Stjarnan - 01.10.1949, Blaðsíða 6

Stjarnan - 01.10.1949, Blaðsíða 6
78 STJAKNAN Texti handa þér Guð hefir texta handa þér í sinni heilögu bók, boðskap frá himnum til að mæta þörfum þínum í dag. Hvernig getur þú fundið þennan téxta? Þegar þú fer í búð þá lítur þú yfir það sem er í hyllun- um. Þar er margt nytsamt, en þú veitir því litla eftirtekt. Þú vilt finna einmitt það sem þú þarfnast í dag. Þannig er það einn- ig með Biblíu þína, þú þarft að finna það sem þér ríður mest á að fá í dag. Vel hvaða bók í Biblíunni sem þú vilt, les hana með eftirtekt. Þú finnur ef til vill það sem mætir þörfum þínum áður en þú hefir lesið hálfa blaðsíðu. Eða þú verður að lesa einn eða tvo kapítula. Bið Guð að tala til hjarta þíns og láta þig finna það sem þú þarfnast. Hann mun bæn- heyra þig. Þegar þú hefir fundið textann þá lærðu hann utanbókar. Endurtaktu hann aftur og aftur með sjálfum þér yfir daginn. Hugsaðu um hann, segðu vinum þínum frá honum. Svo á morgun leitaðu að öðrum gimsteini og notaðu hann á samahátt. Það er dásamlegt hvernig Guð með orði sínu hughreystir og hjálpar oss. Ef vér erum niðurbeygðir og kjarklitlir er það þá ekki hughreystandi að vita að „Alt megna ég fyrir hans hjálp, sem mig styrkan gjörir.“ Fil. 4:13. Annar dagur getur flutt þér áminningu til dæmis: „Sá, sem hefir þessa heims auð- æfi og sér bróður sinn líða neyð og aftur- lykur hjarta sínu fyrir honum, hvernig getur elskan til Guðs verið staðföst með honum.“ 1 Jóh. 3:17. Næst getur komið fullvissan um von Guðs barna: „Guð mun þerra hvert tár af augum þeirra, dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur, vein né mæða mun framar til vera, því hið fyrra er farið.“ Op. 21:4. Þegar þú hefir fundið texta sem hugs- valar hjarta þínu, þá hneig höfuð þitt og þakka Guði fyrir að leiðbeina þér. Vera má þú finnir texta sem nær langt út yfir daginn, og verður leiðarstjarna þín alt í gegn um lífið. Charles Spurgeon var leiddur til að helga Guði líf sitt, þegar hann sem drengur heyrði Jes, 45:22: „Snúið yður til mín og látið frelsast, þér gjörvöll endi- mörk jarðarinnar.“ í 31 ár hafði hann 5 þúsund áheyrendur tvisvar í viku í sömu kirkjunni. Hann áleit að framgangur starfs hans hefði bygst á hugsjón þeirri, sem hann öðlaðist þegar hann heyrði þennan texta lesinn. Davíð Livingstone fór til Afríku sem brautryðjandi trúboði. Að minsta kosti 30 sinnum veiktist hann af hitasótt. Ljón knúsaði annan handlegg hans. Innfæddu mennirnir voru honum oft óvinveittir. Konan hans dó. Takið eftir hvað Living- stone sagði: „Langar þig til að vita hvað hélt mér uppi í öll þessi ár í útlegðinni, hjá fólki hvers tungumál ég skildi ekki, sem ég gat aldrei treyst, og sem oft var mér óvin- veitt? Það var þetta loforð: „Sjá, ég er með yður alla daga, alt til veraldarinnar enda.“ Matt. 28:20. Þegar Livingstone fann þennan texta, þá fann hann það sem nægði honum, ekki aðeins fyrir yfirstandandi dag, heldur fyrir alt lífið. N. F. Pease -------------*------------- Lífsins Ijósið í bókinni „Fleiri og fleiri bæði heima og í öðrum löndum, að því er skýrslur sýna, hafa nú farið að lesa Biblíuna til að leita sér hjálp- ar og huggunar.“ í þessum truflaða heimi getur Biblían sýnt þeim veginn sem sækjast eftir ljósi og leiðbeiningu. Miljónir manna hafa þrá og löngun eftir þeirri hjálp og hugsvölun, sem Guðs orð hefir að geyma. 1 Biblíunni finna menn og konur svar upp á vanda- mál sín, ljós í myrkrinu og frið fyrir sitt órólega hjarta. Biblían gefur manni þá bestu leiðbein- ingu sem hægt er að fá. „Þinna orða út- skýring upplýsir og gjörir þá einföldu vísa.“ Sálm. 119:130. Vér verðum að lesa bókina meir en vér gjörum til þess ljós hennar geti skinið. Ég hugsa öll heimili í landinu hafi Biblíu, en hversu fáir þeir eru sem með bæn til Guðs lesa hana til að fá persónulega hjálp, ljós og leiðbeiningu. „Hver sem les Biblíuna með bæn til Guðs, og löngun eftir að þekkja sannleikann til að geta fylgt honum, mun öðlast guðlega leiðbeiningu.“

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.