Stjarnan - 01.09.1952, Síða 6

Stjarnan - 01.09.1952, Síða 6
70 STJARNAN orðið kennari og leitt þjóð sína til að lifa heiðvirðu, Guði þóknanlegu lífi. Hann veit að það er margt í Afríku sem er hættu- legra heldur en krókódílarnir. Það er synd, hjátrú og vanþekking. Hann var frelsaður frá gini krókódílsins og nú vill hann gjöra sitt bezta til að frelsa aðra frá því sem getur hindrað þá frá því að öðlast eilíft líf. Við þurfum miklu fleiri kennara í Afríku. Gef Guði hjarta þitt og bú þig undir starf, svo þegar kallið kemur til þín að þú getir sagt: „Hér er ég, sendu mig.“ —J. C. EDWARDS ----------•☆•------- Ókeypis og ómældur Við höfðum flutt inn í nýtt heimili, og eitt kvöld höfðum við í ógáti skilið vatns- sprautuna eftir á flötinni. Það létti mikið yfir mér þegar ég frétti að við fengjum vatnið ómælt. Svo datt mér nokkuð í hug: Oss er veittur Guðs kraftur ómældur. Og það sem meira er, Guði er það velþóknanlegt þegar við biðjum hann um mikið. „Felið jmér að annast sonu mína, verk minna handa.“ Jes. 45:11. Trúarhetjur liðinna alda hafa treyst Guði að hann bæði vildi og gæti hjálpað þeim. Sadrak, Mesak og Abednego höfðu ekki á móti því að vera kastað inn í elds- ofninn. Þeir treystu krafti Guðs. Daníel fór niður ljónagröfina með sömu fullvissu. Fyrir bæn Elía var himninum lokað, og hann var opnaður aftur sem svar upp á bæn hans. Elísa bað og kallaði hinn dauða til lífsins. Postularnir, Pétur, Jóhannes og Páll trúðu líka að Guð hefði ótakmarkað vald og kraft til að hjálpa á tíma neyðar- innar. Guð veitir kraft sinn ómældan, eins er náð hans takmarkalaus og veitist í fylsta mæli til að uppfylla allar þarfir þeirra sem treysta honum og hlýða. Jafnvel ræn- inginn á krossinum öðlaðist hina miklu náðargjöf, réttlætis skikkju Krists. Þeir sem inn ganga 1 hina himnesku Jerúsalem verða „syndarar frelsaðir af náð.“ Góðverk sem vér gjörum, gjafir sem vér höfum lagt fram til kristindóms og líknarstarfa eiga engan þátt í sáluhjálp vorri. Sáluhjálp vor og hið eilífa líf er náðargjöf Guðs fyrir trú á Jesúm Krist. Kærleikur Guðs er takmarkalaus, ó- mælanlegur, meir en vér getum útmálað. Opnum hjörtu vor og biðjum um hans kraft og náð. —E. ZACHARISON ----------•☆■------- Pabbi heldur á bollanum Mrs. Van Austin andvarpaði um leið og hún lagði frá sér hækjuna og settist í hægindastólinn. „Hugsa sér það að formaður hvíldar- dagaskólans vonaði ég breytti áformi mínu er ég sagði honum að ég gæti ekki haldið áfram að kenna. Ég meinti það sem ég sagði, það er lítil hætta á að ég breyti ákvörðun minni. Læknirinn sagði ég gæti ekki staðið á fætinum í tvo mánuði. Hann, sagði að slæm sprunga væri verri en bein- brot. Ég verð að hætta við kensluna. Líttu á mig,“ sagði Mrs. Van Austin og leit al- varlega á mann sinn í von um að hann mundi vera á sama máli. „Við skulum ekki hugsa frekar um þetta nú, Marían. Þú ert svo þreytt, þér getur liðið betur bæði á sál og líkama næsta hvíldardag,“ svaraði maður hennar. „Hvað meinar þú, Glen?“ „Aðeins það sem ég sagði, Marían.“ „Ég er viss um mér dettur ekki í hug að haltra inn í kirkjuna á hækjum til að kenna 10 drengjum." „Voru þeir ekki hugsunarsamir og vin- gjarnlegir síðasta hvíldardag?“ „Vissulega voru þeir það. En það er svo tilfinnanlegt og auðmýkjandi að ganga við hækjur. Ég hef ásétt mér að hætta að fara á hvíldardagaskólann þennan árs- fjórðung. Ég get lesið heima. Ég skil ekki hvers vegna þetta þurfti að koma fyrir, hvert áfallið eftir annað. Ef Guð' hefði viljað ég kendi þá hefði hann getað komið í veg fyrir þessi slys.“ „Það er satt,“ svaraði Glen, „en við skiljum ekki ætíð Guðs tilgang. Hann segir: „Eins og himininn er hærri en jörð- in, svo eru mínir vegir hærri en yðar vegir, og mínar hugsanir hærri yðar hugsunum." „Ég veit það, en fyrst handleggsbrotn- aði ég og varð að hafa handlegginn í fatla

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.