Stjarnan - 01.06.1949, Blaðsíða 6

Stjarnan - 01.06.1949, Blaðsíða 6
46 STJARNAN Grafreiturinn hennar Geirþrúðar “Pabbi, vitlu gefa mér horn af garðin- um sem ég má alveg eiga sjálf?” sagði Geirþrúður um leið og hún kom hlaupandi út að hlöðunni þar sem faðir hennar og tveir vinnumenn voru að hlaða upp heyi. “Ó pabbi, viltu gef mér það?” endurtók hún um leið og hún greip hönd föður síns og brosti til hans. Faðir hennar spurði: “hvaða horn viltu fá elskan mín?” “Suðvestur hornið pabbi, frá vonlausa eplatrénu og yfir að girðingunni. Ekkert—” Nú fóru þeir allir að hlæja og annar vinnumaðurinn spurði: “Er það ný epla- tegund, “vonlaus”, eru þau epli rauð eða græn?” Geirþrúður leit gremjulega til spyrj- andans en svaraði engu, hún sagði aðeins: “Viltu gefa mér það pabbi? Það vex þar ekkert hvort sem er.” “Til hvers vilt þú það,” spurði faðir hennar, “ætlar þú að sá þar baunum eða gulrófum?” “Hvorugu, ég ætla að hafa það fyrir grafreit.” Nú hlóu þeir allir svo dátt að móðir Geirþrúðar kom út með litla barnið til að vita hvað um var að vera. “Geirþrúður vill fá að undirbúa grafreit fyrir fjölskylduna í garðshorninu,” sagði Mr. Welton við konu sína þegar hann gat stöðvað hláturinn. “Hvað œtlar þú að jarða þar, brotnar brúður?” spurði móðirinn. “Nei, þetta til að byrja með”, sagði Geirþrúður og hljóp í burt, en greip um leið tóbakspípu föður sins upp úr fötu, sem þar stóð og fór svo eins og örskot út í garðshornið. Þetta gekk alt í einni svipan svo enginn tók eftir hvað hún hafði gripið með sér. Þeir héldu hún hlypi burt af því þeir voru að hlæja að henni. En um kvöld- ið þegar vinnu var lokið saknaði faðir hennar pípu sinnar. Hann gekk fram og aftur og spurði: “Hvar er pípan mín? Hef- ur nokkur séð pípuna mína?” Geirþrúður gekk til hans með hægð og sagið í lágum hljóðum: “Ég jarðaði hana, pabbi, 1 nýja grafreitnum mínum.” “Hvað, þú jarðaðir hana?” “Já pabbi, komdu og sjáðu.” Svo leiddi hún föður sinn út í garðs- hornið og sýndi honum laglega upphlaðið lítið leiði. Við annan endan var stungið niður lítilli fjöl með þessari áritun sem Geirþrúður sjálf hafði prentað: “Hér hvíl- ir pípan hans pabba míns til eilífðar.” Mr. Welton settist á trésstofn, dróg litlu stúlkuna að sér og spurði blíðlega: “Hvers vegna gjörðir þú þetta?” “Af því ég vildi ekki þú dæir pabbi, eins og Mr. Beckett. Ég vil líka þú sért hrein- legri heldur en gamli Beckett var.” “Veist þú af hverju Mr. Beckett dó? Hvernig getur þú vitað það?” “Já pabbi, ég veit það með vissu, því ég heyrði Miss Moore spyrja Dr. Brown um það við jarð- arförina. Hann svaraði: “Það var pípan Miss Moore. Pípan drap hann.” Pabbi, ég vil ekki að pípan drepi þig,” sagði Geirþrúður og vafði handleggjunum um háls föður síns. Svo eins og henni alt í einu dytti nokkuð í hug, spurði hún áhyggjufull: “Þú ætlar þó ekki að grafa hana upp, pabbi?” “Nei, Geirþrúður,” svaraði faðir hennar um leið og hann faðmaði hana að sér. “Pabbi rænir ekki grafir. Ég býst við ég sakni pípunnar minnar, en ég ætla ekki að fá mér aðra.” “Ó ég er svo glöð,” sagði Geirþrúður og faðmaði föður sinn. “Nú hef ég góðan, hreinan pabba sem aldrei deyr.” Á leiðinni heim spurði faðir hennar: “Ætlar þú að jarða nokkuð fleira í grafreitnum þínum, eða var hann aðeins fyrir pípuna mína?” “Ég ætla að jarða þar margt fleira,” svaraði Geirþrúður, “vindlingana hans Jóa, vindlana hans Róberts frœnda, neftóbakið hennar Drú frænku minnar, og alt annað sem er slæmt.” Smámsaman fjölguðu grafirnar í garðs- horninu. Geirþrúður bjó til röð af þeim og merkti þær nákvæmlega. Yfir vindlingum Jóa stóð yfirstkriftin: “Brendir um eilífð.” Yfir neftóbakinu hennar frænku stóð: “Kæft til dauða.” Hver litla gröfin bar vott um sigur sem einhver hafði unnið yfir vondum vana. C.O.G. -----------4----------- Vér leiðréttum ranga reikningsfærslu, en afsökum syndir vorar og yfirsjónir, eins og þær væru til einhvers gagns. American Christian Review

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.