf öðrum til hjálpar. Yér megum ekki eyða bfi voru í dagdrauma, heldur til að flytja fagnaðarerindið út til allra þjóða. Vér þráum tilkomu Drottins. “Að öðru ieyti er handa mér afsíðis lögð kóróna rétt- lætisins, sem Drottinn sá hinn réttláti dóm- ari mun gefa mér á þeim degi, en ekki einungis mér, heldur og öllum, sem þráð bafa tilkomu hans. 2. Tím. 4:8. i’etta eru síðustu orð og ósk Páls postula. Þráum vér tilkomu Krists? Eða elskiun vér þennan heim eins og Demas. 2- Tím. 4:10. Nú er tíminn til að hafa hug- ann á hinu himneska, en ekki hinu jarð- neska, “því þér eruð dánir en líf yðvart er falið með Kristi í Guði, en þegar Kristur vort líf opinberast, þá munuð þér og ásamt honum í dýrð opinberast.” Kol. 3:3.4. Til þess að geta verið með Jesú í dýrð hans, verðum vér að meðtaka hann sem Drott- mn vorn og frelsara hér og nú. Vér verð- nni að meðtaka hann sem endurlausnara vorn, 'hvers fórn á krossinum gjörði sálu- hjálp vora mögulega. Vilt þú í einlægni þlggja og meðtaka fyrirgefningu synda þinna í nafni Krists, sem dó fyrir þig á krossinum? Hafnaðu þessu ekki. Nú er tækifærið. Nú er dagur hjálpræðisins. Fyrir mörgum árum síðan framdi ungur naaður í Ohio voðalegan glæp og var dæmd- nr til lífláts. Bænir um breyting á dómin- nm í æfilangt fangelsi höfðu en-gan árang- ur. Loksins fóru foreldrar piltsins til land- stjórans og beiddu hann að minsta kosti að fara að sjá piltinn. Landstjórinn lofaði því og fór án þess að láta tilkynna komu sína. Þegar ungi maðurinn sá hann nálgast klefa sinn, sagði hann við sjálfan sig: “Hér kemur einhver prédikarinn til að ónáða mig. Eg vil ekki sjá hann.” Þegar landstjórinn kom að grindunum sagði hann: “Góðan daginn, James,” en ungi maðurinn sneri baki við honum og svaraði engu. “Vinir þínir hafa verið að tala um þig við mig, svo eg kom til að sjá þig,” sagði landstjórinn. “Eg kæri mig ekki um að tala við neinn í dag.” “Ef }'ú vissir hvað boðskapur minn er áríðandi, þá mundir þú vissulega veita mér áheyrn.” “Eg. kæri mig ekkert um að tala. Þú gjörir mér þénustu ef þú vilt fara í burtu.” “Það hryggir mig mjög. Vertu sæll.” Litlu seinna þegar fangavörðurinn gekk framhjá sagði hann: “Jæja Jim, hvernig kom ykkur saman þér og landstjóranum?” “Landstjóranum. Þú ætlar ekki að segja mér að litli maðurinn, sem leit út eins og prédikari hafi verið Nash landstjóri.” “Jú, hann kom til að vita hvort hann gæti gjört nokkuð fyrir þig.” Tækifæri fangans var farið. Fáum dög- um seinna þegar svarta hettan var dregin yfir höfuð honum hrópaði hann: “Ó, hvílík- ur heimskingi eg var. Hann vildi hjálpa mér, en eg leyfði honum það ekki.” Vinur minn, þú sem ert dauðadæmdur í klefa syndarinnar. Jesúm langar til að hjálpa þér í dag. Ó, að hann þurfi ekki að segja um þig, eins og um suma aðra: “En þér vilduð ekki koma til mín svo þér hefðuð lífið.” Jóh. 5:40. Kom vinur, kom til Jesú nú, svo þú fyrir trú á hann megir öðlast eilíft líf. “Sá sem trúir á soninn hefir eilíft líf, en sá sem ekki hlýðnast syninum skal ekki sjá lífið, heldur varir Guðs reúii yfir honum.” Jóh. 3:36. Þegar Jesús kemur í dýrð sinni, þá verður of seint að leita frelsunar. Notaðu tækifærið nú, bíðandi, biðjandi stöðugur í trúnni. ■f 4- 4- Sextíu af hundraði af börnum innan 14 ára aldurs í Czechoslovakíu þjást af tær- ingu eftir stríðið. Þriðja hvert barn deyr af þessum sjúkdómi áðúr en það verður ársgamalt. Of lítið og óhentugt fæði er orsökin.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.