Stjarnan - 01.07.1949, Blaðsíða 5
STJARNAN
53
lagi líf sitt þannig að það verði í fullu
samrærnj við Guðs vilja eins og hann er
látinn í ljósi í 10 boðorðunum.
Jesús viðurkennir að kristna kirkjan
hefir starfað í nafni hans, stundað heima-
trúboð, heiðingjatrúboð, byggt líknarstofn
anir, skóla, sjúkrahús og fleira. Þetta er
allt lofsvert og gott, eh það er ekki aðal-
atriðið. Kirkjan getur starfað að öllu þessu
en þó heyrt sagt til sín: „Aldrei þekkti ég
yður, farið frá mér þér sem fremjið lög-
málsbrot“.
Þessí orð: „Aldrei þekkti ég yður“,
verða mjög áhrifamikil og alvarleg, ef vér
lesum þau í sambandi við IJóh. 2:3.—4.
vers: „Og á því vitum vér að vér þekkjum
hann, ef vér höldum hans boðorð. Sá sem
segir, ég þekki hann, og heldur ekki boð-
orð hans er lygari og sannleikurinn er
ekki í honum“. Þetta fær enn meiri á-
herzlu þegar vér athugum orð Krists hér:
„Farið frá mér, þér sem fremjið lögmáls-
brot“. Það er sama orðið og notað er í
Matt. 24:12. „Af því lögmálsbrotin magn-
ast“. Og Jóhannes postuli notar sama orð-
ið í IJóh. 3:4., er hann segir: „Syndin er
lagábrot“.
Kristni vorra tíma þarf að athuga lexíu
þá sem Guð gaf gegnum Ezekíel spá-
mann: „Mannsins son, samlandar þínir
tala sín á milli um þig hjá veggjunum og
við húsdyrnar og segja hver við annan.
Komið og heyrið hvaða orð kemur frá
Drottni. Og þeir koma til þín í hópum
og sitja frammi fyrir þér, en þegar þeir
hafa heyrt orð þín breyta þeir ekki eftir
beim, því að lýgi er í munni þeirra, en
hjarta þeirra eltir fégróðann. Og sjá þú
ert þeim eins og ástarkvæði, eins og sá,
er hefir fagra söngrödd og vel leikur á
strengina. Þeir hlusta á orð þín en breyta
ekki eftir þeim“. Ez. 33:30—32.
Hér var farið til guðþjónustu og hlust-
að á prédikun, en það breytti ekkert þeirra
eigingjörnu lifnaðarháttum. Þeir höfðu
enga löngun til að laga líf sitt eftir Guðs
boðorðum. Þeir hlustuðu á prédikarann
aðeins sér til skemmtunar. Trúarbrögðin
hjá þeim var fallegur söngur og skemmti-
leg rödd, sem hreyf tilfinningar þeirra, en
þeir vildu ekkert hafa með áminningar til
hlýðni við Guðs heilaga lögmál. Vér er-
um í sömu hættu staddir. Jesús sá það
Spámennirnir sögðu það fyrir. Jesajas
segir: „Far nú og rita það á spjald hjá
þeim og letra það í bók, svo það á kom-
andi tímum verði til vitnisburðar ævin-
lega, því að þetta er þrjóskur lýður, lýgin
börn, börn sem eigi vilja heyra kenningu
Drottins, sem segja við sjáendur: „Þér
skuluð eigi sjá sýnir“, og við vitrana
menn: „Þér skuluð eigi birta oss sann-
leikann, sláið oss heldur gullhamra og
birtið oss blekkingar“. Jes. 30:8—10.
Einhver kom til Jesú og sagði: „Sjá,
móðir þín og bræður þínir standa fyrir
dyrum úti og vilja ná tali þínu. En hann
svaraði, hver er móðir mín og hverjir eru
bræður mínir? og hann rétti hönd sína út
yfir lærisveina sína og mælti: Sjá hér er
móðir mín og bræður mínir því sérhver
sem gjörir vilja föður míns á himnum,
hann er bróðir minn, systir og móðir“.
Matt. 12:47—50. Frelsari vor sýnir hér að
þeir sem eru honum kærastir og standa
honum næst eru þeir sem í hlýðni við
boðorð föðursins eru sameinaðir honum.
Aftur lesum vér: „En er hann var þetta
að segja, hóf kona nokkur í mannfjöld-
anum upp rödd sína og mælti við hann:
Sæll er sá kviður er þig bar og þau brjóst
er þú mylktir. En hann sagði: Já, en sælir
eru þeir, sem heyra Guðs orð og varð-
veita það“. Luk. 11:27—28.
Enginn kristinn maður getur gengið
fram hjá þessu, sem er skilyriði fyrir
lærisveins stöðunni: „Ef þér elskið mig
þá haldið þér mín boðorð“. „Ef þér haldið
mín boðorð, þá standið þér stöðugir í
elsku minni, eins og ég hefi haldið boð-
orð föður míns og stend stöðugur í elsku
hans“. Jóh. 14:15. og 15:10. W. G. Wirth.
____________________*______________
Fyrir nokkru síðan ferðaðist Anthony
Spaníella alla leið frá Corunna, Michigan
til að fœra forsetanum, Harry S. Truman
stærsta brjóstsykurkassa heimsins, 42
pund að þyngd. í honum voru allskonar
súkkul aðimolar.
♦ ♦ 4-
Nýgift hjón meðal verkalýðsins á
Spáni njóta góðs af ákvæði Francisco
Franco, sem skipar fyrir að hvert nýgift
par fái 250 dollara lán, sem á að endur-
borgast á 10 árum.