Stjarnan - 01.06.1949, Blaðsíða 4

Stjarnan - 01.06.1949, Blaðsíða 4
44 STJARNAN allan hátt eins og vér, þó án syndar.” Hebr. 4:15. “Hann drygði ekki synd, og ekki eru svik fundin í hans munni.” 1. Pet. 2:22. 8. Hvers vegna dó Jesús? Hann dó fyrir vorar syndir. “En Guð sýnir elsku sína til vor í því, eð þegar vér ennþá vorum syndarar er Kristur fyrir oss dáinn.” Róm. 5:8. “Þetta er mitt blóð, hins nýja sáttmála, og sem fyrir marga mun verða úthelt til fyrirgefningar synd- anna.” Matt. 26:28. 9. “Hver nýtur góðs af wpprisu Krists? “Ef vér, þegar vér vorum óvinir, urðum sættir við Guð fyrir dauða Sonar hans, munum vér miklu fremur, þá vér erum í sátt teknir, fyrir líf hans frelsaðir verða.” “Sá sem hefir Soninn hefir lífið, sá sem ekki hefir Guðs Son hefir ekki lífið.” 1 Jóh. 5:12. “Hræðstu ekki, ég em hinn fyrsti og síð- asti og sá lifandi, ég dó, en sjá, ég lifi um aldir alda og hefi lykla dauðans og undir- heima.” Op. 1:18. 10. Hvað er starf Krists nú? “Einn er Guð og einn er meðalgangar- inn milli Guðs og manna, maðurinn Jesús Kristur.” “Vér höfum þann æðsta prest, er situr bægra megin við hásæti hins alvalda á himnum.” Hebr. 8:1. “Þess vegna getur hann líka ætíð frelsað þá, þar hann æ lifir til þess að tala máli þeirra. Hebr. 7:25. 11. Hvaða loforð gaf Jesús áður en liann sté til himins? “Ég fer burt til að til búa yður stað, og þegar ég er burt farinn og hefi tilbúið yður stað, þá mun ég koma aftur og taka yður til mín, svo að þér séuð þar sem ég er.” Jóh. 14:3. 12. Hvernig kemur hann? “í því hann sagði þetta varð hann upp- numinn til himins að þeim ásjáandi og ský nam hann frá augum þeirra. Nú sem þeir störðu til himins, þá hann fór frá þeim, sjá, þá stóðu tveir menn hjá þeim í hvítum klæðnaði; þeir sögðu: Galíleisku menn, hví standið þér og horfið til himins? Þessi Jesús sem upp numinn er frá yður til himins, mun koma á sama hátt og þér sáuð hann fara til himins.” Post. 1:9:11. “Sjá hann kemur í skýjunum, og hvert auga mun sjá hann.” Op. 1:7. Hann fanst í snjónum. Bobby var nærri fjögurra ára gamall. Hann hafði gaman að grenslast um alt og rannsaka alla hluti sem hann náði í. Einn dag þegar faðir hans fór inn í þorpið upp í fjallshlíðinni tók hann Bobby með sér. Sá litli var heldur lukkulegur, hann hafði svo gaman af að fara í bílnum með pabba sínum. Þegar þeir komu áfram fór faðir hans inn í búðina eftir einhverju smávegis, en Bobby átti að bíða hans í bílnum. Bobby fór nú að líta 1 kring um sig. Þorpið var fallegt, það stóð líka svo hátt. Milli trjánna hærra uppi í fjallinu sá hann eitthvað hvítt og hugsaði það væri ef til vill það sem fólkið kallaði snjó. Hann langaði til að sjá hann svo hann opnaði bílhurðina og hopp- aði út. Hann var viss um að hann gæti verið kominn aftur áður en pabbi væri búinn í búðinni hann var þar stundum svo lengi. Hann gekk nú upp götuna sem lá upp á fjallið til þess að geta náð í snjóinn. En vegurinn var lengri en Bobby hafði ímyndað sér, það var alt upp á móti og erfið ganga fyrir lítinn dreng. Hann gleymdi því alveg að pabbi kynni að sakna hans. Þegar faðir hans kom út úr búðinni, og fann bílinn tóman varð hann skelkaður. Hvergi sá hann Bobby. Hann hrópaði og hrópaði og hljóp fram og aftur um strætin. Ekkert svar. Hann spurði alla sem hann mætti hvort þeir hefðu séð lítinn dreng. Enginn hafði séð hann. “Honum hefir verið stolið,” hugsaði vesalings faðirinn. Hann fónaði heim og svo til lögreglunnar. Innan stundar voru 200 manns komnir út að leita að barninu. Þeir leituðu alla nóttina en árangurslaust. Ekkert fréttist til barnsins. Nú var komið fram yfir hádegi daginn eftir og flestir höfðu gefið upp alla von. Ef honum hefði verið stolið þá vær gagns- laust að leita að honum í nágrenninu. En ef hann hefði farið inn í skóginn þá væri hann þegar dauður af kulda. En faðir hans gat ekki hætt leitinni. Loks réð hann af að fylgja götunni upp fjallið svo langt sem hún næði. Hann hélt áfram mílu eftir mílu. Hann var nú kom-

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.