Stjarnan - 01.06.1953, Blaðsíða 5

Stjarnan - 01.06.1953, Blaðsíða 5
STJARNAN 45 reynslu Jobs, eða reynslu Jakobs er hann glímdi við engilinn? Dýrmætt í augum Guðs er slíkt trúar- traust er lýsti sér í orðum Jobs: „Þó Drott- inn deyði mig skal ég samt vona á hann.“ Slík trú er dásamleg í augum engla og manna, og dýrmætari en nokkur jarð- neskur fjársjóður. —SANFORD T. WHITMAN --------☆-------- Falinn fjársjóður Einu sinni um eftirmiðdaginn sat skó- smiður fyrir opnum dyrum í búð sinni í Hamborg og var að bæta skó. Við og við söng hann eitt eða tvö vers úr gömlu þýzku sálmabókinni, sem var í miklu af- haldi hjá honum. Háskólanemandi einn, sem gekk fram hjá, heyrði hinn glaðlega málróm skósmiðsins og sagði við hann: „Vinur minn, þú sýnist vera hamingju- samur og ánægður með lífið.“ „Já, ég er hamingjusamur,“ sagði gamli maðurinn. „Hvernig gæti ég annað?“ „Ég veit ekki,“ sagði nemandinn. „Fjöldinn af fólki er ekki hamingjusamt, og þú virðist vera fátækur.“ „Ég er fátækur, það er satt,“ sagði skó- smiðurinn, „en það þarf ekki að hindra mig frá að vera hamingjusamur.“ „Það skil ég nú ekki,“ sagði pilturinn. „Ókunni maður,“ sagði skósmiðurinn og leit alvarlega í augu unga mannsins. „Ég er ekki eins fátækur og þú heldur. Ég er konungs sonur.“ Ungi maðurinn sneri við, gekk í burtu og sagði við sjálfan sig: „Vesalings maður- inn er geggjaður.“ Hann ímyndar sér að hann sé vel fjáður, þó hann sé fátækur. Mér datt í hug hann gæti ef til vill sagt mér þann leyndardóm er mig fýsir að vita, sem sé leyndardóm sannrar ham- ingju. En það er öðru nær. Nú leið ein vika, þá hafði nemandinn tækifæri til að ganga sama stræti aftur. Hann sá að skósmiðurinn vann af kappi ennþá og söng við starf sitt eins og fyr. ^egar ungi maðurinn kom að dyrunum, tók hann ofan hattinn, hneigði sig og sagði: „Góðan daginn prins.“ 1 „Heyrðu, vinur minn,“ sagði skósmið- urinn. „Mig langar að tala við þig nokkur orð, þú snerist svo fljótlega í burtu hitt skiftið, eins og þú héldir ég væri ekki með öllum mjalla.“ „Að segja sannleikann þá hélt ég það,“ svaraði ungi maðurinn. „Vinur minn, ég er ekki ruglaður,“ hélt skósmiðurinn áfram. „Mér var alvara með það sem ég sagði. Það er satt, ég er kon- ungs sonur, sestu niður og ég skal segja, þér frá því.“ Nemandi þessi var Gyðingur að þjóð- erni. Þegar hann var barn var honum kent að lesa Gamla Testamentið og trúa því. Eftir að hann varð fullorðinn og fór að ganga á háskóla, þá hafði hann snúið baki við trú sinni. Hann var eins og sjó- maður, sem hafði engan áttavita. Hann vissi ekkert hvert stefndi eða hvernig hann ætti að snúa sér og honum leið illa út af þessu. Eins og druknandi maður grípur í hvað sem fyrir verður, eins var hann tilbúinn að ná í hvað sem gæti hjálpað honum að finna leiðina til ham- ingju, svo hann settist niður og hlustaði á vin sinn. Skósmiðurinn minti hann á loforð í Gamla Testamentinu um dýrðlegan kon- ung, sem átti að koma til að frelsa heim- inn og stjórna honum. Svo benti hann honum á, að alt sem skrifað var í lögmál- inu, spámönnunum og sálmunum um þennan dýrðlega konung var uppfylt í lífi Jesú Krists þegar hann var hér á jörðinni. Hann mintist á hvernig Jesús leið fyrir vorar syndir, reis upp úr gröfinni, sté upp til himna til föðursins og biður nú fyrir mannkyninu. Svo sagði hann frá hvernig Jesús hefði sent lærisveina sína til allra þjóða heimsins til að segja fólki frá hvað hann hefði gjört fyrir mennina, og að allir sem sneru sér til hans, iðrast synda sinna og trúa á hann, þeir fá fullkomna fyrir- gefning, frelsun og eilíft líf. Hann sagði honum líka að Jesús kemur aftur sam- kvæftit loforði sínu til að stofna dýrðlegt ríki, þar sem allir þeir er elska hann og fylgja honum munu verða með honum eilíflega. Ungi maðurinn hlustaði á með mestu eftirtekt, hann mundi mörg af loforðum Guðs í Gamla Testamentinu, en honum hafði aldrei komið til hugar að bera þau saman við líf Krists. Þetta var alt nýtt fyrir hann og hann var hrifinn af því, sem hann heyrði.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.