Stjarnan - 01.07.1949, Side 2

Stjarnan - 01.07.1949, Side 2
50 STJARNAN Davíð sá hve brot hans var óttalegt. Hann sá saurgun sálar sinnar og honum bauð við synd sinni. Hann bað ekki aðeins um syndafyrirgefningu, heldur og um hreint hjarta. Hann þráði fögnuð heilagleikans, til þess að hann gæti aptur komizt í sam- ræmi og samfélag við guð. Þessi voru orð hjarta hans: “Sælir eru þeir, hverra yfirtroðslur eru fyrirgefnar, hverra syndir eru huldar. Sæll er sá maöur, sem drottinn tilreiknar ekki syndina og sá, í hvers anda ekki er flærð.” “Miskuna mér guð! eftir þinni gœsku, og má afmá mínar yfirtroðslur eptir þinni miskunsemi . . . Því ég þekki mína yfirtroðslu og mín synd er œtíð frammi fyrir mér . . . Þvo þú mig með ísópi af synd, svo ég verði hreinn; þvo þú mig, svo ég verði hvítari en snjór Skapa í mér hreint hjarta, ó, guð! og endurnýja í mér stöðugan anda! Kasta mér ekki hurt frá þínu augliti, og tak ekki þinn heilaga anda frá mér. Gef mér aptur fögnuð þíns frelsis, útbú mig með öruggum anda . . . Frelsa mig frá blóðskuld guð, minn frelsis guð! svo að mín tunga fagni yfir þinni gæzku.” Sliku apturhvarfi, sem þessu, getum vér ekki komið til leiðar af eigin ramreik. Það getum vér eigi öðlast nema fyrir Krist, er sté upp til himna og gefið hefur mönn- unum gjafir. Þetta er einmitt atríði, sem mörgum skjátlast í, og þessvegna öðlast þeir ekki þá hjálp, sem Kristur vill veita þeim. Þeir ætla að þeir geti ekki komið til Krists, nema þeir taki sinnaskiptum áður og hyggja, að apturhvarfið búi þeim veg til syndafyrirgefningarinnar. Satt er það að apturhvarfið verður að fara á undan fyrir- gefningunni, því að þau hjörtu ein, er iðr- andi eru og sundurkramin, finna þörfina á frelsaranum. En þarf syndarinn að bíða eptir því að hann taki sinnaskiptum áður en hann má koma til Jesú? Á apturhvarfið að vera þröskuldur milli syndarans og frelsarans? Það er hvergi kennt í ritningunni, að syndarinn þurfi að taka sinnaskiptum áð- ur en hann geti þegið boð Krists: “Komið til mín allir þér, sem erfiðið og þunga er- uð hlaðnir, ég vil gefa ykkur hvíld“. Sá kraptur, sem gengur út frá Kristi, leiðir til sanns apturhvarfs. Þetta tók Pétur ljós- lega fram í vitnisburði sínum til Gy.ðinga, er hann sagði: “Þenna foringja og frelsara hefur guð upphafið með sinni hægri hendi, svo að hann veiti ísrael apturhvarf og fyrirgefningu syndanna.” Það er jafn- ómögulegt fyrir oss að taka sinnaskiptum án aðstoðar Krists anda, sem vekur sam- viskuna, eins og það er, að öðlast synda- fyrirgefningu án Krists. Kristur er uppsprettan til allra góðra tilhneiginga. Hann einn getur vakið í hjart- anu óvináttu gegn syndinni. Sérhver þrá eptir sannleika og hreinleika, sérhver sannfæring um syndaástand sjálfra vor, er vottur þess, að andi hans hrærir hjörtu vor. Jesús hefur sagt: “Og þegar ég verð hafinn frá jörðu, mun ég draga alla til mín.” Kristur verður að opinberast synd- aranum, sem sá frelsari, er lét lífið vegna synda heimsins; og þegar vér sjáum lamb guðs á krossinum á Golgata, þá tekur leyndardómur endurlausnarinnar að upp- ljóma hjörtu vor, og gæzka guðs leiðir oss til apturhvarfsins. Þegar Kristur dó fyrir syndarana, sýndi hann þann kærleika, sem vér fáum eigi skilið. Þegar syndarinn hug- leiðir þennan kærleika, verður sú hugleið- ing tilefni til þess að mýkja hjarta hans og hræra sálina og vekja hjá honum hryggð yfir syndinni. Satt er það að vísu, að stundum blygð- ast mennirnir sín fyrir það að halda áfram á vegi syndarinnar og leggja niður sumt, sem ljótt er í fari þeirra, áður en þeir verða þess varir að þeir laðist til Krists. En ef kappkostun þeirra eptir betruninni er sprottin af einlægri löngun eptir að breyta rétt, þá er það ætíð kraptur Krists, sem leiðir þá. Sálin verður fyrir áhrifum, sem þeir sjálfir verða ekki varir við, samvizk- an vaknar og ytri hegðun þeirra batnar. Þegar Kristur svo leiðir þá til þess að horfa til krossins og virða fyrir sér hann, sem stunginn var fyrir þeirra synda sakir, þá tekur boð hans að hafa áhrif á samvizkur þeirra. Þeim verður ljóst, hversu líferni

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.