Stjarnan - 01.11.1949, Síða 6

Stjarnan - 01.11.1949, Síða 6
86 STJAKNAN Hvað er vinur? Þeir sátu í sandinum á sjávarströndinni og töluðu um vináttu og vini. „Vinur er gimsteinn sem lýsir bezt í dimmu mótlætisins", sagði falleg ung stúlka. „Vinur er bók“, sagði blaðstjórinn, „bók full af samhygð, venjulega í léreftsbandi, en stöku sinnum í silkibandi“. „Vinur er sem hlekkur úr gulli í keðju lífsins“, sagði gimsteinasalinn. „Vinur er plástur til að græða sár mót- lætisins“, sagði læknirinn. „Vinur“, sagði sorgbitin kona, „er sá sem fyrst kemur inn þegar allir hafa snúið baki við þér“. í þessum eigingjarna spilta heimi er sönn vinátta fremur sjaldgæf. Menn reyna að vinna vináttu annara til að njóta hylli, hjálpar, eða meira álits. „Það sem kallað er vinátta“, segir La Rochefoucauld, er að gjöra hver öðrum einhvern greiða, en að jafnaði er slík vinátta bygð á von um eigin hagnað. Aðferðin til að afla sér vina og hafa áhrif á aðra er viðskiptamanna viska, en það er ekki hin sanna vinátta. „Vinur- inn elskar ætíð, en sem bróðir fæðist hann til liðs í nauðum“. Orðsk. 17:17.; þetta er skoðun hins vitra á vináttunni. Vinátta verður að vera óeigingjörn, annars er það ekki sönn vinátta. Slík vin- átta hlýtur verðlaun, en menn mega ekki sýna vináttu til að vænta verðlaunanna, því þá yrðu þau eins óhöndlandi eins og gullfatan í dæmisögunni, við enda regn- bogans. Vinátta er þess eðlis að hún framleiðir hið bezta í fari voru. Vér væntum hins bezta frá vinum vorum, en svo ná þeir ekki því takmarki sem vér væntum eftir. Hver er þá árangurinn? Vonbrigði? Vin- átturof? Nei. Ekki ef vér minnumst þess sem sagt er um vináttuna í Préd. 4:9.—10. „Betri eru tveir en einn.... falli annar getur hinn reist félaga sinn á fætur, en vei ein- stæðingnum, sem fellur og enginn annar er til að reisá á fætur“. Blessaður sé sá vinur sem er fús til að lyfta öðrum þegar hann fellur. Flestir þurfa að eiga marga vini. Það er minni hætta á vonbrigðum ef vér skilj- um að jafnvel beztu vinir vorir hafa mis- munandi eiginleika. Einhver hefir líkt vini við sjaldgæfa bók, aðeins eitt bindi. Vér getum ekki vænt þess að fáir einstakl- ingar séu eins og heilt bókasafn. Bezt er að hafa marga vini, meta mikils hvern nýjan vin, en gleyma ekki fyrri vinum né vanrækja þá. Eins og bókasafn sem samanstendur af úrvalsbókum, ættum vér að meta gamla, reynda vini vora. Það eru of margir sem keppast eftir að eignast vini, fremur en að vera vinur ann- ara. Vér mættum allir biðja eins og St. Fracis af Assissi bað: „Guðdómlegi herra, leyfðu að ég sækist meira eftir að hug- hreysta aðra heldur en að fá hughreyst- ingu hjá þeim, hjálpaðu mér fremur til að skilja aðra, heldur en að láta þá skilja mig, að elska þá fremur en að sækjast eftir elsku þeirra, að gefa þeim heldur en þiggja af þeim“. Þegar vér fyrirgefum verður oss fyrirgefið. Alstaðar er fólk sem þarfnast vináttu vorrar. Þegar vér fyrst höfum fengið skilning á hve innilegan fögnuð það veitir að sýna öðrum vináttu þá munum vér ósjálfrátt öðlast vini. Vinátta kostar nokkuð. Ef þú ert nógu göfuglyndur til að láta aðra njóta með þér, beztu hugsana þinna, mestu ánægju- stunda þinna, og getur tekið vingjarnlega ef fundið er að við þig, eða sett út á hjá þér, því sannir vinir eru sjaldan Já-bræð- ur, ef þú getur brosað og umborið þegar vinir bregðast vonum þínum, þá hefir þú mikið vald og eignast marga vini. C. O. G. __________________*_____________ Guðdómlegur huggari Litla frænka mín var aðeins farin að ganga. Hún kom út úr eldhúsinu inn í stofuna, þaðan fór hún út á stíginn á flöt- inni þar sem blómin á báðar hliðar voru eins há og hún sjálf. Einn daginn heyrðist óp mikið, svo móðirinn fór í flýti út á stíginn. Jeanne hafði dottið og meitt sig lítið eitt á hnján- um og höndunum. Móðirin tók hana strax í faðm sér og læknaði meiðslin eftir þörf- um, svo settist hún í stóra ruggustólinn á veggsvölunum með litlu stúlkuna sem enn- þá var grátandi og söng lágt og rólega fyr- ir hana. Innan skams hætti gráturinn og Jeanne sofnaði undir áhrifum ástar og um- hyggju móðurinnar.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.