Stjarnan - 01.05.1949, Side 3

Stjarnan - 01.05.1949, Side 3
STJARNAN 35 þetta gjörir hann til þess að mennirnir megi verða hafnir upp úr því djúpi spill- ingar og niðurlægingar, sem syndin leiðir af sér, til þess að kærleikur guðs megi lýsa sér á þeim og þeir fá þátt í fögnuði hans og heilagleika. Það, sem goldið var fyrir endurlausn vora, hin eilífa fórn, sem vor himneski faðir færði, er hann gaf sinn son til þess að deyja fyrir oss, ætti að vekja hjá oss háleitar hugmyndir um, hvað vér getum orðið með Krists aðstoð. Hinn heilagi post- uli Jóhannes varð fullur lotningar og að- dáunar er hann hugleiddi breidd, lengd, dýpt og hæð þess kærleika, er guð ber til hins fallna mannkyns. Hann gat ekki fund- ið orð, er hæfileg væru til að tákna ínikil- leik og ástríki guðs kærleika; þess vegna hvetur hann heiminn til þess að virða hann fyrir sér. Hann segir: “Sjá, hvílíkan kær- leika faðirinn hefur oss auðsýnt, að vér skulum guðs börn kallast.”1 * * 4 5 Svo mikils metur guð mennina! Við brot guðs boðorða urðu mannanna börn þegnar Satans. Við trúna á Krists friðþægjandi fórn geta Adams synir orðið guðs synir. Þegar Krist- ur tók á sig mannlegt eðli, veitti hann mannkyninu nýja göfgi og tign. Hinir föllnu menn standa nú þannig að vígi, að þeir við það að sameinast Kristi geta orðið verðugir til þess að kallast guðs börn. E.G.W, :) 1. Jðh. 3, 1. ------------*------------- “Bjóð ríkismönnum þessarar aldar að þeir séu ekki mikillátir né treysti fallvölt- um auði, heldur lifanda Guði, sem veitir oss ríkulega alt gott til nauðþurftar; að þer gjöri gott, séu ríkir af góðverkum, örlátir, fúsir að miðla öðrum.” 1. Tím. 6:17.18. 4 + + Brian McMahon í öldungadeild Banda- ríkja þingsins segir að Amerika hafi eytt 350 biljón dollurum til að vinna seinna stríðið. Sú upphæð hefði nægt til að byggja 5 herbergja hús fyrir hverja einustu fjöl- skyldu í heiminum, og auk þess miljón dollara sjúkrahús fyrir hvert þorp sem hefði 5000, eða fleiri íbúa. “Sá, sem stöðugur stendur alt til enda mun hólpinn verða” Fréttir komu á skrifstofu vora að safn- aðamenn vorir væru ásakaðir fyrir að hafa Biblíu á heimilum sínum. Yfirmaður trú- boðsins bað mig fara og hjálpa bræðrun- um svo þeir fengju frjálsræði til að lesa Biblíuna þegar þeir vildu. Vér sendum boð á undan mér að ég ætlaði að koma og tala við stjórnina fyrir þá. Ég fór frá Addis Ababa til Dessie svo ég gæti fundið land- stjórann fyrir því héraði. Þegar þangað kom mætti ég vinum mínum, sem biðu mín þar sem áður var Dessie sjúkrahús. Morguninn eftir lagði ég málið fram fyrir erfðaprinsinn. Hann tók því vel og kvaðst gjarnan vilja sjálfur fá að sjá þá sem hefðu bannað fólki voru að lesa Biblíuna. Guði séu þakkir að nú er fólk okkar frjálst að því að lesa Biblíuna, og því hefir verið skilað aftur þeim Biblíum sem teknar höfðu verið frá þeim. Höfðinginn Aleka Zekarias hafði leitt menn sína frá Múhameðstrú til Kristinnar trúar. Flann hafði sagt þeim að þeir mundu fá fullkomnari kristindómskenslu frá út- löndum. Þetta rættist fyrir 15 árum síðan. Einn af starfsmönnum vorum sem þekti þetta fólk, sendi þangað tvo Eritreumenn til að útbreiða kristindómsrit áður en byrj- að yrði að prédika meðal þeirra. Ég átti heima í þessum hluta landsins. Áður en farið var að prédika hjá okkur voru fimm af okkur sendir á skóla í Eritrea, þar sem Mr. og Mrs. Guðdundsen frá Noregi störf- uðu. Þau tóku vel á móti okkur. Árið eftir komu feður okkar til að sjá hvernig okkur liði. Þeir voru skírðir áður en þeir fóru heim aftur. Eftir að þeir komu heim fóru þeir að prédika fyrir öðrum og leiddu marga til frelsarans. Eg man vel eftir þegar einn þeirra rétt áður en hann dó var að segja frá reynslu sinni. Meðan óvinirnir höfðu yfirráðin voru Mr. og Mrs. Palm rekin burt úr Etíopíu. Safnaðafólk vort hafði svo mikl- ar ofsóknir að það er óskiljanlegt hvernig það komst í gegn. Hús höfðu verið brend, og fólk drepið miskunarlaust, margir voru heimilislausir, eigur þeirra gjörðar upp- tækar og þeim bannað að lesa bækur eða syngja sálma í kirkjum. Bróðir Aleka

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.