Stjarnan - 01.06.1953, Side 1

Stjarnan - 01.06.1953, Side 1
STJARNAN JÚNÍ, 1953 LUNDAR, MANITOBA Drottinn annast sína Páll postuli hafSi liðið skipbrot. Að lokum náðu bæði skipsmenn og farþegar eyjunni Melita. Það var kalt veður og þeir kveiktu eld á ströndinni, Páll vatt saman hrísvönd og lagði á eldinn, skreið þá naðra út undan hitanum og festi sig á hönd hans. Páll hristi hana af sér í eldinn. Þeir sem viðstaddir voru urðu skelkaðir, því þeir vissu að þetta var eiturnaðra og bjuggust við að Páll mundi deyja með voðalegum þjáningum. En ekkert varð honum að tneini. Guðs andi sem í honum bjó vernd- aði hann. Loforð Krists til þeirra sem leiddir eru <af hans anda var uppfylt hér: „Sjá, ég. hef gefið yður vald til að stíga ofan á höggorma og sporðdreka . . . . og ekkert skal yður granda.“ Lúk. 10:19. Það er dá- samlegt að vér getum í sjálfum oss haft þann kraft, sem verndar oss jafnvel frá eitruðum höggormum. Þessi kraftur er þeirra sem fyltir eru Guðs anda. Það eru’ líka mörg fleiri loforð, sem ef til vill verða uppfylt fyrir þig. „Gangir þú í gegn um vötnin þá er ég ineð þér, gegn um vatnsföllin, þau skulu ekki flæða yfir þig, gangir þú í gegn um. eld skalt þú ekki brenna, og loginn skal eigi granda þér.“ Jes. 43:2. Já, Guðs andi verndar. Fyrir nokkrum árum var trúboði einn, kona hans og tveggja ára gömul dóttir á litlu trúboðs- skipi á leið þangað sem þau áttu að starfa. Báturinn rakst á klett fyrir innan kóralla- rifið, hann slengdist á hliðina, og farangur þeirra fór allur ofan í vatnið, en verst af öllu var að litla stúlkan, dóttir trúboðans, féll lika niður í sjóinn. Strax þegar skip- etjórinn, Rangasso heyrði hrópað: „Litla stúlkan féll í sjóinn,“ stóð hann upp og kafaði ofan í sjóinn. Það var dimt. Hann þreifaði fyrir sér í myrkrinu og bað: „Ó, Guð hjálpaðu mér að bjarga litlu stúlk- unni.“ Hann fann fyrir sér eitthvað mjúkt, en það var mosavaxinn klettur. Svo fann hann eitthvað annað, en það var karfa, sem hafði fallið útbyrðis. Nú varð Rangasso að koma upp til að draga andann og fylla lungun með lofti. Það tók hann aðeins augnablik, því hér mátti engan tíma missa, svo hann kafaði niður aftur og bað ákaflega í hjarta sínu. Hann synti í hring og þreifaði fyrir sér. Guðs andi leiddi hann. Nú snerti hönd hans eitthvað mjúkt. Ó, það var litla stúlkan. Guðs andi hafði leitt hann einmitt þangað sem hún var. Hann lyfti henni og kom upp á yfirborð vatnsins. Ó, hvað allir urðu glaðir þegar þeir sáu Rangasso koma upp með litlu stúlkuna, sem hét Norma. Þeir höfðu líka beðið til Guðs fyrir henni. Nú voru lífgunartilraunir gerðar og litla stúlkan náði sér fljótt. Nú er hún hjúkr- unarkona gift einum af prestum vorum. Hún væri ekki lifandi nú ef Guðs andi hefði ekki leiðbeint Rangasso hvar hann ætti að þreifa eftir henni meðal kórall- anna. Guðs andi varðveitti litlu stúlkuna. —M. V. -------☆------- Vitur maður var einu sinni spurður, hvernig hann hefði fengið svo mikla þekk- ingu á öllum hlutum; hann svaraði: „Ég skammaðist mín ekkert og var aldrei hræddur við að spyrja um það, sem mér var ókunnugt um.“ -—R. H. ☆ ☆ ☆ Hættan í þessum nýtízkuheimi als- nægta og þæginda er, að fólkið er miklu betur statt, án þess að vera sjálft betra. —HIGHWAYS OF HAPPINESS

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.