Stjarnan - 01.07.1947, Blaðsíða 6

Stjarnan - 01.07.1947, Blaðsíða 6
62 STJAKNAN og kyrrsettir. Allir nema einn. Hugrakkur ungur læknir, Cyril Haas, ásetti sér að vera kyrr. Hann var amerískur trúboði í Adana, og stóð íyrir sjúkrahúsi í þeirri borg. Þangað voru allir sjúklingar vel- ikomnir. Honum fanst hann ekki geta yfir- gefið fólkið sem þarfnaðist læknishjálpar. Á þessu tímabili heppnaðist Dr. Haas að frelsa líf eiginkonu eins af tyrknesku hers- höfðingjunum eftir að innlendu læknarnir höfðu gefið hana upp. Skömmu seinna varð læknirinn sjálfur veikur, og lá fyrir dauðanum í hitaveiki, því enginn ís fékst til að draga úr hitanum. Tyrneski hershöfðinginn, sem fyrr er getið, frétti um þörf læknisins. Hann kall- aði herdeild sína skipaði henni í röð frá sjúkrahúsinu alla leið upp að háu fjalli, hvers tindur var ísi þakinn. Þeir fluttu ís- inn í flýti alt að rúmi læknisins. — Þetta dróg úr hitanum og hann komst til heilsu aftur. Guð fann leið þegar enginn sá nokk- ur ráð. F. B. Doss. ♦ ♦ + Bíðandi komu hans Eg hafði* augun á götunni og beið eftir manninum sem flutti póstinn, hans var von á hverri mínútu, en hann kom ekki. Stundir liðu, svo ég þóttist vita að hann kæmi ekki. Vegir voru því næst ófærir, snjór var svo djúpur á jörðu. Eg fór inn í húsið og kom þá í hug orð- ið sem segir: „Þér vitið ekki nær herra yðar muni koma“. Vissulega vitum vér ekki tímann þegar Jesás kemur fremur en ég vissi nær póst- urinn kæmi. Jesús býður oss: „Verið þér því viðbúnir, því mannsins sonur mun koma þegar þér síst ætlið“. Fyrir nokkru síðan fékk ég bréf sem sagði mér, að vinur minn ætlaði að koma og heimsækja mig. Eg hafði varla lokið við að lesa bréfið fyrr en ég fór að hugsa um, hvað ég gæti gjört til að taka sem best á móti honum, hvað honum þætti best að borða og drekka. Meðan á þessu stóð fór ég að hugsa um, hvort ég væri jafn áhuga- söm að búa mig undir heimsókn vors him- neska ástvinar. Þrái ég að sjá hann eins og ég þrái að sjá jarðneskan vin, sem lengi hefir verið í burtu? Hvernig mun ég heilsa honum, eins og 'hjartfólgnum vin? Eða verð ég óviðbúin komu hans? Einu sinni sat Jesús með lærisveinum sínum á Olíufjallinu, það var komið rétt að sólarlagi. Þegar dimmt var orðið sást ljós skína gegn um opnar dyr á húsi einu kippkorn í burtu. Hópur af fólki sást skamt þaðan, því brúðkaup átti að baldast í hús- inu þetta kvöld. Þeir sem úti voru héldu, hver fyrir sig, á litlum ljósbera, þeir voru að bíða brúðgumans til að fylgjast með honum heim í brúðarsalinn, og þeir höfðu ljósin með sér til að lýsa upp brautina. — Takið eftir dæmisögunni eins og Jesús set- ur hana fram fyrir lærisveinum sínum sem sátu í kring um hann. „Himnaríki líkist 10 meyjum sem tóku larnpa sína og fóru á móti brúðgumanum, fimrn af þeim voru forsjólar en hin- ar fimm óforsjálar. Þær óforsjálu töku að sönnu lampa sína með, en ekki tóku þær viðsmjör með sér. En þær for- sjálu tóku viðsmjör með í kerum sínum. En er frestaðist komu brúðgumans syfjaði þæir allar og fóru að sofa. Um miðnætti var kallað og sagt: brúðguminn kemur, farið út á móti honum. Þá vöknuðu allar meyjarnar og tóku að búa lampa sína. En hinar óforsjálu sögðu við þær forsjálu: — Gefið oss nokkuð af yðar viðsmjöri ann- ars munu ljós vor slokna. Hinar forsjálu svöruðu: Það mundi ef til vill ekki end- ast handa oss og yður, farið heldur til þeirra sem viðsmjör selja og kaupið þar viðsmjör handa yður. En er þær voru burt farnar til kaupa þessara kom brúðguminn og þær sem til- búnar voru fóru inn með honum til brúð- kaupsins. Síðan var dyrunum lokað. En síðar komu hinar meyjarnar og sögðu: — „Herra, herra, ljúk upp fyrir oss. En hann svaraði og sagði: Sannarlega segi ég yður, ég þekki yður ekki. „Verið þar fyrir vakandi, því þér vitið ekki daginn né stundina. Matt. 25:1-13. Jesús kemur í veldi og dýrð mikilli. — Hann kemur í dýrð sinni og dýrð föður- ins og allir hinir heilögu englar með hon- um. Þó heimurinn sé í myrkri þá mun verða ljós í öllum híbýlum Guðs barna. Þau bíða og vænta hans og munu, þegar himnarnir opnast, sjá hina fyrstu geisla af dýrðarljóma hans hátignar. Hans trú-

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.