Stjarnan - 01.01.1950, Blaðsíða 5
STJARNAN
5
Þetta var sérstakur boðskapur fyrir ákveð-
inn tíma og pláss. Frelsun eða eyðilegg-
ing borgarbúa var undir því komin hvort
þeir gæfu gaum að boðskapnum eða höfn-
uðu honum.
„Ninive borgarmenn hlýddu Guði,
kunngjörðu föstuhald, og klæddu sig í
sorgarbúning, bæði ungir og gamlir . . . .
En er Guð sá breytni þeirra, að þeir létu
af sínu vonda athæfi, þá lét Guð hjá líða
þá hegningu, er hann hafði hótað þeim
og lét hana ekki fram koma. (Jóna 3:5.—
10.).
Ef menn fyrir flóðið hefðu snúið sér
við prédikun Nóa, eins og Ninive borgar-
menn gjörðu við aðvörun Jónasar, þá hefði
Guð hlíft þeim. Af þessum dæmum má
sjá hve áríðandi það er að gefa gaum að
þeim boðskap, sem Guð sendir fólki fyrir
það tímabil er það lifir á.
Þegar Jesús kom í heiminn sendi Guð
sérstakan boðskap til fólksins. Það voru
gleðitíðindin um frelsara heimsins. „Mað-
ur nokkur var sendur af Guði, hann hét
Jóhannes. Maður þessi kom til vitnisburð-
ar til að vitna um ljósið, svo allir tryðu
fyrir hans vitnisburð“. Jóh. 1:6.—7.
Þegar Jóhannes var spurður um hver
hann væri svaraði hann: „Ég er rödd þess,
sem hrópar í eyðimörku: Gjörið beinan
veg Drottins eins og Jesajas spámaður hef-
ir sagt“. Vers 23.
Ritningin bendir á að rétt áður en
Jesús kemur aftur, mun Guð senda boð-
skap um nálægð komu hans, og hvetja
menn að undirbúa sig til að mæta skap-
ara sínum. „Verið þér viðbúnir, því manns
ins sonur mun koma þegar þér sízt ætlið.
Hver er þá hinn trúi og forsjáli þjónn,
sem herra hans hefir sett yfir hjú sín til
að gefa þeim mat í réttan tíma? Matt.
24:44.-45.
Boðskapur Guðs fyrir yfirstandandi
tíma er eins og matur á réttum tíma fyrir
þá, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu.
Þessi boðskapur er um nálægð endurkomu
Krists, fagnaðarboðskapurinn um ríkið.
Þessi síðasti náðarboðskapur kallar menn
og konur að snúa baki við mannasetning-
um, en byggja á Guðs orði. Það er aðvör-
un til hins kærulausa og heimshyggju-
mannsins um að snúa sér til Guðs. Boð-
skapurinn hvetur gagnrýnendur og fram-
þróunarkennendur til að tilbiðja Guð, sem
skapaði himininn, jörðina, sjóinn og upp-
sprettur vatnanna. Slík endurvakning til
sannrar guðrækni og lifandi trúar undir-
býr menn og konur til að mæta frammi
fyrir Krists dómstóli. Jóhannes postuli
lýsir aðvörunarboðskapnum með þessum
orðum:
„Ég sá annan engil fljúga um miðhim-
ininn, og hélt hann á eilífum fagnaðarboð-
skap, til að boða þeim sem á jörðunni
búa, sérhverri þjóð og kynkvísl, tungu og
lýð, og sagði hárri röddu: Óttist Guð og
gefið honum dýrð, því að komin er stund
dóms hans, og tilbiðjið þann sem gjört
hefir himininn, jörðina og hafið og upp-
sprettur vatnanna“. Op. 14:6.-7.
Þetta er einmitt boðskapurinn sem nú
er fluttur til allra þjóða kynkvísla, tungu
og lýða. Og þegar þessi boðskapur hefir
verið prédikaður til vitniðburðar fyrir öll-
um þjóðum, þá segir Jesús að endirinn
muni koma. Matt. 24:14.
Fjöldinn hefir aldrei fúslega meðtekið
boðskap Guðs. Hann truflar samvizku
þeirra. Boðskapurinn heimtar að menn
fyrst og fremst hugsi um Guð og það sem
honum er þóknanlegt, í stað þess að heiðra
sjálfa sig og taka sinn vilja fyrst. Sjálfs-
elskufult eðli mannsins setur sig upp á
móti þessu. Breiði vegurinn er ennþá létt-
asta leiðin, og fjöldinn kýs hann án þess
að athuga að hann leiðir til glötunar.
En vinur minn, þeir sem kjósa að
fylgja Guðs leiðbeiningu, og gefa gaum að-
vörunum hans, eru í sannleika hamingju-
samir. í þessu lífi njóta þeir gleði og friðar
í hlýðni sinni við Guð, sem ekkert annað
getur jafnast við. Og innan skamms við
enda leiðarinnar munu þeir öðlast eilíft
líf og slíka hamingju sem mannleg tunga
ekki getur lýst. R. H. Pierson
-------------+------------
Nú er farið að nota silungsroð í kvenn-
skó og handtöskur.
■f + +
Eyjan Cyprus hefir auglýst að Banda-
ríkin ætli að setja þar upp víðvarpstöð.
+ -f -f
Það er fullyrt að íbúum heimsins hafi
fjölgað um helming síðastliðin 100 ár. Árið
1850 var mannfjöldinn á að giska 1,091,-
000,000.