Stjarnan - 01.01.1950, Side 1

Stjarnan - 01.01.1950, Side 1
STJARNAN JANÚAR, 1950 LUNDAR, MANITOBA Gleðilegt nýár 1950 „Gleðjið yður ávalt í Drotni, og enn aft- ur segi ég gleðjið yður“. Hvað höfum vér að gleðjast yfir? kann einhver að spyrja. Ó, það er svo margt, já alveg óteljandi. Lífið er Guðs óverðskuldaða náðargjöf. Heil- brigði, ástvinir, heimili og aðrar nauð- synjar lífsins, alt þetta eru blessunarríkar náðargjafir Drottins, sem vér ættum dag- lega að þakka honum fyrir. Vér búum í landi þar sem vér njótum friðar og frjáls- ræðis, það er ómetanleg blessun. Hversu hjartanlega og óaflátanlega ættum vér ekki að þakka Guði fyrir það. Nú er enn að minnast þess dýrmætasta og dásamlegasta, sem oss hefir hlotnast, sem er eilíft líf í Jesú Kristi Drotni vor- um, „því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf sinn eingetinn Son til þess að hver sem á hann trúir ekki glatist heldur hafi eilíft líf“. Konungur konunganna kom í heim- inn til að deyja fyrir syndir vorar og kenna okkur að lifa þannig að vér mætt- um finnast verðugir fyrir samfélag hei- lagra í komandi heimi. Guð gaf okkur Son- inn og í honum og fyrir hann eilíft líf í dýrð með .Guði fyrir alla þá, sem á hann trúa og honum fylgja. Og meðan vér bíð- um hins komanda ríkis höfum vér barna- rétt hjá Guði fyrir Jesúm Krist. Jesús hefir lofað að vera með okkur alla daga alt til veraldarinnar enda, og hann hefir alt vald á himni og jörð. Hverju höfum vér þá að kvíða? Engu. Hvað höfum vér þá að kvarta um? Ekkert. Ef vér finnum þörf fyrir eitthvað, annað hvort í tíman- legum eða andlegum efnum, þá biðjum um það. „Biðjið og yður mun gefast“. „Hvers, sem þér biðjið í mínu nafni það mun ég veita, svo Faðirinn vegsamist fyr- ir Soninn“. Jóh. 14:13. „Ef þér eruð stöðugir í mér og mín orð hafa stað hjá yður, þá megið þér biðja hvers þér viljið og það mun yður veitast“. Jóh. 15:2. Biðjum Guð um varðveizlu hans og leiðbeiningu fyrir hvern nýjan dag. Lif- um stöðugu bænalífi, þá munum vér öðlast kraft til að sigra allar freistingar sem vér mætum. Vöxum í náð og þekkingu Drott- ins vors og frelsara Jesú Krists. Lesum orð hans daglega og biðjum án afláts bæði fyrir sjálfum oss og öðrum. Helgum Guði líf vort, tíma vorn, fé og krafta. Tölum við hann um alt, sem okkur liggur á hjarta. Treystum honum eins og góð börn elskandi föður. Hann bæði vill og getur hjálpað okkur undir öllum kringum- stæðum lífsins. Ef vér fylgjum þessari stefnu þá lifum vér í stöðugu samfélagi við Drottinn vorn Jesúm Krist og friður og fögnuður heilags anda fyllir hjörtu vor, og sönn hamingja verður hlutskipti vort fyrir tíma og eilífð. Trygging fyrir hamingjusömu lífi hér, og eilífu lífi í Guðs dýrðarríki: „Verið ávalt glaðir vegna samfélagsins við Drottinn. Eg segi aftur: verið glaðir. Ljúflyndi yðar verði öllum kunnugt. Drottinn er í nánd. Verið ekki hugsjúkir um neitt heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni ásamt þakkar- gjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og husganir í samfélaginU við Krist Jesúm. Að endingu bræður, alt sem er satt, alt sem er sómasamlegt, alt sem er rétt, allt sem er hreint, allt sem er elskuvert, allt sem er gott afspurnar, hvað, sem er dygð, og hvað sem, er lofsvert, hugfestið það.“ Fil. 4:4—8. Guð gefi ykkur öllum gleðilegt ár í S. Johnson

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.