Stjarnan - 01.09.1949, Page 8
72
STJARNAN
STJARNAN Authorized as second class
mail, Post Oífice Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00
a year. Publishers: The Can. Union Coníerence
of S. D. A., Oshawa, Ontario.
Ritstjðrn og afgreiðslu annast:.
MISS S. JOHNSON, Lundar, Man, Can.
hvítklæddan engil, sem hélt á stórri Biblíu
í annari hendinni og kallaði: „Jósateke“.
Jósateke leit á hann hræddur og vand-
ræðalegur. „Neyttu engrar óhreinnar fæðu
Jósateke“, sagði engillinn hárri röddu.
„Óhreina fæðu“, endurtók Jósateke.
„Hvað er óhreint?“
„Tóbak, svín, áll, skelfiskur, krabbi“,
svaraði engillinn. „Það er tími til kominn
að þú hafnir öllu óhreinu“. Svo hvarf
engillinn, en áhrifin sem Jósateke varð
fyrir voru varanleg. Rödd engilsins
hljómaði enn 1 eyrum hans: „Neyttu
engrar óhreinnar fæðu“.
Um morguninn sagði hann drauminn
vini sínum, sem hafði komið að heim-
sækja hann, og endurtók orð engilsins.
Vinur hans sagði strax. „Þetta er Að-
ventista kenning“.
„Hvað meinar þú?“ spurði Jósateke.
„Nota þeir ekki þetta?“
„Farðu og talaðu við þá“, ráðlagði vin-
ur hans. Jósateke fór strax af stað þangað,
sem útlendi trúboðinn átti heima. Þeir
töluðu saman lengi og alvarlega, og Jósa-
teke veitti nákvæma eftirtekt. „Guð hefir
kallað mig og aðvarað mig“, sagði Jósa-
teke. „Nær er næsta samkoma ykkar?“
Það hittist nú svo á, að þetta var föstu-
dagur og morguninn eftir á samkomunni
sagði Jósateke opinberlega frá áformi sínu
að gefa Guði líf sitt og sameinast hreinu
kirkjunni.
Nú er Jósateke og konan hans á Fulton
trúboðsskólanum að undirbúa sig undir
kristilegt stárf. Guð á marga slíka gim-
steina á Fijieyjunum. Biðjið fyrir starfi
voru þar. Norma I. Jakobson
______________*_______________
í árslok 1903 voru bræðurnir Wilbur
og Orville Wright þeir einu farþegar sem
nokkurn tíma höfðu ferðast með flugvél.
En árið 1948 höfðu nærri 14.000.000 Ame-
ríkumenn flogið átta biljón mílur.
Smávegis
Mrs. Dóra Keen Handy, 1 Vestur Hart-
ford, Vermont, tók sér skemtiferð með
flugvél til Belgiska Congo. Hún er 78 ára
gömul, 5 fet á hæð og 100 pund að þyngd.
En þar sem hún sagðist hljóta að eiga
skammt eftir ólifað, væri laus við gigt og
heilsugóð að öllu leyti, þá langaði hana
til að lyfta sér upp og fá að sjá krókodíla,
tígrisdýr, dverga og fjöllin í Afríku meðan
hún ennþá gæti haft nokkra ánægju af
því.
Verður mögulegt að kenna 1.200.000.000
ólæsu fólki í Asíu, Afríku og latnesku
Ameríku, þremur fimmtu af íbúum heims-
ins, að lesa sitt eigið móðurmál á næstu
tveimur árum? Dr. Frank C. Lauback upp-
eldisfræðingur og trúboði heldur það sé
mögulegt. Síðan 1915 hefir hann ferðast
meðal frumþjóðanna og fundið upp ein-
falda aðferð til að kenna 200 tungumál.
Nýlega sagði Doktorinn: „Það sem vér
ættum að gjöra er að kenna fjölda krist-
inna ungra manna og kvenna einfalda að-
ferð til að kenna lestur, og senda þau svo
til að undirbúa hina 30.000.000 innfæddu
kristnu í Asíu, Afríku og latnesku Ame-
ríku, til að verða kennarar hver hjá sinni
eigin þjóð.“
4-4-4-
Jefferson Davis West, í Mobile, Ala-
bama var 80 ára að aldri. Hann hafði verið
blindur í tvö ár. Hann sparaði hvert ein-
asta cent, sem honum var mögulegt, svo
hann gæti borgað fyrir uppskurð á aug-
unum, til að nema burt skýið af sjáaldr-
inu. Nú hafði hann sparað saman 380
dollara. Það var nærri nóg til að borga
læknishjálp, en þjófur braust inn í húsið
meðan hann svaf og stal peningunum.
Þegar fréttablöðin sögðu þessa sorgar-
fregn, þá fóru menn frá ýmsum stöðum
í Bandaríkjunum að senda peninga til
gamla mannsins, svo innan skamms hafði
hann meir en nó til að borga fyrir læknis-
hjálp. Þegar umbúðirnar voru teknar af
augum hans grét hann af gleði og þakk-
læti fyrir að hafa fengið sjónina.
4 4 4
Rússland sendir fréttir og fleira með
útvarpinu á 30 tungumálum.