Stjarnan - 01.07.1947, Blaðsíða 2

Stjarnan - 01.07.1947, Blaðsíða 2
58 STJARNAN Rósirnar, sem Ihenni voru gefnar, féllu ekki í grýttan jarðveg. Þær leiddu hana til að minnast liðinna saklausra æskudaga, vöktu löngun hjá henni til að lifa nýju lífi og von um að sá Guð, sem hún einu sinni elskaði gæti ennþá hjálpað henni. Hún sendi eftir konunni, sem hafði sýnt henni þá samhygð að gefa henni blómin og óskað henni Guðs blessunar. Blóma- konan koim strax, er hún heyrði að fang- inn óskaði að sjá hana. Hún sat við hlið hennar í klefanum og sagði henni fr*á Guði, vorum elskandi föður sem þráir að vér komum til hans svo hann geti veitt oss náð sína. Fanginn brast í grát, játaði syndir sínar og bað Guð um fyrirgefningu. Hún var dásamlega breytt. Það leið ekki á löngu að henni væri sleppt úr fangels- inu, og hún fór út til að lifa fyrir hann sem hafði dáið fyrir hana. Hún ferðaðist út um alt og sagði frá umvendun sinni og hvernig Jesús hefði frelsað hana. Hundruð manna sneru sér til Guðs fyrir vitnisburð hennar. Mikill mannfjöldi safnaðist saman í Garnegie Hall í New York til að hlusta með hrifningu á vitnisburð hennar um frelsun frá synd og sigur fyrir 'kraft Krists. Eilífðin ein getur leitt í Ijós, hve ríkuleg uppskera kom af því að sá einum blóm- vendi í fangaklefann í New York. Þessi kona lifði aðeins eitt ár eftir að hún sneri sér alvarlega til Guðs. Hún hafði ,grafið grundvöllinn undan heilsu sinni meðan hún lifði í synd. Þetta sann- ar enn fremur textan sem segir: „Það sem maðurinn sáir, það mun hann og uppskera.“ Iðrun vor tekur ekki burtu afleiðingar synda vorra. Guð fyrirgefur oss fullkom- lega, en vér uppskerum samt það sem vér höfum sáð. Eitrað illgresi getur aldrei orðið hrein, hvít lilja. Ef þú vilt fá lilju, þá sá þú til hennar. Bóndinn getur ekki sáð kartöfl- um og vænst að uppskera baunir. Lögmál Guðs í hinum andlega heimi er eins ófrávíkjanlegt, ef þú vilt ekki upp- skera þyrna, þistla og annað illgresi, þá siáðu ekki fræi þeirra. Það sem þú sáir muntu uppskera. Illgresi framleiðir aldrei annað en illgresi, hversu imikið sem þú grætur yfir því. Ef þú vilt framleiða rósir, þá sáðu til þeirra. Þótt þú snúir þér, getur þú ekki afmáð það illa sem sáð var meðan þú lifðir synd- inni. Þú getur ef til vdU spurt: Hvaða gagn er þá að snúa sér, ef maður getur ekki byrjað með hreinan reikning? Þú færð fullkomna fyrirgefning hjá Guði, svo ef þú dæir strax mundir þú frelsaðiu: verða, en ef þú lifir áfram þá er óhjákvæmilegt að uppskera það sem þú thefir sáð. En haf- ir þú alvarlega snúið þér til Guðs, þá hætt- ir þú að sá illgresi, en byrjar samstundis að sá hinu góða sæði 1 líf þitt. svo ávöxtur andans kemur í Ijós. Þar sem þú áður sáð- ir þyrnum, þistlum og öðru illgresi, þá sáir þú nú rósum, liljum og fjólum. Líf þitt smiám saman verður dýrðlegur akur ilmandi jurta kristilegra dygða, sem munu blessa og gleðja bæði þitt eigið ,,og annara hjörtu. Margir verða fyrir vonbrigðum af því þeir verða að berjast við ýmislegt sem þeir héldu þeir yrðu alveg lausir við eftir að þeir sneru sér til Guðs. Þeir gleyma því að uppskeran verður samskonar og það sem sáð var. Þess vegna er svo nauð- synlegt að leiða athygli hinna ungu að þessu. Það er seint að benda þeim á þetta sem alt sitt líf hafa sáð vondu sæði og eru að uppskera það sem þeir hafa sáð. Meðan þú ert ungur þá sáðu góðu sæði í líf þitt og innræti og þú munt fá góða, blessunarríka uppskeru. Það er eins með uppskeru af góðu sæði eins og vondu í því tilliti, að maður uppsker margfalt meira en maður sáir. Þú sáir einu rósarfræi og færð fjölda blóma. Þess vegna segir postulinn: „Látum oss ekki þreytast gott að gjöra, því á sínum tíma munuim vér uppskera, ef vér ekki letjumst“. Sáðu góðu sæði ef þú vilt fá góða upp- skeru. Það er enginn annar vegur til þess. Menn hafa aldrei vitað til þess að Guð hafi gjört 'kraftaverk til að breyta þistli í lilju. Þú hlýtur að uppskera sömu tegund og þú sáir. Páll postuli segir: „Yillist ekki. Guð lætur ekki að sér hæða, því það sem maðurinn sáir það mun hann og uppskera“. Hann vissi þetta vel, bæði frá Guðs orði og gegn um sína eigin reynslu. Afturhvarf Páls postula var eitthvert hið markverðasta sem menn þekkja. Jesús birtist honum og talaði til hans. Hann vissi tímann og stundina nær hann sneri sér,

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.