Stjarnan - 01.11.1950, Page 8

Stjarnan - 01.11.1950, Page 8
88 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ontario. Ritstjðrn og afgreiBsiu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar_ Man., Can. fletti upp í Matteus sjötta kapítula. „Lestu 19. versið Mae, það segir þér hvar fjársjóð- ur minn er geymdur.“ Mae las versið fyrst í hljóði og svo upp- hátt. „Safnið yður fjársjóð á himni.“ „En amma, hvernig er hægt að safna fjársjóð þar?“ Mae las versið aftur og sagði: „Eg vildi ég gæti safnað fjársjóð á himni og fengið hann þegar ég kem þangað. Hvernig get ég það amma?“ „Auðvitað getur þú það. Eg held þú hafir þegar byrjað að safna fjársjóð þar. Peningarnir sem þú gefur í hvíldardaga- skólann eru fjársjóður á himni. Alt sem þú gjörir til að hjálpa öðrum og gleðja þá er fjársjóður á himni. Manstu að við sendum mat og peninga til fátæku barnanna 1 Evrópu. Það sem við gjörum fyrir aðra af elsku til Jesú, það telur hann að vér gjörum fyrir sig. „Þegar við höfum fjársjóð vorn óhultan á himni, þá þurfum við aldrei að gráta yfir að missa hann eins og Mrs. Fillips. Hún gat ekki hugsað um neitt annað en heimili sitt og innan hússmuni sem alt var eyðilagt. Jesús segir okkur að þar sem fjársjóður okkar er þar muni hjarta okkar vera.“ „Nú skil ég hvers vegna þú ert altaf svo glöð, amma. Þú hugsar um fjársjóðinn þinn á himni og veist hann er óhultur, því Jesús lítur eftir honum.“ —S.S.W. -------------☆------------- Hvíld og friður Það er sannur og reyndur málsháttur, að sá, sem hefur nokkuð að lifa fyrir, og takmark að keppa að hann er ekki áhyggju- fullur um, á hverju hann eigi að lifa. Jesús sagði: „Segið því ekki áhyggjufullir. Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? eða: Hverju eigum vér að klæð- ast? því að eftir öllu þessu sækjast heið- ingjarnir og yðar himneski faðir veit að þér þarfnist alls þessa. En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, og þá mun allt þetta veit- ast yður að auki“. Matt. 6:31.—33. Mentuð kona ein kom á heilsuhæli vort til að hvíla sig og byggja upp heilsuna. Demantshringir og eyrnagull báru vott um efnahag hennar. En þegar minst var á and- leg efni við hana þá virtist hún ekki geta fylgst með. Einu sinni sagði hún: „Mér hefir liðið illa svo vikum skiftir. í gær fanst mér að ég gæti ekki liíað af daginn. Ég lá í rúminu og bylti mér hvíldarlaust. Svo kom hjúkrunarkona inn í herbergi mitt. í barnslegri einlægni sagði hún: „Því reynir þú ekki að lesa í Biblíunni. Það mun veita þér hvíld og frið svo þú getur sofnað'. Loksins sagði ég: „Ég skal gjöra það iyrir þín orð að lesa hana“. Og ég er enn- þá að lesa. Litla hjúkrunarkonan hafði rétt fyrir sér. Ég er svo róleg og ánægð, sem ég hefi aldrei verið fyr. Ég er hætt að hugsa um sjálfa mig. Hugur minn dvelur við það sem ánægjulegra er“. Hvað er helzta áhugamálið í lífi þínu? Maður verður að hafa einhvern tilgang með líf sitt. Enginn maður með vakandi skynsemi getur til lengdar lagt sig 'fram til að vinna, nema hann hafi ákveðinn til- gang með vinnuna. Ef taugarnar hafa bil- að þá getur læknirinn látið sjúklinginn íást við að flétta körfur, vefa eða prjóna til að gefa honum eitthvað að hugsa um. Verzlunarmaðurinn getur unnið inn nóg til að lifa á, en ef maður hefir ekkert til að lifa fyrir, þá verður hann leiður og þreyttur á vinnunni. Hann hugsar með sér: „Til hvers er allt þetta? Hvaða gagn hef ég af því?“ Sá, sem lifir aðeins fyrir sjálfan sig getur ekki notið fylstu ánægju lífsins. Sá, sem lifir fyrir aðra nýtur bæði blessunar og gleði af starfi sínu. Líf hans er eins og iýst er í Sálm. 1:3. „Hann er sem tré gróð- ursett hjá vatnslækjum, er ber ávöxt sinn á réttum tíma, og blöð þess visna ekki. Allt er hann gjörir lánast honum“. S. O. Martin ----------☆---------- Rand McNally, vel þekt félag í Banda- ríkjunum sem býr til landabréf framleiðir um 50 miljón þeirra á ári sem sýna þjóð- vegi landsins. Olíufélög útbýta ókeypis flestum þessum vegabréfum.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.