Stjarnan - 01.05.1947, Síða 6

Stjarnan - 01.05.1947, Síða 6
46 STJAKNAN Geta menn keypt inngöngu í Guðs ríki? Á Indlandi eru borgirnar fullar af minn- ismerkjum einstaklinga. sem hafa leitað frelsunar með því að gefa til líknarstarfa. Þar eru sjúkrahús, skólar og eitt og annað, sem nefnt er eftir gefandanum, sem vænti þannig að komast inn um hliðardyr sér til sáluhjálpar. Þetta er algengt í Austur- álfunni. Jafnvel hér í Ameríku eru þeir, sem reyna að þagga niður samvizku sína og hugga sig við að alt hljóti, að fara vel, af því þeir hafi gefið svo og svo mikið til kirkjunnar eða til líknarstarfs. Þeir vona að Guð muni ekki taka hart á smásyndum er þeir svo nefna, sem þeirra óendurfædda hjarta vill ekki losa isig við. Til allra þess- ara hljómar boðskapurinn: “Meðal manna gefst ekki nokkur annar undir himninum fyrir hvers fulltyngi oss sé ætlað hólpn- um að verða.” Post. 4:12. Peningar, hjáguð þessa heims, geta aldrei endurleyst oss.” “Þér eruð eigi endurleystir með forgengilegu gulli né silfri . . . heldur með dýrmætu blóði þess óflekkaða, lýtalausa lambsins Krists,” I. Pét. 1:18. 19. Hefir þú nokkurn tíma hugsað að þú gætir jafnað reikning þinn við himininn, með því að gefa stórgjafir til líknarfélaga? Vissulega er Guði þóknanlegt að vér gefum ríflega þeim, sem líða skort andlega eða líkamlega. En vér getum aldrei vænst að kaupa oss inngöngu í Guðs ríki með því. Eitt kvöld í Bombay á Indlandi vaknaði eg við að barið var að dyrum. Eg fór til dyra, opnaði og bauð inn ungum manni, sem hafði stöðugt komið á samkomur þær, er eg hafði haldið þar í nágrenninu. Eftir nokkrar mínútur sagði hann mér erindi sitt. Hann langaði til að verða kristinn, fylgja Jesú og halda öll hans boðorð. Öll? Ekki alveg öll. “Eg er fús til að borga gjöldin og gefa fórnir,” sagði hann alvarlega. “En það eru 'einstaka hlutir, sem kirkja þín krefst, sem eg get ekki fylgst með, en það verður eflaust alt gott, svo lengi sem eg mæti skyldum mínum hvað fjárhag snertir.” “Fús til að borga gjöldin!” Ó, hversu margir eru ekki fúsir að gera af fé sínu, hel'dur en að gefa alt hjarta sitt. Þeir vona einhvernveginn að Guð verði ánægð- ur með viðskiftin. En Guð segir það sé ekki nóg. “Maðurinn getur ekki séð Guðs ríki, nema hann endurfæðist.” Hjartað verður að gefast Guði. Indland er fult af fólki, sem reynir að ávinna sér endurlausn. Menn fara langar pílagrímsferðir til helgistaða hjáguðanna, skríða á jörðunni, ganga gengum eld ber- fættir og pína sjálfa sig á ýmsan hátt í von um að frelsast gegnum þessar tilraunir. Einn skar sjálfur stykki af tungu sinni og fórnaði skurðgoðinu, áhorfendurnir voru hrifnir af slíku. En “Af engum öðrum er hjálpræðis að vænta, því meðal manna gefst ekki nokkur annar undir himninum, fyrir hvers fulltyngi oss sé ætlað hólpnum -að verða.” Vér aumkvumst yfir þessa óupplýstu vesalings heiðingja. En vér ættum engu síður að 'komast við er vér hugsum til þess að þúsundir manna hér í okkar upplýsta Vesturheimi gjöra sig seka í sömu heimsku og fáfræði er þeir vænta að frelsast fyrir góðverk, sín, og halda að alt sé eins og það á að vera, og sáluhjálp þeirra vís ef þeir eru vingjarnlegir og koma sér vel við ná- granna sína. Sumir gjöra góðverk eða stunda kristi- lega starfsemi. Þetta er lofs vert, en þeir geta aldrei áunnið sér inngang í Guðs ríki með þessu. Jesús segir sjálfur: “Eg er veg- urinn 'sannleikurinn og lífið, enginn kemur til föðursins nema fyrir mig.” Joh. 14:6. Enginn af oss hvort sem vér búum í heiðn- um löndum eða í Ameríku getur frelsast fyrir góðverk sín. Því “Meðal manna gefst ebki nokkur annar undir himninum fyrir hvers fulltyngi oss sé ætlað hólpnum að verða.” enginn nema Jesús. Það erum vér sjálfir, hjörtu vor, sem Guð vill vér igefum honum. Jesús er vor eina sáluhjálparvon, ef vér meðtökum hann þá gefum vér honum sjá'lfa oss með öll ^ern vér erum og höfum. Góðverk og allar kristrlegar dygðir, sem eru ávöxtur andans, munu þá sýna sig í lífi mannsins, Það er eðlileg afleiðing samfélagsins við Jesúm Krist og 'trúarinnar á hann. Jesús, hans blóð, hans orð, hans nafn er vor eina sáluhjálparvon. Enginn annar. R.H.P-

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.