Stjarnan - 01.05.1947, Síða 8

Stjarnan - 01.05.1947, Síða 8
48 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Départ- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshaw'a, Ontario. Ritstjórn og afgreiöslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar_ Man., Can. yður frá hrösun.” “íklæðist Drotni Jesú Kristi og alið ekki önn fyrir holdinu til að æsa girndir.” Þetta er vegurinn til að forðast synd og hrösun. Iklæddir Kristi megum vér ekki ganga í veg íyrir freist- ingarnar. Ef vér vorum vanir að fara á leikhúsin þurfum vér nú að forðast aug- lýsingar uim leiki og sýningar, bæði gegn- um víðvarp og annarsstaðar, svo þær ekki freisti vor og veki liðnar endurminningar. Ef maður var áður drykkfeldur, þá verð- ur hann að íorðast að staðnæmast fyrir framan vínsöluhþs. Það er betra að taka krók á sig heldur en ganga fram hjá slík- um stöðum. Forðumst alt, sem getur vakið freistingu. Ef vér óskum að Jesús varðveiti oss frá hrösun þá megum vér ekki gjöra ráð fyrir að brjóta Guðs boðorð. Ef vér sækjum eftir vinnu, og oss er sagt frá sérstaklega góðri stöðu, sem vér getum íengið, en látið fyLgjast með að það geti skeð að við fáum ekki altaf fría hvíldar- dagana, vér getum ekki gengið að slíku, því þar væri gjört ráð fyrir að brjóta Guðs boðorð, og þannig gengið í veg fyrir freist- ingu. Ef vér erum ákveðnir í að hlýða Guði ætíð og í öllu, þá mun hann veita oss fuil- kominn sigur. Vér getum ímyndað oss að vorar kringumstæður séu öðruvísi en ann- ara umhverfis oss, sem vinna sigur yfir öll- um erfiieikum er þeir mæta. En því er ekki þannig varið, ieyndardómurinn er þessi, að þeir gjöra ekkert ráð fyrir að brjóta Guðs boðorð, og hann efnir ioforð sitt til þeirra, að gefa þeim sigur fyrir sinn kraft. í Kor. 10:13 lesum vér: “Þér hafið ekki reynt nema mannlega freistni, en Guð er trúr, er ekki mun láta yður freistast fram yfir megn heldur gjöra þann endir á freist- ingunni að þér getið staðist hana.” Þegar vér sjáum og vitum af fjölda manna og kvenna, sem lifa sigursælu kristi- legu lífi, þá ætti það að hughreysta og hvetja oss til að treysta honum sem gef- ur oss “frægan sigur fyrir aðstoð hans, sem elskaði oss,” og gaf líf sitt oss til frels- unar. C. T. Everson. -f Smávegis Fyirir áhlaupið á “Pearl Harbour” voru 3,000 kvenlæknar í Bandaríkjunum, þær voru þá ekki álitnar jafnfærar mönnum í starfsgrein sinni. En þegar mennirnir urðu að fara í herinn, þá var tækifæri fyxir kven- lækna að sýna að þær stóðu mönnunum ekki að baki í iðn sinni. Nú hafa þær öðlast viðurkenningu og eru metnar að verðleik- um af almenningi. -f -f -f Það er áætlað að ferð Columbusar, þeg- ar hann uppgötvaði Ameríku 1492, hafi kostað um 2,115 dollara En Suðurheims- skautsför Scotts kostaði 500,000 dollara; Amundsen og Ellsworth heimsskautsför kostaði 200,000 dollara; Nobile “Italia” för- in 300,000 dollara. En kostnaðurinn við Richards Byrd uppgötvunarferð er áætl- að að muni kosta yfir eina miljón dollara. -f -f -f Rússland stígur hröðum skrefum til að koma á stað framleiðslu eins og var fyrir stríðið, segja fréttir frá Moskva. í saman- burði við framleiðslu þar árið 1945 er kola- framleiðsla nú ‘1 af hundraði meiri. Járn- framleiðsla er rúmlega ellefu hundruðustu meiri, 12 og hálft af hundraði meiri af stáli, 31 af hundraði meiri af skófatnaði, 14 hundruðustu meiri of bómullarvefnaði, og yfir 26 hundruðustu meiri af ullardúk- um. -f -f -f Sjóher Bandaríkjanna hefir nú svo öfl- ugar flugvélar, að þær geta flutt 168 far- þegar og flogið til Tokyo án þess að stað- næmast á ieiðinni. Þær hafa fjórar vélar, hver þeirra, með 3000 hestaafli. Tvær af þessum flugvélum voru smíðaðar og hvor um sig kostaði 2,700,000 dollara. -f -f -f Bretar eru þegar farnir að framleiða nærri eins mikið af bifreiðum eins og fyrir stríðið, þar eru þeir tiltölulega langt á undan Ameríkumönnum. En bílar eru hversdags nauðsyn í Bandaríkjunum og notaðir engu minna en fyr Þeir eru líka lægri í verði vegna þess að tollurinn er lægri.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.