Stjarnan - 01.11.1951, Page 6
86
STJARNAN
Hafið þér áreiðanlegt akkeri?
Stormurinn var ákafur, það leit svo
út að skipið mundi farast. Hvert akkerið
eftir annað var látið útbyrðis, en hlekk-
irnir slitnuðu. Loks var skipað: „Hleypið
niður stóra akkerinu“. Það var hið eina
sem eftir var. En ef það bilaði hvað þá?
Því var hleypt niður og það dugði. Skipið
hristist og bylgjurnar byltu því fram og
aftur, en akkerið hélt því föstu. Keðjan
slitnaði ekki. Skipið komst af.
Þetta var óveður á sjónum, en nú er
allur heimurinn umkringdur voðalegri
hættu. í byrjun seinna stríðsins sagði
Winston Churchill við þingmennina:
„Langir, myrkir mánuðir af erfiðleikum
eru fram undan oss. Ekki aðeins miklar
hættur, heldur mörg óhöpp, yfirsjónir og
glappaskot, og alls konar vonbrigði verða
hlutskifti vort. Sorg og dauði verða ferða-
félagar vorir og erfiðleikar klæðnaður vor,
sem vér verðum hjúpaðir í“. Þetta er döp-
ur lýsing en hún á víðar við en á Bret-
landi. Amerískur sagnritari skrifaði: „Vér
lifum á hinum alvarlegasta tíma í sögu
Ameríku“. Allstaðar eru hjörtu manna
kramin af ótta og kvíða.
Nú er þörf á akkeri sem heldur sálu
vorri í ró. Spádómarnir hafa bent á að
einmitt núverandi ástand mundi eiga sér
stað á síðustu dögum. Jesajas sagði fyrir:
„Myrkur grúfir yfir jörðinni og sorti yfir
þjóðunum“. Þegar Jesús var hér á jörð-
inni sagði hann: „Þjóð mun rísa upp gegn
þjóð og konungsríki gegn konungsríki,
bæði mun verða hallæri og landskjálftar
á ýmsum stöðum“, en til að vara okkur
við því versta bætir hann við: „En alt
þetta er upphaf fæðingarhríðanna“.
Guði sé lof hann hefir séð fyrir hjálp
handa börnum sínum á þessum hættutím-
um. Hann segir: „Skelfist ekki né hræðist“.
Hann hefir gefið okkur akkeri, sem Páll
segir er „traust og örugt“. Ég hef haft
þau einkaréttindi að mæta mörgum, sem
hafa haft reynslu fyrir því að þetta akk-
eri sálarinnar, sem Páll talar um, er alveg
örugt. Ég minnist aftur og aftur þessara
Guðs barna, sem höfðu óbifanlega, óskeik-
ula trú, og það hefir styrkt trú mína og
veitt mér hugrekki og rósemi.
Einu sinni í Jamaica kom ég inn á lítið
heimili, þar lá elskuleg kona í rúminu.
Hún hafði legið þar í tvö ár og þjáðst mik-
ið. Hún hafði liðið fjártjón, mist vini sína
og liðið ýmiskonar sorg og þjáningar. En
hún var glöð. Hún festi von sína við Guðs
fyrirheit um heimili á himnum. Sama ör-
ugga trúin sýndi sig hjá fjölskyldu sem
ég mætti í París 1937. Þau höfðu verið
trúboðar á Spáni, en voru nú í útlegð í
París. Það var hrífandi um kvöldið þegar
ég heyrði þau syngja: „Tel upp þær bless-
anir sem þú hefir orðið aðnjótandi, sjá
hvað Guð hefir gjört“. Fjársjóður þeirra
var á himni. Akkeri þeirra var traust og
örugt.
Einu sinni þegar mjög var róstusamt í
Mexico var trúaður Indíáni og mexikansk-
ur trúboði báðir teknir fastir. Þeir voru
sakaðir um uppreisn, og þó ekkert væri
hægt að sanna upp á þessa saklausu menn
þá voru þeir báðir dæmdir til að verða
skotnir. Svo kom einn af yfirmönnunum
til Indíánans og sagði: „Ef þú vilt bera
vitni móti hinum manninum þá skulum
við sleppa þér“.
Þetta var reynsla. Indíáninn var ólærð-
ur maður en hann var kristinn. Hann vissi
hann gat treyst Guði bæði í lífi og dauða.
Hann leit rólegur og óhræddur á yfir-
manninn og svaraði: „Þú getur skotið mig
ef þú vilt. En ég ætla ekki að bera fals-
vitni gegn bróður mínum“.
„Bróður þínum“, sagði yfirmaðurinn
háðslega, „hann er ekki bróðir þinn, hann
er Mexikani en þú ert Indíáni“.
„En hann er bróðir minn“, svaraði
Indíáninn, „sami gleðiboðskapurinn hefir
frelsað okkur báða, við erum því Guðs
börn og þá um leið bræður“. Svo sagði
Indíáninn yfirmanninum frá okkar kær-
leiksríka frelsara, það hafði þau áhrif að
hann lét þá báða lausa þessa fanga, sem
höfðu verið ranglega ásakaðir og settir í
fangelsi. Akkeri Indíánas reyndist traust
og örugt þó hann horfðist í augu við
dauðann.
Þeir sem treysta orðum Krists, fela
honum sálir sínar og láta hann stjórna lífi
sínu þeir finna frið og ró. Ekkert í heim-
inum getur hrygt þá þegar Jesús gleður
þá með návist sinni. Fullkomið traust til
Guðs veitir fullkominn frið. „Þú veitir
ævaTandi frið þvi þeir treysta á þig“.
Þeir sem fylgja Jesú stöðugt dag eftir