Stjarnan - 01.10.1949, Qupperneq 8

Stjarnan - 01.10.1949, Qupperneq 8
80 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ontario. Ritstjórn og afgreiðslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man„ Can. „Ég hef séð hann“. „Hefir þú nokkurn tíma heyrt gleði- boðskapinn?“ spurði trúboðinn Kínverja nokkurn. „Nei. En ég hef séð hann“, svaraði Kín- verjinn. „Ég þekki mann, sem allir í byggð inni voru hræddir við. Hann var stundum alveg eins og villidýr. Hann reykti líka ópíum. Þegar hann tók trú á Jesúm breytt ist hann algjörlega. Nú er hann auðmjúk- ur, aldrei vondur, og hann hefir hætt að reykja ópíum. Af þessu get ég séð að kristna trúin er góð“. C. O. G. ______________*______________ Enskur lyfsali hefir fundið upp bragð- gott meðal til þess að þvo innan munn- inn, sem hann ábyrgist að lækni og útiloki löngun manna í tóbak. Þegar maður eftir að nota þetta meðal, kveikir í pípu, vindil eða vindlingi þá kemur svo voðalega vont bragð í munninn. Þessi lækning endist um fjóra klukkutíma og hvað hafa reynst vel til að hjálpa mönnum að hætta að reykja. ------------*------------ Guð elskaði svo heiminn að hann gaf son sinn til að frelsa hann. Guðs börn elska frelsara sinn, svo þau skoða það einkarétt- indi sín að gefa til eflingar hans ríkis, ekki eingungis tíund af tekjum sínum heldur alí sem þau geta sparað. Þau vita að þeir sem leita fyrst Guðs ríkis fá allar nauð- synjar lífsins í viðbót. Lúk. 6:33. ______________*______________ Sjöunda dags Aðventistar áforma þenn- an og næsta mánuð að skjóta saman 425 þúsund dollurum eða þar yfir, 200 þúsund eiga að fara til að byggja upp trúboðs og líknarstarf þeirra þar sem þörfin er mest, en 225 þúsund eiga að fara til að bæta úr hungursneyð og klæðleysi í Evrópu. Það er hugrekki sem heimurinn þarfn- ast, en ekki óskeikulleiki. —Wilfred Greenfell ♦ ♦ ♦ „Ekkert nema það besta sem hægt er að gjöra, er nógu vel gjört. —W. Carson ♦ ♦ ♦ Flestir skug'gar í lífi voru orsakast af því að vér sjálfir skyggjum á sólina. —R. W. Emerson _____________*______________ Smávegis Sagt er að rottur eyðileggi tveggja bil- jón dollara virði árlega í Bandaríkjunum. Helmingurinn af því matvörur. ♦ ♦ ♦ Congregational kirkjufélagið hefir fleiri safnaða meðlimi beldur en nokkur önnur mótmælenda kirkja — 19,229,571. -♦ ♦ ♦ Leonardo da Vinci málaði hið fræga listaverk sitt, Mona Lisa, með vinstri hend- inni. ♦ ♦ ♦ Hve mikið af varalit étur kvennmaður að meðaltali sem málar varir sínar? Betty Van Gasse, sem ferðast fyrir andlitsfegurð- ar vöru félag segir það nemi um 9 stengur af varalit á ári, eða þar yfir. ♦ ♦ ♦ Fjörutíu og tvö hundruðustu af bænda- býlum í Ameríku hafa nú talsíma. ♦ ♦ ♦ Evrópa hefir um einn sextánda af land- svæði heimsins, en þar býr einn fjórði hluti mannkynsins. ♦ ♦ ♦ Forseti Bandaríkjanna þarf ekki vega- bréf þegar hann heimsækir 'önnur ríki. ♦ ♦ ♦ Pravda, dagblað Communista í Moskva áætlar að nemenda fjöldi í öllum skólum þeirra séu als um 34,500,000. ♦ ♦ ♦ Meðan Rússar hindruðu samgöngur við Berlín þá fluttu enskir og Ameriskir flug- menn inn allar nauðsynjar, matvæli og eldivið, auk þessa fluttu þeir út verk- smiðjuvörur upp á 14 miljón dollara.

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.