Stjarnan - 01.06.1953, Page 2

Stjarnan - 01.06.1953, Page 2
42 STJARNAN Svar upp á bænir Fyrir nokkru síðan fór hópur af drengj- um í Australíu upp á fjall með kennara sínum. Þeir ætluðu að vera nokkra daga í skóginum á fjallinu. Þeir höfðu sagt frá hvaða götuslóða þeir ætluðu að fylgja, og ráðgjörðu að koma aftur næsta sunnudags- kvöld. En þeir voru ekki komnir aftur á sunnudagskvöldið. Það er hættulegt að villast í skógum Australíu. Margir hafa vilst og dáið. Stundum hafa lík þeirra fundist löngu seinna, en stundum aldrei. Þegar það fréttist yfir útvarpíð að ein- hver hafi vilst í skógunum þá verða allir óttaslegnir. Nú var lögreglunni gjört að- vart og æfðir skógargöngumenn voru sendir þangað sem hugsanlegt var að drengirnir væru. Flugbátur flaug yfir til að sjá þá ef mögulegt væri, en þokuský lá yfir öllum skóginum. Flugvélin flaug fram og aftur í von um, að það rofaði til milli skýjanna. Alt í einu greiddi til í loft- inu og flugstjórinn sá drengina og kennar- ann. Þeir höfðu myndað orðið „Hjálp“ með grasi, er þeir höfðu rifið upp. Var það hending eða tilviljun að skýin rofuðu til einmitt þar yfir, sem drengirnir voru rétt þegar loftbáturinn flaug þar yfir? Nei, það var ekki tilviljun heldur svar upp á bæn. Margir höfðu beðið bæði fyrir drengjunum og þeim sem voru að leita þeirra. Guð svarar bænum barna sinna. —M. V. --------☆------- Fjársjóður á himni Larry var gamall fátækur maður. Sum- ir nágrannarnir kölluðu hann „hálfvita“. Hann vann sér brauð með því a& gjöra smásnúninga, slá flatir kring um húsin og reita illgresi úr blómabeðum og jurta- görðum þorpsins. Han,n átti enga ættingja, svo menn vissu, og enga vini. Hann bjó einsamall í litlum kofa niður við ána. Einu sinni á viku sló hann flötina hennar ömmu minnar, leit eftir blómunum og reitti illgresið. Hann setti upp 50 cent fyrir þetta. Einu sinni spurði amma mín hann og sagði: „Larry, hvers vegna setur þú upp dollar hjá nágrönnum mínum, en lætur mig ekki borga nema 50 cent? Ég mundi fúslega borga þér meira.“ Larry svaraði, um leið og hann gróf götóttu tána á skónum sínum niður í sand- inn: „Þegar þú mætir mér á götunni heilsar þú mér. Hitt fólkið talar aldrei til mín, nema það vilji fá mig til að vinna eitthvað hjá sér.“ Þetta vakti mig til umhugsunar. Ó, hversu margar einmana sálir eru í heim- inum, sem þrá og þarfnast að heyra vin- gjarnlegt orð, og finna að einhver ber hlý- an hug til þeirra, og sýnir það í orði og verki. Hinir fátæku, ólánssömu, heimilislausu og vinalausu — vér mætum fjölda þessara manna, sem vér gætum sýnt kærleika,. glatt og hughreyst þá. Vér, sém kristnir erum, líkjumst of oft prestinum og levítanum, sem gengu fram hjá særða manninum, sem féll meðal ræn- ingjanna milli Jerúsalem og Jerikó. Vér keyrum í flýti fram hjá þeim í skínandi bifreiðum vorum og gefum þeim lítinn gaum, nema ef vér segjum: „Það er illa farið.“ Myndarlegur ungur maður kom einu sinni til Jesú og sagði: „Meistari, hvað gott á. ég að gjöra til þess ég eignist eilíft líf?“ Matt. 19:16. Hann hefir ef til vill búist við að Jesús mundi segja honum að gefa fé til musterisins, eða landspildu til þeirra heimilislausu. Hann var fús til að gjöra mikið fyrir Guð. Nú á dögum hefði hann verið kallaður mannvinur. Hann gat vel verið örlátur án þess að finna mikið til þess. Skeð gat hann yrði beðinn að reisa kirkju í einhverju þorpi þar sem engin kirkja var. Þá hefði verið sett skilti framan. á bygginguna með nafni gefandans. En, hvað sagði Jesús? „Ef þú vilt innganga til lífsins þá haltu boðorðin.“ Matt. 19:17. Ungi maðurinn varð hissa. Hann skildi ekki þetta. „Hver helst?“ spurði hann. Jesús mælti, þessi: „Eigi skaltu mann, vega, eigi hórdóm drýgja, eigi stela, eigi ljúgvitni bera. Heiðra föður og móður, og elska náunga þinn eins og sjálfan þig.“ 18. og 19. vers. Hinn ungi maður segir við hann: „Als þessa hef ég gætt frá barn- æsku.“ Hér var vandaður maður, staðfastur og samviskusamur, sem fylgdi háum hug- sjónum, og var laus við heimslegar skemt- anir, en hann var samt ekki ánægður.

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.