Stjarnan - 01.07.1950, Síða 1

Stjarnan - 01.07.1950, Síða 1
STJARNAN JÚLÍ 1950 LUNDAR, MANITOBA Vaxið í náð Á þann einn hátt er oss auðið að vaxa í náðinni, að vér vinnum einmitt það starf, er Kristur fékk oss að leysa af hendi; en það er að veita þeim hjálp og blessun af fremsta megni, er hjálpar vorrar þurfa. Styrkurinn kemur af æfingunni; starfsemi er nauðsynlegt lífsskilyrði. Þeir, sem leitast við að halda við hjá sér kristilegu líferni með því einu, að taka á móti þeirri blessun, er náðarmeðulin hafa að bjóða, cg starfa ekkert fyrir Krist, reyna blátt áfram að fá fæðu án þess að vinna. Slíkt verður jafnan til þess að veikla og vinna tjón, svo í hinu andlega sem í hinu tíman- lega lífi. Sá maður, sem ekki vildi nota limi sína, mundi brátt missa krapt til þess að nota þá. Þannig fer og fyrir kristnum manni, sem ekki notar þá hæfilegleika, sem guð hefur gefið honum; hann mun ekki að eins hætta við að verða samgróinn Kristi, heldur mun hann og missa það þrek, er hann hefur þegar fengið. Söfnuður Krists er útvalið verkfæri guðs til þess að frelsa mennina. Köllun hans er sú, að boða fagnaðarerindið um allan heim, og þessi skylda hvílir á öllum kristnum mönnum. Hver og einn á að beita til þess beztu hæfilegleikum sínum og nota til þess sérhvert tækifæri að vinna það ætlunarverk, er frelsarinn hefur trúað honum fyrir. Kærleikur Krists, sem oss er opinberaður, gjörir oss að skuldunautum allra þeirra, seni ekki þekkja hann. Guð hefur gefið oss ljósið, eigi að eins til þess að vér skulum nota það sjálfir, heldur og til þess að vér breiðum það út meðal annara. Ef eptirbreytendur Krists skildu til fulls skyldu sína, þá mundu þar vera þús- undir, er nú er einn, að boða fagnaðar- erindið í heiðnum löndum. Og þá mundu allir, er eigi geta tekið beinan þátt í þessu starfi, styðja það með fé sínu, áhuga og bænum, og með langtum meiri alvöru mundi þá verða unnið fyrir sálir í kristn- um löndum. Ef skyldan býður oss að vera heima, þá þurfum vér ekki að fara til heiðinna þjóða til þess að geta starfað fyrir Krist, vér þurfum ekki einu sinni út fyrir heimilið. Vér getum starfað á heimilinu, í söfnuðin- um, meðal þeirra, er vér höfum samneyti við, og þeirra, er vér eigum skipti við. Frelsari vor var mestan hlut af lífi sínu hér á jörðunni önnum kafinn við erfiða vinnu á trésmíðastofu í Nazareth. Þegar drottinn lífsins gekk ókunnur og virðinga- laus með bændum og verkamönnum, voru þjónandi englar í för með honum. Hann vann starf köllunar sinnar með sömu trú- mennsku þá er hann stundaði iðn sína sem þá er hann læknaði sjúka eða tróð hinar æstu öldur Genesareth-vatns. Þannig get- um vér gengið og starfað með Jesú, þótt vér séum í einhverri þeirri stöðu í lífinu, er minnst er virt, eða eigum lítilfjörleg- ustu skyldur að inna af hendi. Postulinn segir: „Góðir bræður! sér- hver þjóni guði í þeirri stétt, sem hann er i kallaður.“ Kaupmaðurinn getur rekið atvinnu sína á þann hátt, að það verði meistara hans til dýrðar. Ef hann fetar í sannleika í fótspor Krists, þá mun hann láta trúna stjórna öllum sínum verkum og opinbera Krists anda fyrir mönnunum. Iðnaðarmaðurinn getur líkst honum í á- stundun og trúmennsku, sem vann baki brotnu að hinum lítilmótlegu störfum lífs- ins meðal hálsanna í Galíleu. Sérhver, sem nefnir nafn Krists, á að vinna þannig, að aðrir geti séð hans góðverk og vegsamað skapara sinn og endurlausnara. Margir hafa eigi notað hæfilegleika sína í þjónustu Krists af því að aðrir eru meiri

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.