Stjarnan - 01.05.1947, Síða 7

Stjarnan - 01.05.1947, Síða 7
STJARNAN 47 Eftirlit hershöfðingjans “Næstu viku kemur hershöfðinginn til að líta eftir öllu í þessari herdeild. Þið vit- ið hvað það meinar,” sagði sargentinn um leið og hann gekk framhjá. Vér fengum brátt skilning á hvað þetta þýddi. í öllum hermanna skálunum var strax farið að skúra og fægja alt viðarverk svo það leit út eins og nýtt. Pappaveggir voru stroknir og sópaðir og gólfin voru skúruð þangað til þau voru nærri hvít. Þetta var gjört á hverju kvöldi og stund- um verið að því fram á miðnætti. Allar heræfingar héldu áfra-m eins og vant var, svo hreingjörningar og pólering varð að gjörast eftir vinnutímann. Þó drengirnir væru rauðeygðir af svefnleysi þá unnu Þeir með mesta áhuga, hver hópur vildi 'geta staðið hæst með hreinlæti og reglu- semi í herbúðunum. Svo kom hinn mikli dagur. Eitthvað smávegis var lagfært snemma um morg- Uninn. Hershöfðingjans var von klukkan 10 meðan allir drengirnir voru úti við æf- lngar. öll föt voru hengd upp með beztu re;glu, rúmin uppbúin slétt og snotur. Her- búðirnar litu ljómandi vel út Það voru fjögur félög í hverri herdeild °g fjórir hermannaskálar í hverju félagi, svo hershöfðinginn gat ekki skoðað alt ná- hvæmlega. í hermannaskálunum var kof- f°rt við fótagaflinn á hverju rúmi, með fatnaði og öðru, sem átti að vera brotið saman og lagt niður á vissan hátt. I mín- Urn skála hafði herforinginn skoðað í koffort á öðru lofti, nærri úti 1 horni, svo ’langt í burt að eigandinn hafði ekki hirt Urn að setja þar alt í reglu. Þótt gólfin væru fannhvít og alt annað í bezta lagi þá stóðum við lægst af því kærulaus her- hiaður hélt hans koffort væri svo langt úr vegi að ekki yrði litið á það. Munum vér, hermenn Krists, mæta frammi fyrir hershfðingja vorum með eitt- hvað úr lagi af því vér vissum að rnenn hiundu ekki veita því eftirtekt, “því Guð hiun leiða alla hluti fyrir dóminn yfir öllu því, sem hulið er, hvort sem það er gott eða ilt.” Préd. 12:14. K. I. A. Getum við náð takmarki f ullkomnarinnar ? Gömul dæmisaga segir að klukka hefði einu sinni reiknað út hve margar hreifing- ar hún yrði að gjöra á einum degi. Það skifti svo mörgum þúsundum að klukkan lét hugfallast og hætti að ganga. Einhver sem frétti um þetta heimsótti klukkuna og spurði hvort hún gæti ekki gjört aðeins eina hreifingu í hvert skifti. “Það gæti eg,” svaraði klukkan og fór á stað og hefir gengið altaf síðan. Ef menn vildu athuga að kristilegt líf- erni krefur aðeins eitt spor í einu, einn dag í einu, þá mundu þeir ekki hika við að meðtaka Jesúm og fylgja honum. I stað þess lítur ungt fólk mörg ár fram í tímann sem því er ætlað að ganga á hinurn þrönga vegi án þess nokkurn tíma að mis- stíga sig, og það álítur ómögulegt að ná slí-kri fullkomnun, sem heimtuð er af þeim sem ganga Kristi á hönd. Að vísu setur Guð hátt takmark fyrir þá sem trúa á Jesúm. “Börn mín, þetta skrifa eg yður til þess þér syndgið ekki. Takmark- ið, sem Guð setur er að syndga ekki. Hann getur ekki sett það lægra. Takmarkið verð- ur að vera fullkomið réttlæti. Enginn hefir náð því nema Jesús Kristur. En allir kristnir menn verða að keppa eftir því að “lifa án syndar.” 1 skóla keppa börnin eftir að ná hæsta marki. Eins ætturn vér Guðs börn að keppa eftir Guðs takmarki “Syndgið ekki.” Vér getum þetta ekki í eigin krafti. “En það er Guð sem verkar í yður bæði að vilja og framkvæma.” Páll postuli segir: “Kristur í yður von dýrðarinnar.” Svo lesum vér aftur í 1. Jóh. 2:1. “Börn mín .. . syndgið ekki. En ef einhver syndg- ar, þá höfum vér árnaðarmann hjá föðurn- um Jesúm Krist hinn réttláta.” Vér erum hvattir til að “syndga ekki”, en ef vér skyldum falla fyrir freistingu og syndga, þá erum vér ekki vonarlausir, því Jesús talar máli voru og er fús til að fyrirgefa oss eins og hann gjörði fyrst, þegar vér snerum oss til hans. Hann hreinsar oss af synd vorri svo vér byrjum að nýju. Höfum það hugfast að vér getum varð- veist frá að syndga, því vér iesum í Júd. 24. versi: “Honum, sem megnar að varðveita

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.