Stjarnan - 01.11.1951, Síða 5
STJARNAN
85
Guðs almættis orð
Þegar við íhugum guðs orð byrjar
kraftur þess að ummynda hjörtu vor til
líkingar við hann. Vér eigum að lesa orðið
með lotningu eins og vér heyrðum rödd
hans tala til vor. Vér þurfum að lesa með
hægð svo vér missum ekkert af innihaldi
orðsins. Jesús sagði: „Orðin sem ég tala
til yðar eru andi og líf“. Jóh. 6:33.
„Hugsið um Jesúm“, skrifar Murry í
„Prayer Life“. „í æsku og á fullorðinsár-
um geymdi hann orðið í hjarta sínu. í
freistingunni á eyðimörkinni, og ávalt þar
til hann á krossinum hrópaði: Guð minn,
Guð minn hví hefir þú yfirgefið mig?“
sýndi hann að Guðs orð var sífelt í huga
hans og hjarta. Með bænalífi sínu sýndi
hann oss fyrst, að Guðs orð gefur oss hvöt
til bæna, og að vér eigum að vænta alls
frá' Guði sem vér biðjum um. Og annað
að einungis fyrir bæn getum vér lifað
þannig að orð Guðs og fyrirheit hans geti
uppfylst í lífi voru. Hvernig getum vér náð
því takmarki að lifa slíku lífi? Það er að-
eins eitt svar. Vér verðum að ummyndast
fullkomlega. Vér verðum að öðlast nýtt,
heilbrigt, himneskt líf, sem hungrar og
þyrstir eftir Guði, svo vér þráum og
biðjum um návist hans eins alvarlega eins
°g vér þráum eða biðjum um þarfir lík-
amans. Guð, fyrir sinn heilaga anda getur
framleitt í oss þetta sanna líf.
Ó, að geta lifað slíku lífi. Heilagur andi
kennir oss það. „En sömuleiðis hjálpar
andinn veikleika vorum, því vér vitum
ekki hvers vér eigum að biðja eins og
ber, en sjálfur andinn biður fyrir oss með
andvörpunum sem ekki verður orðum að
komið. En hann sem rannsakar hjörtun.
veit hver er hyggja andans, að hann biður
fyrir heilögum eftir Guðs vilja“. Róm.
8:26.-27.
„Heilagur andi var hin stærsta og dýr-
mætasta gjöf, sem Jesús gat beðið Föður-
inn um fyrir fólk sitt. Hann var gefinn.
sem endurskapandi kraftur, svo fórn Krists
kæmi manninum að notum .... Menn
geta sigrað synd aðeins fyrir kraft Guðs
anda sem oss stendur til boða í ríkum
^iæli. Guðs andi hreinsar hjörtu vor, fyrir
starf hans í hjörtum vorum verðum vér
hluttakandi guðlegrar náttúru. Jesús gef-
Ur oss sinn heilaga anda, svo vér getum
sigrað allar freistingar, og ummyndast
eftir hans mynd“.
Þetta getum vér ekki öðlast með því
að líta í Guðs bók aðeins augnablik og í
flýti mæla fram nokkur bænarorð. „Ver
hljóður fyrir Drotni og vona á hann“.
Sálm. 37:7. Bíð hans með hlýðni, þrá og
þolinmæði, þá mun Guðs andi uppfylla
loforð hans til vor. „Þér elskaðir upp-
byggið yður sjálfa á yðar helgustu trú.
Biðjið í heilögum anda og varðveitið sjálfa
yður í kærleika Guðs, bíðandi eftir náð
Drottins vors Jesú Krists til eilífs lífs“.
Júd. 20:21.
Vér komum til Föðursins fyrir hans
heilaga anda og fáum allar vorar þarfir
uppfyltar.
Ó, að vér gætum skilið og trúað að vér
öðlumst andann gegn um Orðið og fyrir
bæn. Hann veldur því að orðið verður
fögnuður og ljós sálar vorrar. Hann hjálp-
ar oss að biðja samkvæmt Guðs vilja og
finna gleði vora í bæninni og samfélagi
voru við Guð.
Þótt Guði sé áhugamál að gefa oss
sinn anda, þá getur hann ekki veitt oss
hann nema vér í trú og auðmýkt tökum
/ á móti honum. Beiðni vor um gjöf andans
verður að vera laus við alla eigingirni.
Vér verðum að þrá hann eins og þyrstur
maður svaladrykk. Þegar hann snertir
hjörtu vor til að fá inngöngu, þá verðum
vér að veita honum full yfirráð. Þegar
hann bendir á synd í fari voru verðum
vér fyrir kraft Krists að útrýma henni.
Þegar hann talar verðum vér að hlýða.
Bæn í heilögum anda tileinkar sér
Guðs fyrirheit, er í fullkomnu samræmi
við Guðs orð og fær áheyrn. „Fyrir því
segi ég yður, hvers þér biðjið og beiðist, þá
trúið að þér hafið öðlast það og að þér
munuð fá það“. Mark. 11:24. „Sá, sem
gengur fram fyrir Guð verður að trúa að
hann sé til og að hann lætur þeim umbun-
að er til hans leita“. Hebr. 11:6.
Biðjið og þér munuð meðtaka. Biðjið
um auðmýkt, vizku, hugrekki og sterkari
trú. Hverri einustu einlægri bæn verður
svarað, vera má ekki á sama hátt og þú
óskar eftir eða á sömu stundu. Bæn þinni
verður svarað á þann hátt og á þeim tíma
sem þér er hentast.
—INEZ BRASIER