Stjarnan - 01.07.1950, Side 8
56
STJARNAN
STJARNAN Authorized as second class
mail, Post Office Depart-
ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00
a year. Publishers: The Can. Union Conference
of S. D. A., Oshawa, Ontario.
Ritstjðrn og afgreiCslu annast:
MISS S. JOHNSON, Lundar_ Man., Can.
þeir virðast ánægðir að lifa án hans anda
og án félagskapar við Drottinn sinn.
„Þér hafið ekki útvalið mig heldur hef
ég útvalið yður og sett yður til þess að
þér farið og berið ávöxt og yðar ávöxtur
verði varanlegur, svo hvers þér biðjið föð-
urinn í mínu nafni það veiti hann yður.“
Að biðja í hans nafni og þekkja kraft hans
er svo mikils vert að ekkert sem heimurinn
hefir að bjóða getur jafnast við það. Ættum
vér því ekki að lifa í stöðugu samfélagi
við hann, og í krafti hans vitna um hann
fyrir öðrum? —Inez Brasier
-----------☆-----------
Smávegis
Franskir vísindamenn hafa nákvæm-
lega rannskað bankaseðla og fullyrða að
hver þeirra að meðaltali beri með sér 50
þúsund gerla.
☆
Flugfélag Bandaríkjanna hefir reiknað
út að árið 1949 hafi flugvélar
þeirra flogið 6,764,186,000 farþegamílur.
Það er 13 og hálfum af hundraði fleiri
mílur heldur en árið áður.
☆
Skýrslur sýna að 40 manns af þúsundi
hverju í Bandaríkjunum eru í stjórnar
vinnu. Sambandstjórnin og stjórnir ríkj-
anna hafa 6,204,000 manns í þjónustu sinni.
Mánaðarkaup þeirra er 1,406,000,000 doll-
arar, eða um 16,872,000,000 dollarar á ári.
☆
Vindlinga reykingar eru altaf að aukast
í Bandaríkjunum. Sagt er að árið 1949 hafi
verið reyktar 352 biljón sígarettur, eða
einum af hundraði fleiri heldur en árið
1948.
Yfirborð Bandaríkjanna er hér um bil
1,905,000,000 ekrur að frátöldum stórfljót-
um og stöðuvötnum.
☆
Stóra Bretland hefir ellefu sinnum
fleiri íbúa fyrir hverja ferhyrningsmílu
heldur en Bandaríkin.
☆
Bifreiðar hafa drepið fleira fólk í
Ameríku heldur en öll stríð sem þjóðin
hefir háð frá borgara stríðinu og alt til
enda seinna alheims stríðsins.
☆
Fjölmennasti flokkur Indíána fyrir
austan Mississippi fljótið eru Cherokee
Indíánar. Þeir eru 3,500 aðtölu og búa á
afmörkuðu svæði við Cherokee í Norður
Karólína.
☆
í júlí og ágúst nærri því hverfur snjór-
inn á Fuji fjalltoppinum í Japan. Þá er
það sem fjöldi fólks klifrast upp fjallið,
sem er 12,388 fet á hæð til að sjá sólar upp-
komuna.
☆
Skýrslur frá stórborgum Bandaríkj-
anna sýna að lögregluþjónar ná aftur 93
hundruðustu af bifreiðum þeim sem stoln-
ar eru.
☆
Nýr málmur sem nefndur er titaníum
er álitinn mjög mikilsverður hann er
sterkur, léttur að vigt og ryðgar ekki.
☆
Börn í Ameríku sendu um 5 miljón leik-
föng til fátækra barna í Evrópu. Allir þátt-
takendur sendu leikfang sem þeim hafði
verið gefið á jólunum.
☆
Eitt skippund af sykurrófum nægir til
að framleiða 340 til 400 pund af sykri.
☆
Grikkland hafði aðeins einu sinni áður
betri uppskeru af appelsínum heldur en
árið sem leið. Þessi síðasta uppskera var
172,500 skippund.