Stjarnan - 01.05.1949, Síða 4

Stjarnan - 01.05.1949, Síða 4
36 STJARNAN Isaías, sem nú hvílir í gröfinni hafði feng- ið aðvörun frá presti, sem bjó í þorpi skamt þaðan, um að föðurlandsvinur einn ætlaði að drepa hann ef hann vildi ekki láta af trú sinni. Presturinn reyndi aftur og aftur að hræða hann en Aleka svaraði aðeins: “Sá sem stöðugur stendur alt til enda hann mun hólpinn verða.” Matt. 10:22. Presturinn varð svo reiður af því hann vildi ekki afneita trú sinni að hann bað einn af föðurlandsvinunum að drepa Aleka. Hann kom og presturinn með hon- um til að skjóta Aleka ef hann héldi fast við trú sína. Aleka spurði hvort þeir vildu gefa honum tíma til að hugsa sig um svo alvarlegt málefni. Seinna þegar Aleka var spurður hvort hann vildi breyta trú sinni þá svaraði hann: “Nei, ég get það ekki. Ég vil heldur deyja. Biblían segir mér að standa stöðugur alt til enda. Svo lyfti hann hjarta sínu til Guðs í þögulli bæn og fólk- ið þorði ekki að drepa hann. Margir líða ennþá ofsóknir í þessum hluta landsins. En þeir hafa örugga trú á Guði. Biðjið með þeim og fyrir þeim. A. D. KASSAHUN -------------------------- Heilög Ritning 1. Hver er höfundur bókarinnar, sem nefnist Biblía eða Heilög Ritning? “Öll Ritning er innblásin af Guði, og nytsöm til lærdóms, til sannfæringar gegn mótmælum, til leiðréttingar, til mentunar í réttlæti.” 2. Tím. 3:16. 2. Hver leiddi þá og stjórnaði þeim, sem fluttu spádóma Biblíunnar og skrif- uðu þá niður? “Því að aldrei hefir nokkur spádómur framfluttur verið eftir mannsins vild, heldur töluðu hinir helgu Guðs menn til- knúðir af Heilögum Anda.” 2. Pét. 1:21. 3. Hver talaði gegn um spámennina? “Eftir að Guð forðum hafði talað til feðranna oftsinnis og með mörgu móti, fyrir munn sinna spámanna, hefir hann á þessum síðustu tímum til vor talað fyrir Soninn.” 4. í hvaða tilgangi var Biblían skrifuð? “Því alt sem áður er skrifað er áður skrifað oss til uppfræðingar, svo að vér fyrir þolinmæðina og huggun Ritninganna hefðum vonina.” Róm. 15:14 5. Hver er ennfremur nytsemi Biblí- unnar? Hún er “nytsöm til lærdóms, til sann- færingar gegn mótmælum, til leiðrétting- ar, til mentunar í réttlæti, svo Guðs maður sé algjör og til als góðs verks hæfilegur.” 2. Tim. 3:16.17. 6. Hvaða sönnun gaf Jesús fyrir því að hann væri Messias? Hann vitnaði í Ritningarnar: “Byrjaði hann þá á Móses og öllum spámönnunum, og útlagði fyrir þeim alt það í Ritningun- um, er hljóðaði um hann.” Lúk. 24:27. 7. Hvernig viðurkendi Jesús alt Gamla Testamentið? “En hann sagði við þá: þetta er það sem ég sagði yður, meðan ég var enn með yður, að á mér ætti að rætast alt það, sem ritað er um mig í lögmáli Móses, spámönn- unum og sálmunum. 8. Hvernig getum vér vitað hvað rétt er, þegar vér heyrum ýmear mismunandi trúarkenningar? “Gætið lærdómsins og vitnisburðarins, ef þeir tala ekki samkvæmt honum, þá vitið að fólkið hefir enga birtu.” Jes. 8:20. 9. Hvað vill Guð að Orð hans sé fyrir oss í þessum myrka heimi? “Þitt Orð er lampi fóta minna og Ijós á vegum mínum.” Sálm. 119:105. 10. Hvernig mætti Jesús freistingum satans? Hann vitnaði stöðugt í Ritninguna. “Jesús svaraði: Skrifað stendur: maður- inn lifir ekki af einu saman brauði, held- ur af sérhverju orði sem fram gengur af Guðs munni.” “Jesús svaraði honum: aft- ur stendur skrifað: Ekki skaltu freista Drottins Guðs þíns.” “Þá mælti Jesús: Far frá mér satan, því skrifað er: Drottinn Guð þinn átt þú að tilbíðja og þjóna hon- um einum.” Matt. 4: 4.7.10. vers. 11. Hve lengi mun Guðs Orð verða við lýði? “Orð vors Guðs stendur stöðugt eilíf- lega.” Orð Drottins varir að eilífu, og það er það orð sem yður er boðað.” Jes. 40:8 1. Pét. 1:25. Jesús segir: “Himin og jörð munu forganga, en mín orð munu ekki forganga. Matt. 24:35. i

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.