Stjarnan - 01.06.1949, Page 5

Stjarnan - 01.06.1949, Page 5
STJARNAN 45 inn 4 mílur upp frá þorpinu. Þetta virtist gagnsalust. Hér var snjór á jörðu. Hann hélt hann gæti eins vel snúið til baka, nú færi líka bráðum að dimma. Það voru 30 klukkustundir síðan Bobby týndist. í neyð og sorg sinni kom föðurnum til hugar að snúa sér til Guðs. “Ó Guð,” hróp- aði hann og féll á kné, “ef litli drengurinn minn er hér uppi þá hjálpaðu mér að finna hann áður en dimmir.” Hann endurtók þessi orð aftur og aftur yfirkominn af sálarangist. Alt í einu heyrði hann lítið hljóð, hann hélt fyrst það væri fugl, en svo er hann leit í kring um sig sá hann Bobby liggja í aurleðju og hálf bráðnuðum snjó. Hann fór yfir til hans greip hann í fang sér og hljóp með hann niður að þorp- inu . . . Læknirinn sagði Bobby væri ó- meiddur og mundi brátt ná sér eftir kuld- ann og einhveruna uppi á fjallinu. Faðir hans getur aldrei þakkað Guði eins vel og hann vildi fyrir hans undra- verðu bænheyrslu, að lofa honum að finna barnið áður en fór að dimma. A.S.M. ------------*------------ Keppið að takmarkinu. Vér leggjum oft áherslu á að endir allra hluta sé nálægur. Ef vér í sannleika trúum því, þá munum vér hafa áhuga fyrir að læra það sem Guð kennir oss til þess vér verðum undirbúnir komu Krists. Eitt sem vér verðum að muna er þetta: Vér getum ekki verið undirbúnir ef vér vöknum fyrst þegar hrópað er: “Brúðguminn kemur,” og þá tökum vora tómu lampa. Þá er of seint að fá sér olíu á þá. Vér getum ekki lifað án samfélags við Krist hér og sam- tímis fundist verðugir fyrir félagskap hans á himnum. Óvinurinn gjörir alt sem í hans valdi stendur til að leiða áhuga vorn að öðru, svo vér vanrækjum að undirbúa oss til að mæta Guði vorum. Það er svo auðvelt að svíkja sjálfan sig með þeirri ímyndun, að ef vér reynum að gjöra vort besta, þá muni Jesús þegar hann kemur bæta upp það sem á vantar í innræti voru. Vér þurf- um að læra hvað Guð segir þessu viðvíkj- andi. “Guð heimtar að börn hans séu fullkomin. Lögmál Guðs er endurskin eiginlegleika hans og það er mælisnúran fyrir líf vort og innræti. Þessi guðdómlegi mælikvarði er öllum gefinn, svo enginn getur efast um hvers konar fólk Guð vill hafa í ríki sínu.” Margir meðal vor vænta að sjá Guðs málefni hrósa dýrðlegum sigri og fá svo að sjá Jesúm koma í skýjum himins. En til þess að vera viðbúinn að mæta honum verðum vér að vita hvers hann krefst af þeim sem bíða hans. Vér megum ekki fylgja dæmi fávísu meyjanna sem voru of seinar. Sumir kvarta um að kröfur Guðs séu of háar, en vér erum í hættu með að setja takmarkið of lágt. Guð er sá sem setur reglurnar. Gefum gaum að ráðuin hans. Nú, meðan vor mikli æðsti prestur talar máli voru og forlíkar fyrir oss ættum vér að keppa eftir fulkomnun í Kristi. Ekki einu sinni í hugsun gaf Jesús eftir fyrir freistingunum. Satan fann ekkert í fari hans sem hann gæti felt hann með. Hann hélt boðorð föðursins og drýgði aldrei synd. Þetta þarf einnig að vsra ásigkomulag þeirra sem eiga að standast á þrengingar- tímanum, sem fram undan er. Vér verðum að vinn£ fullkominn sigur yfir synd í þessu lífi fyrir trú á Jesú forþénustu og hans úthelta blóð. Guð skipar þjónum sínum: “þeytið lúð- urinn á Zíon, æpið óp á mínu heilaga fjalli.” Jóh. 1-2:1. Hann þekkir ásigkomu- lag safnaðar síns. Hann segir: “Þeir kæru- lausu, sem ekki sameinuðust þeim sem möttu sigur og sáluhjálp nógu mikils, til þess án afláts að vaka og biðja, þeir öðluð- ust ekki kraftinn sem Guð þó var reiðu- búinn að veita þeim.” Margir meðal vor vanrækja tækifæri þau sem þeim eru gefin. Menn gjöra lítils- háttar tilraun til að breyta rétt en falla svo aftur í hið gamla syndalíf. Ef vér eigum að fá inngöngu í Guðs ríki, þá verð- um vér að ná fullkomnun innrætisins, svo vér höfum “hvorki blett né hrukku, né neitt þess háttar.” Þetta er mögulegt ein- ungis með krafti Krists fyrir lifandi trú á hann. R.H.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.