Stjarnan - 01.10.1949, Blaðsíða 7

Stjarnan - 01.10.1949, Blaðsíða 7
STJARNAN 79 Það er ekki aðal atriði hve mikið vér lesum, heldur hve vel vér lesum. Ef vér eigum að hafa verulegt gagn af Biblíu- lestrinum, þá þurfum vér að hugsa um hvað það meinar sem vér lesum, og hvað það kennir oss. Vér eigum að lesa Biblíuna með það takmark fyrir augum að þroska guðrækilegt líferni. Vér þurfum að læra að 'hlýða skipunum hennar, og nota okkur af fyrirheitum hennar. Þetta er eini vegur- inn til að geta skilið breidd, lengd, dýpt og hæð hreinleikans og friðarins, sem orðið hefir að geyma. Því meir sem vér lesum og hugleiðum orðið, því skærara mun ljós þess skína fyrir oss, og veita oss óumræðilegan frið og öruggleik. Engin nýtízku uppfynding getur komið í stað Biblíunnar. Vér þurfum nú, fremur en nokkru sinni fyr leiðarljós til að lýsa oss gegn um myrkur, óreiðu og ang- ist þá sem nú grúfir yfir heiminum. Vís- indamenn vorra tíma geta ekki framleitt slíkt ljós. Guðs orð er hið eina örugga, áreiðanlega ljós, sem getur lýst oss gegn um komandi daga. Það er dimman sem gjörir ljósið svo velkomið og ómissandi. Það er einmitt í skugganum sem þetta blessaða Guðs ljós lýsir með himneskri birtu. Sælir eru þeir sem hafa reynslu fyrir þessu. Margar bæk- ur hafa verið ritaðar um Krist og Biblíuna, en það er bókin sjálf, sem veitir hinum þreytta ljós og styrk, og 'hinum óttaslegna frið og öryggi. Tökum til dæmis 23. sálm Davíðs og 14. til 17. kaítula í Jóhannesar Guðspjalli. Ég hef einhverstaðar lesið að Alexander mikli hafi sofið með skáldskap Homers undir koddanum. Jafnvel hinn mikli sigur- vegari þurfti eitthvað annað en vopn og hermenn. Vér þurfum þess líka. Vér þurf- um hugsjón að lifa fyrir. Vér þurfum ljós og leiðbeiningu. Vér þurfum tryggingu, eitthvað sem vér getum reitt oss á. Vor himneski faðir vissi þetta frá öndverðu, og sá oss fyrir því sem mætt gæti þörf vorri. Hans heilaga orð veitir oss einmitt alt sem vér þurfum. Lesum því Bókina, íhugum það, sem vér lesum, og fylgjum leiðbein- ingum hennar. Það er vegurinn til friðar og sannrar, varanlegrar hamingju. Ernesi Lloyd Kraftverk nútímans Ef þú hefðir heimsótt þorp nokkurt á Nýju Guineu fyrir fáum árum síðan, þá hefðir þú að líkindum mætt þar ungum inn fæddum manni, sem varði öllum tíma sín- um til að fylgja heiðnum siðum og veiða menn. Kristniboði kom til þorpsins og boð- skapur hans hreif hjarta unga mannsins, svo hann ásetti sér að ganga á trúboðskóla vorn. Bæði vinir hans og óvinir hentu gaman að því að Fiole skyldi ætla sér að ganga á skóla, en hann lét það ekki hindra sig. Hann var nógu lengi á skólanum til að sýna að líf hans var gjörbreytt. Hann lagði niður alla heiðna siði og gjörðist starfsmaður Guðs ríkis, og ferðaðist nú fram og aftur um héraðið til að prédika fagnaðar erindið, þar sem hann áður hafði verið á mannaveiðum. Nú bar svo til í einu þorpi í nágrenninu að fólkið misti höfðingja sinn. Það kendi Fiole um að hann hefði með einhverju töfraafli orsakað dauða höfðingjans, svo þeir voru alráðnir í að drepa Fiole. En þeir komu því aldrei í framkvæmd. Nokkru seinna mætti trúboðinn C. E. Mitchell formanni flokksins, sem ætlaði að drepa Fiole og spurði hvort það væri satt að þeir hefðu ásett sér að drepa Fiole. „Já,“ svaraði foringinn, „og við hefðum gjört það hefðir ekki þú og hinir trúboðarn- ir komið og safnast umhverfis hann.“ „Ég var ekki hjá Fiole í þorpinu, ég var heima á minni trúboðstöð, og það er þriggja daga ferð á milli.“ „Víst varst þú þar “ sagði maðurinn „Ég sá þig sjálfur, og hina trúboðana með þér.“ Vér verðum að trúa því sem Fiole sjálf- ur er líka sannfærður um, að sá Guð, sem frelsaði hann frá myrkri heiðninnar og gaf honum nýtt hjarta, sendi engla sína honum til verndar þegar líf hans var í hættu.“ L.E.C, _____________*_____________ Mér er ekkert áhugamál að Guð sé mín megin, en ég vona og bið án ajfláts að ég megi finnast Guðs megin. —Abraham Lincoln

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.