Stjarnan - 01.11.1951, Side 7

Stjarnan - 01.11.1951, Side 7
STJARNAN 87 dag, þeir, eins og Páll postulr, vita hverj- um þeir hafa trúað og eru fullvissir um uð hann er fær um að geyma það sem Þeir hafa falið honum. Þeir vita að vor himneski faðir hefir þúsund vegi oss til hjálpar, sem vér vitum ekkert af. Þeir lifa i trú og geta hughraustir mætt hverju sem að höndum ber, á þessum óvissu tímum þegar myrkur grúfir yfir jörðunni og sorti yfir þjóðunum. Þú og ég, við getum öðlast þessa lifandi frelsandi trú. Vér getum líka haft það akkeri sem er „traust og öruggt“ í ólgusjó lífsins. En vér verðum að fá það strax, því það er framorðnara en menn ætla. —MRS. E. E. ANDROSS ---------☆---------- Hann lék sér að gimsteini Ég las alvarlega, eftirtektarverða sögu fyrir löngu síðan. Ég man alls ekki nafn bókarinnar sem ég las hana í, en aðalatriði sögunnar man ég vel. Ungur maður einn hafði brúkað alt sparifé sitt til að kaupa demant, svo lagði hann af stað til Ameríku, fyrirheitna landsins, þar ætlaði hann að selja demant- inn og verða ríkur maður. Gimsteinn þessi var svo fagur að pilt- urinn hafði hann í höndum sér mikið af tímanum og dáðist að fegurð hans þegar geislar sólarinnar skinu á hann. Ferða- félagar piltsins sáu hann oft standa á þil- farinu og leika sér að gimsteininum. Einn morgun kastaði hann gimsteininum aftur og aftur upp í loftið og greip hann svo áður en hann kom niður. Þessu hélt hann áfram langa stund þar sem hann stóð rétt við handriðið. Einn af samferðamönnum hans spurði hvað það væri sem hann var að leika sér með, sem væri svo skínandi fallegt. Ungi maðurinn svaraði að það væri gimsteinn sem hann hefði keypt fyrir alt sparifé sitt. Þá varð nú spyrjandinn for- viða og sagði: „Ef þetta er alt sem þú átt, þá ættir þú ekki að fara svo ógætilega uieð það. Ertu ekki hræddur um að það gasti fallið út fyrir borðstokkinn og ofan í hafið?“ Ungi maðurinn hló og sagði: „Ég er óhræddur um það. Ég hef lengi verið að þessu og er handviss um að grípa hann. Það er engin hætta“. En því miður kom lítill vindblær og gimsteinninn fór út fyrir borðstokkinh svo hann sökk niður í djúpið. Ungi mað- urinn æpti angistaróp: „Tapaður, tapaður. Alt sem ég á í heiminum er tapað“. Þú hugsar ef til vill að þetta geti ekki verið sönn saga. Enginn gæti verið svo heimskur að leika sér þannig með dýr- mætan gimstein. Vera má að svo sé. En lærdómurinn sem sagan kennir er sann- ur og verulegur, og það sem meira er. ungi maður, eða unga stúlka. Ef þú hefir verið kærulaus gagnvart afstöðu þinni til Jesú Krists þá — „Þú ert maðurinn“. Hafið er eilífðin, skipið er líf þitt, gim- steinninn sem þú fer svo ógætilega með er sál þín. Jesús mat sál þína svo mikils, meir en alt annað í heiminum. Hann tók á sig þjóns mynd, var fæddur af konu og lifði og dó til að frelsa þig. Þó þú hefðir verið hinn eini syndari í heiminum þá elskaði hann þig svo mikið að hann hefði verið fús að deyja fyrir þig einan. 1 dag stendur þú á þilfari lífsins og leikur þér ógætilega með þá dýrmætustu eign sem þú átt til í heiminum. Vera má að faðir þinn, móðir, eða einhver vinur tali til þín og vari þig við ógætni þinni, svo þú ekki glatir öllu sem þú átt. Vera má þau spyrji hvort það sé ekki of mikið átt á hættu að fara svo ógætilega með sálu þína. En þú svarar: „Langt frá því. Ég hef haft það svona svo árum skiftir. Margir hafa talað við mig og hvatt mig til að koma til Krists. Ég gjöri það einhvern tíma seinna. En ég hef svo mikið gaman af lífinu. Ég ætla að fá minn hluta af skemt- unum heimsins. Það er engin bráð hætta þú þarft ekki að vera áhyggjufullur um mig“. Sá sem lætur sér ant um þig heldur áfram: „Þú getur beðið of lengi. Þú getur vaknað upp við það einhvern daginn, að það er orðið of seint að þú ert útilokaður, glataður“. En þú segist vilja ráða þér sjálfur og breytir svo umtalsefninu í eitthvað ann- að sem ekki ónáðar samvizku þína. Ungi maður, unga stúlka, hefir þú snú- ið þér þannig gangvart þínum bezta vin,

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.