Stjarnan - 01.07.1949, Síða 6
54
STJARNAN
X
Áhrif barnsins
í einu af vesturfylkjunum býr maður,
sem allir kannast við undir nafninu „Jim
prédikari11, hann er grófgerður og líkist
ekkert því að hann sé prestur, en hann
hefir leitt marga til þekkingar á frelsar-
anum og fagnaðarboðskap hans. Fyrir 20
árum síðan var hann allt öðruvísi en hann
er nú. Hann var ómentaður maður, það
eina sem hann var æfður í og hafði áhuga
fyrir var að spila. Þá var hann kallaður
„Spila Jim“.
Einu sinni ferðaðist prestur nokkur
með konu sinni yfir Klettafjöllin. Eftir að
þau höfðu afklætt litla drenginn sinn og
komið honum í rúmið, fóru þau yfir í
vagninn sem veitti bezt útsýni til að virða
íyrir sér vetrarhimininn.
Tíminn leið fljótt. Eftir langa stund
kemur þangað maður og ávarpar fólkið
sem stóð þar í þyrpingu, presturinn á
meðal þeirra, og spyr: „Er nokkur hér
sem á dreng klœddan rauðum náttkjól,
og sem syngur eins og næturgali?“ For-
eldrarnir gáfu sig fram, sjáanlega hrædd.
En maðurinn hughreysti þau og sagði:
„Það er ekkert að honum“, en bætti svo
við hálffeiminn: „Það erum við sem eitt-
hvað er að. Ert þú ekki prestur? Dreng-
urinn hefir verið að syngja og prédika
fyrir okkur. Viltu gjöra svo vel að koma
með mér? Ekki þú, frú, drengnum er
óhætt, og presturinn kemur bráðum með
hann með sér“.
Presturinn talaði nokkur orð við konu
sína og fylgdist svo með manninum fram
í fremsta vagninn. Þeir urðu að ganga
gegnum 13 vagna áður en þeir komust
þangað. Þegar þeir opnuðu dyrnar á reyk
ingavagninum staðnæmdust þeir til að
hlusta og líta í kring um sig.
Uppi á einu borðinu stóð lítill drengur
rjóður í andliti og talaði með skýrri barns-
röddu: „Eruð þið tilbúnir? Pabbi segir að
brúðguminn sé Jesú, og hann vill að allir
séu tilbúnir þegar hann kemur, það er af
því að hann elskar ykkur alla“. Svo söng
hann sálminn sem að líkindum hefir fest
sig bezt í minni hans: „Ert þú reiðubú-
inn, ert þú reiðubúinn að mæta brúð-
gumanum þegar hann kemur?“
Hann hefir sungið þetta fyrir okkur
aftur og aftur, sagði maðurinn wð prest-
inn. „Ég stóðst það ekki lengur. Hann
sagði að þú mundir biðja fyrir okkur“.
Þegar þeir komu inn í vagninn þangað
sem drengurinn var, leit hann barnslega
en alvarlega á föður sinn og sagði: „Þá
langar til að vera viðbúnir“. Svo tók faðir-
inn hann í faðm sér og bað til Guðs eins og
hann hafði aldrei beðið áður, fyrir þess-
um mönnum sem safnast höfðu saman
kring um drenginn.
Nokkrum augnablikum seinna fór prest-
urinn með barnið yfir í svefnklefann þar
sem móðirin beið þeirra áhyggjufull. Svo
sneri hann aftur og talaði við mennina.
Fjórir þeirra höfðu þegar ásett sér að þeir
vildu vera viðbúnir þegar Jesús kemur.
Þar á meðal var auðvitað maðurinn, sem
leitaði uppi föður drengsins, „Spila Jim“.
C. O. G.
______________*______________
John Krasoveck sótti um leyfi til að
koma á fót ölsölustofu rétt hjá „Memorial
Palace Park“ í Pueblo. Næsta mánudag
eftir að umsóknin var send inn, kom sendi-
sveit með mótmæli gegn ölsölu. Það voru
30 drengir og stúlkur, sem komu með
beiðni um að ölsöluleyfið yrði ekki veitt.
Þetta var undirritað af 78 börnum. For-
maður nefndarinnar, John E. Hill, sagði
hálfspaugandi: „Þið komið með mótmæli
til borgarinnar“. Ungur drengur svaraði
hiklaust: „Við mótmælum ölsöluleyfinu,
þið takið það til greina“.
Beiðnin var orðuð þannig: „Vér börn
skattgjaldendg í nágrenni við fjórtánda
og Santa Fe mótmæíum því að nokkur fái
leyfi til að selja áfengi í nágrenni við
heimili vor. Vér álítum það skaðlegt og
hættulegt svo vér leitum aðstoðar borgar-
stjórnar til að vernda oss frá slíkri hættu,
sem áfengissalan orsakar fyrir líkamlega
og siðferðislega velferð vora“. Neðan und-
ir stóðu nöfn og utnáskriftir 78 barna í
Pueblo Colorado.
Þegar þessir drengir og stúlkur höfðu
lokið máli sínu, sem þau sjálf fluttu, eng-
ir af foreldrum þeirra voru viðstaddir, þá
var beiðninni um ölsöluleyfið kastað í
ruslakörfuna. Daníel A. Poling