Stjarnan - 01.10.1949, Side 3
STJARNAN
75
VI. Þúsund ára ríkið
1. Hvaða jimm atburðir einkenna byrj-
un þúsund ára ríkisins?
Endurkoma Krists. „Sjálfur Drottinn
mun með ákalli, með höfuðengils raust og
með Guðs lúðri af himni niður stíga; og
þeir sem í Kristi eru dánir munu fyrst upp
rísa; síðan munum vér sem eftir erum lif-
andi, verða hrifnir til skýja ásamt þeim til
fundar við Drottinn í loftinu, og munum
vér síðan með Drotni vera alla tíma.“ 1
þess. 4:16.17. „Sæll og heilagur er sá, sem
hlutdeild tekur í þeirri fyrri upprisu, yfir
þeim hefir sá annar dauði ekkert vald,
heldur munu þeir vera kennimenn Guðs
og Krists og ríkja með honum í þúsund
ár.“ Op. 20:6. Þetta er upprisa réttlátra.
Hinir óguðlegu eyðileggjast. „Þá mun
hinn guðlausi koma í ljós og honum mun
Drottinn Jesús tortýna með anda síns
munns, og að engu gjöra þá hann birtist
dýrðlega í tilkomu sinni.“ 2 þess. 2:8.
Allir þeir réttlátu verða teknir til
himins. „Jesús settist til hægri handar
guðlegri hátign á hæðum, eftir það hann
fyrir sjálfan sig með dauða sínum, hafði
hreinsað oss frá syndunum.“ Hebr. 1:3.
„Þá mun ég koma aftur og taka yður til
mín, svo að þér séuð þar sem ég er.“
Satan verður bundinn. Öll Guðs börn
vera komin til himins. Allir þeir óguðlegu
liggja dauðir, svo satan hefir ekkert að
hafast að. Hann er bundinn af þessum
kringustæðum í þúsund ár. „Hann tók
drekann, þann gamla höggorm, sem er
djöfull og satan, og batt hann um þúsund
ár.“ Op. 20:2.
2. Hvað verður ástand jarðarinnar
gegn um þúsund árin?
Jörðin verður myrk og í eyði. „Ég lít
á jörðina, sjá, hún er í eyði og tóm, og til
himins, og ekkert ljós er á honum. Ég lít
til fallanna, og sjá þau bifast, og allar hæð-
ir ruggast. Ég litast um og sjá, þar er enginn
maður, og allir fuglar himinsins eru burt
fældir. Ég lít í kring um mig, og Karmel-
fjall er eyðilagt og allir þess staðir niður
brotnir fyrir augliti Drottins, fyrir hans
brennandi reiði.“ Jer. 4:23—26.
Óguðlegir allir dauðir. „Þeir sem Drott-
inn hefir að velli lagt liggja á þeim sama
tíma frá einum enda jarðarinnar til ann-
ars, þeir eru ekki harmaðir, ekki burt
dregnir, og ekki verða þeir jarðaðir, að
áburð á vellinum verða þeir.“ Jer. 25:33.
Enginn er til að syrgja þá né jarða.
Satan er bundinn. Hann hefir ekkert
að gjöra. '
Hinir réttlátu ríkja með Kristi og hafa
dómsvald með honum. „Þá sá ég hásæti,
þeim sem á þeim sátu var gefið dómsvald.
Líka sá ég sálir þeirra, sem höfðu verið
hálshögnir fyrir vitnisburð Jesú og orð
Guðs, og þeirra sem ekki höfðu tilbeðið
dýrið eða þess líkneskju og ekki höfðu
þess merki á enni sér eða hendi. Þeir lifðu
og ríktu með Kristi í þúsund ár.“ Op. 20:4.
„Hver yðar getur fengið það af sér, ef
hann hefir mál öðrum á móti, að láta það
koma undir dóm heiðinna, en ekki heldur
undir dóm heilagra? Vitið þér ekki að
hinir heilögu munu heiminn dæma. Ef
heimurinn verður af yður dæmdur, eruð
þér þá óverðugir að dæma í mihstu mál-
um? Vitið þér ekki að vér munum englana
dæma, því þá ekki hið tímanlega?
1 Kor. 6:1—3.
3. Hvað mun eiga sér stað við lok þús-
und ára ríkisins?
Hinir óguðlegu verða reistir upp. (Þeir
sem ekki risu upp í fyrri upprisunni).
„En aðrir dauðir lifnuðu ekki fyr en þau
þúsund ár voru liðin.“ Op. 20:5.
Satan verður leystur úr jangelsinu.
Hann fær tækifæri til að hafast eitthvað
að. „Þá mun hann ganga út til að afvega-
leiða þjóðirnar." Op. 20:8.
Borgin helga kemur niður jrá himni.
„Ég sá nýjan himin og nýja jörð . . . Ég sá
borgina helgu, þá nýju Jerúsalem stíga
niður af himni frá Guði, búna sem brúði
er skartar fyrir manni ,sínum.“ Op. 21:1—2.
Satan sajnar hinum óguðlegu til að um-
kringja borgina helgu. „Þeir fóru upp á
flatlendið og umkringdu herbúðir heil-
agra og þá elskuðu borg en þá fór eldur
af himni ofan og eyddi þeim.
Guð skapar nýjan himin og nýja jörð.
„En eftir hans fyrir heiti væntum vér nýs
himins og nýrrar jarðar þar sem réttlætið
mun búa.“' 2 Pét. 3:13.
4. Hverjir munu já inngang í borgina
og erja nýju jörðina?
Guðs fólk. „Ég heyrði mikla rödd af