Stjarnan - 01.07.1949, Side 4

Stjarnan - 01.07.1949, Side 4
52 STJARNAN aðir mig fyr en veröldin var grundvölluð“. Jóh. 17:24. Þeir óguðlegu verða eyðilagðir: „Eins gekk til á dögum Lots: þeir átu, drukku, keyptu, seldu, plöntuðu og byggðu hús, en á þeim degi, þegar Lot fór út af Sódóma rigndi eldi og brennisteini af himni, sem eyðilagði þá alla. Eins mun til ganga á þeim degi þegar Mannsins Sonur birtist“. Lúk. 17:28—30. „Þá mun hinn guðlausi koma í ljós, og honum mun Drottinn Jesús tortíma með anda síns munns, og að engu gjöra, þá hann birtist dýrðlega í tilkomu sinni“. 2Þess. 2:8. 4. Hvernig getum vér verið viöbúnir þegar Jesús kemur? „Alt sem Faðir minn geíur mér kemur til mín, og þann sem til mín kemur, mun ég ekki burt reka“. Jóh. 6:37. „Elskan- legir, nú þegar erum vér Guðsbörn, en það er ennþá ekki opinbert hvað vér verða munum, en það vitum vér, að þegar hann birtist þá munum vér verða honum líkir, því vér munum sjá hann eins og hann er. Og hver sem hefir þessa von til hans hreinsar sjálfan sig eins og hann er hreinn. I Jóh. 3:2—3. Vér verðum að koma til Jesú, fylgja honum og keppast eftir að líkjast honum, og vænta komu hans. „Þannig er og Krist- ur eitt sinn fórnfærður, til þess að burt taka margra svndir. en í annað sinn mun hann birtast, án þess að vera syndafórn, öllum sem hans vænta til frelsunar.“ Heb. 9:28. „Að öðru levti er handa mér afsíðis lögð kóróna réttlætisins, sem Drottinn sá hinn réttláti dómari, mun gefa mér á þeim degi, en ekki einungis mér, heldur og öll- um sem þráð hafa tilkomu hans“. 2Tím. 4:8. ______________*______________ „Drottins augu snúa sér að hinum rétt- látu, og hans eyru að þeirra kalli. Þeir réttlátu hrópa og Drottinn heyrir, hann frelsar þá af allri þeirra angist. Drottinn er þeim nálægur, sem hafa sundurkramið hjarta, og frelsar þá, sem hafa niður- beigðan anda. Sá réttláti ratar í margar raunir en Drottinn frelsar hann úr þeim öllum“. Sálm. 34:15—19. Guð heimtar hlýðni Þegar Jesús bendir á lögleysi vorra tíma bæði í andlegum og siðferðislegum efnum, þá á hann fremur við ástandið inn- an kristinnar kirkju heldur en utan benn- ar. Þegar hann talaði um dagana rétt fyr- ir endurkomu sína og sagði: „Vegna þess að lögmálsbrotin magnast mun kærleiki alls þorra manna kólna“, þá átti hann sér- staklega við þá, sem mundu kalla sig kristna, undanfarandi setningar sýna það ljóslega. Þegar lærisveinar hans ættu ein- mitt að leggja áherzlu á hlýðni við 10 boðorðin, þá mundu þeir vanrækja þau. Þetta ástand lá svo þungt á hjarta frelsarans að hann varaði menn aftur og aftur við andlegri afturför. Við eitt tæki- færi sagði hann: „Ekki mun hver sá er við mig segir Herra Herra, ganga inn í himnaríki, heldur sá er gjörir vilja föður míns sem er á himnum. Margir munu segja við mig á þeim degi: Herra herra, höfum vér ekki spáð með þínu nafni, og höfum vér ekki rekið út illa anda með þínu nafni, og höfum vér ekki gjört mörg kraftaverk með þínu nafni. Og þá mun ég segja þeim afdráttarlaust: Aldrei þekkti ég yður, farið frá mér þér sem fremjið lögmálsbrot“. Takið eftir að Jesús segir: „Á þeim degi“, það er við endurkomu hans, þá munu margir sem bera kristið nafn segja: „Herra, herra“, en slík játning nægir ekki. Það sem allt ríður á, að því er Jesús segir er að vér gjörum vilja föðursins á himn- um. Hvað er Guðs vilji? Vér lesum í Sálm. 40:7—8. „Þá mælti ég sjá ég kem. í bókrollunni eru mér reglur settar. Að gjöra vilja þinn Guð minn er mér yndi, og lögmál þitt er hið innra í mér“. Jesús áleit hlýðni alveg nauðsynlega, ekkert annað getur komið í stað hennar. Nútíðar kristnidómur heldur fram spá- dómunum og leggur áherzlu á siðferðis- legar framfarir og betra félagslíf. En eru menn ámintir um hlýðni við 10 boðorðin eins og ætti að vera? Kristna kirkjan á vorum dögum hefir gjört miklar endurbætur á félagslífinu, það er gott og lofsvert, en það er ekki nóg. Það er ekki helzta markmið kristn- innar, heldur hitt að hver einstaklingur

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.