Stjarnan - 01.11.1949, Page 2
82
STJARNAJM
við hann. Og þegar vér höfum hugann
fastan á honum munum vér gleyma sjálf-
um oss. Kærleikurinn til Krists verður þá
rót allra verka vorra. Þeir, sem finna að
þeir eru knúðir af kærleika guðs, munu
ekki spyrja um það, hvað þeir geti komizt
af með minnst til þess að uppfylla kröfur
hans. Þeir munu ekki spyrja hvað sé það
minnsta, sem er heimtað, heldur munu
þeir leitast við að komast í fulla'samhljóð-
un við vilja frelsara síns. Þeir munu fela
honum allt með innilegri þrá til hans og
sýna áhuga, sem er samboðinn því háleita
takmarki, sem þeir leitast við að ná. Það
er hégómamál að segjast tilheyra Kristi,
ef þessi innilegi kærleikur er ekki fyrir
hendi. Það er eintómt form; það er þungur
þrældómur.
Finnst þér það vera of stór fórn að fela
allt Kristi á hönd? Spurðu sjálfan þig að
þessari spurningu: Hvað hefur Kristur
gjört fyrir mig? Guðs sonur gaf allt; —
hann sýndi kærleika, leið pínu og lét líf
sitt til þess að vér yrðum endurleystir.
Getur það verið mögulegt, að vér sem
erum svo óverðugir þessa mikla kærleika,
viljum halda hjörtum vorum íjarlægum
honum? Vér höfum notið blessunar hans
náðar á hverju augnabliki æfi vorrar; fyrir
því getur oss eigi skilizt til fulls, hversu
mikið það vanþekkingar og eymdardjúp
er, sem vér höfum verið frelsaðir úr. Get-
um vér virt hann, sem stunginn var vegna
vorra synda, fyrir oss og haldið þó áfram
að lítilsvirða kærleika hans og fórn? Þeg-
ar vér hugleiðum það hversu djúpt drott-
inn dýrðarinnar lítillækkaði sig, höfum
vér þá rétt til að mögla af því að oss er ekki
auðið að öðlast inngang til lífsins, án þess
að heyja stranga baráttu og lítillækka
sjálfa oss?
Mörg stærilát hjörtu spyrja á þessa
leið: Hvers vegna á ég að vera að iðrast
og lítillækka mig áður en ég veit með
vissu að guð muni veita mér viðtöku?
Þeim, sem svo spyrja, vísa ég til Krists.
Hann var syndlaus og meira en það; hann
var höfðingi himinsins, en hann þoldi
sömu kjör og syndari vegna mannanna.
Hann „var með illræðismönnum talinn“;
„hann bar margra syndir, og bað fyrir af-
brotamönnum“.
En hvað er það þá, sem vér látum af
hendi, þegar vér fáum honum allt, sem
vér höfum? — Það er hjarta syndum
saurgað, er Jesús verður að þvo í blóði
sjálfs síns og frelsa vegna síns óviðjafn-
anlega kærleika. Og þó finnst mönnum
það hart að láta allt af hendi. Ég blygðast
mín fyrir að heyra slík orð; ég blygðast
mín fyrir að skrifa þau.
Guð heimtar ekki að við látum neitt
það af hendi, er oss má vera gagn að.
Hann hefur farsæld barna sinna hvívetna
fyrir augum. Ég vildi óska, að öllum þeim,
er ekki hafa valið Krist fyrir frelsara, gæti
skilizt, að það, sem hann býður þeim, er
óendanlega betra en það, sem þeir sækj-
ast sjálfir eftir. Mennirnir vinna sálum
sjálfra sín hið mesta ógagn og fremja hina
mestu rangsleitni gagnvart þeim, þegar
þeir hugsa og breyta svo, sem gagnstætt
er vilja guðs. Það er enga sanna gleði að
finna á þeim vegum, sem hann hefur bann-
að að ganga, því að hann veit, hvað bezt
er, og hagar öllu svo, sem skepnum hans
má bezt henta. Vegur afbrotanna er veg-
ur eymda og eyðileggingar.
Það er mikill misskilningur að ætla,
að guði sé ánægja að því, að sjá að börn
hans eigi við illt að búa. Öllum íbúum
himinsins er annt um farsæld mannanna.
Faðir vor á himnum varnar eigi neinni
af skepnum sínum gleðinnar. Boðorð guðs
krefja þess að vér forðumst þær nautnir,
sem valda þjáningum og vonbrigðum og
útiloka oss frá hamingjunni og himnaríki.
Endurlausnari heimsins tekur mennina að
sér eins og þeir eru, þrátt fyrir alla þeirra
bresti, ófullkomleika og veikleika. Og
hann vill ekki aðeins þvo burtu syndina og
endurleysa oss með blóði sínu; hann vill
einnig fullnægja þrá allra þeirra, sem bera
hans ok og taka byrði hans sér á herðar.
Það er tilætlun hans að veita öllum þeim
frið og hvíld, sem koma til hans til þess
að öðlast lífsins brauð. Hann krefst þess
eins, að vér innum af hendi þær skyldur,
er veita oss hlutdeild í þessari himnesku
blessun, sem hinum óhlýðnu getur aldrei
hlotnast. Hið sanna farsældarlíf sálarinn-
ar er í því fólgið, að Kristur fái bústað í
hjartanu; hann sem er „von dýrðarinnar“.
Margir spyrja: Hvernig á ég að fela
mig guði á hönd? Þú vilt fela þig honum,
en siðferðisþrek þitt er lítið. Þú ert í