Stjarnan - 01.10.1949, Page 1

Stjarnan - 01.10.1949, Page 1
STJARNAN OKTÓBER, 1949 LUNDAR, MANITOBA Syndajátning „Sá, sem felur yfirsjónir sínar, mun ei verða lánsamur, en sá, sem meðgengur þær og lætur af þeim, mun miskun hljóta.“ Skilyrðin fyrir því að öðlast náð guðs eru réttvís, einföld og sanngjörn. Drottinn heimtar ekki af oss að inna neinar þrautir af hendi til þess að geta öðlast syndafyrir- gefningu. Vér þurfum ekki að fara langar og erfiðar pílagrímsferðir eða leggja á oss meinlæti til þess að fela sálu vora guði himnanna eða bæta fyrir brot vor, en sá, sem kannast við synd sína og lætur af henni, skal miskun hljóta. Svo segir postulinn: „Játið hver fyrir öðrum yðar yfirsjónir og biðjið hver fyrir öðrum, svo að þér verðið heilbrigðir." Játið syndir yðar fyrir guði, sem einn get- ur fyrirgefið þær, og yfirsjónir yðar hver fyrir öðrum. Ef þú hefur móðgað vin þinn eða nágranna þá átt þú að játa yfirsjón þína, og er honum skylt að fyrirgefa þér fúslega. Því næst átt þú að biðja guð fyrir- gefningar, því að sá bróðir, sem þú hefur sært, heyrir guði til, og þú hefur syndgað móti skapara þínum og endurlausnara með því að vinna honum mein. Málið er lagt fyrir hinn eina sanna milligöngumann, vorn mikla æðstaprest, „sem freistað er á allan hátt eins og vor, þó án syndar“ og „sampínst getur vorum veikleika." Hann getur afmáð sérhvern ranglætis-blett. Þeir, sem ekki hafa auðmýkt sálir sínar fyrir guði, hafa eigi enn uppfyllt hið fyrsta skilyrði, sem sett er fyrir því að guð taki þá að sér. Vér höfum aldrei í sannleika sótzt eptir syndafyrirgefningu, ef vér höf- um ekki reynt það apturhvarf, sem enginn iðrast eptir, játað syndir vorar með sannri auðmýkt og sundurkrömdum anda og fengið viðbjóð á ranglæti voru. Og ef vér höfum aldrei leitað friðar guðs, þá höf- um vér aldrei fundið hann. Eina ástæðan til þess, að vér höfum ekki fengið fyrir- gefningu fyrir drýgðar syndir, er sú, að vér erum ekki fúsir til að auðmýkja hjörtu vor og laga oss eptir skilyrðum þeim, er guðs orð setur. Vér höfum fengið greini- lega fræðslu um þetta efni. Syndajátning- in á að vera hjartanleg, og ekkert má draga undan. Það á ekki að neyða syndar- ann til hennar. Það á ekki að játa syndir sínar með léttúð og kæruleysi og það á ekki að knýja þá til syndajátningar, sem ekki hafa ljósa hugmynd um hið viðbjóðs- lega eðli syndarinnar. Sú játning, sem kemur frá innsta grunni hjartans, kemst fyrir eyru hins eilífa, miskunsama guðs. Svo segir sálmaskáldið hebreska: „Drott- inn er þeim nálægur, sem hafa sundur- kramið hjarta, og frelsar þá, sem hafa nið- urbeygðan anda.“ Sönn syndajátning er ætíð sérstakleg og játar hinar einstöku syndir. Þeim getur verið þannig varið, að þær eigi að játa fyrir guði einum; þær geta verið fólgnar í yfirsjónum, sem á að játa fyrir þeim mönnum, er þær hafa orðið til tjóns; þær geta snert almenning, og þá á að kannast við þær opinberlega. En öll játning á að vera ákveðin og greinileg; þú átt að játa einmitt þær syndir, sem þú hefur gjört þig sekan í. Á dögum Samúels viku ísraelsmenn af guðs vegum. Þeir urðu að þola hinar illu afleiðingar syndarinnar, því að þeir höfðu misst trúna á guði. Þeir höfðu misst sjónar á mætti hans og speki í handleiðslu þjóðar- innar, misst traust sitt á því, að hann væri fær um að vera málsvari þeirra. Þeir gjörðust fráhverfir hinum mikla alheims- stjórnara og æsktu eptir samskonar stjórn og nágrannaþjóðirnar höfðu. Áður en þeir hlutu frið, gjörðu þeir þessa greinilegu játningu: „Vér höfum bætt þeirri vonzku ofan á allar vorar syndir, að vér höfum beiðzt konungs.“ Þeir urðu að játa sömu

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.