Stjarnan - 01.06.1953, Blaðsíða 6
46
STJARNAN
„Ungi vinur minn,“ sagði skósmiður-
inn, „nú getur þú skilið að ég get í sann-
leika sagt, ég er konungs sonur. af því ég
tilheyri honum er ég svo glaður og ham-
ingjusamur. Ég trúi á hann. Ég elska hann.
Ritningin segir, að alt verði mér til góðs.
Og ég er hamingjusamur.“
Skósmiðurinn gaf unga manninum
Biblíu og réð honum til að taka hana upp
á herbergi sitt, lesa hana með eftirtekt og
biðja Guð um náð til að trúa og fúsleika
til að gjöra Guðs vilja. Nemandinn las
Bi'blíuna með eftirtekt og fann leyndardóm
friðar og sannrar hamingju. Seinna gjörð-
ist hann trúboði fyrir sína eigin þjóð. iÞeir
sem leita eftir hinum fólgna fjársjóð i
Guðs orði öðlast ríkulegt endurgjald. Vér
finnum líf og ljós í Biblíunni, ef vér al-
varlega leitum þess. Guðs orð er ljós á
vegum vorum og lampi fóta vorra. Sælir
eru þeir, sem leita sannleikans, þeir munu
finna hann.
—ERNEST LLOYD
------☆-------
Siguraflið
Á þessum erfiðu óvissu tímum óska all-
ir eftir öruggleik, hugrekki og innri friði.
Hér er leyndardómurinn: „Trú vor hún er
siguraflið, sem hefir sigrað heiminn."
1 Jóh. 5:4.
Það er sagt um Móses að: „Fyrir trú
yfirgaf hann Egyptaland og óttaðist ekki
reiði konungsins, og var öruggur eins og
hann sæi hinn ósýnilega.11 Hebr. 11:27.
Hugsjón hans náði út yfir og upp yfir
ástand þessa heims. Hann sá í anda kon-
ung himinsins, svo hann óttaðist ekki reiði
hins jarðneska konungs.
Það var sama hugsjón trúarinnar, sem
veitti hinum þremur hebresku hugrekki
til að horfast í augu við dauðann í elds-
ofninum. Það var trúin, sem hjálgaði
Daníel að fara óhræddur í ljónagröfína.
Trúin hélt uppi hugrekki Abrahams, er
hann flutti úr einum stað í annan. Trúin
leiddi Pál og Sílas til að syngja lofsöngva
um miðnætti í fangelsinu í Filippíborg.
Þessi sama lifandi trú hefir veitt þúsund-
um píslarvotta frið og von, er þeir voru
leiddir á bálið eða fyrir villidýrin.
Hið fegursta dæmi upp á sigrandi kraft,
er líf frelsara vors Jesú Krists. Ekkert
truflaði rósemi hans, ekki fólksfjöldinn,,
sem þrengdi að honum, ekki óveðrið á
vatninu. Ekki veikindi þeirra, sem leituðu
lækningi til hans, ekki ásakanir óvina
hans, eða tilraunir þeirra að hrinda hon-
um niður fyrir bjargið. Það truflaði hann
ekki þó lærisveinárnir hefðu gleymt að
kaupa brauð,, eða þó Nikódemus kæmi
til hans seint um kvöld. Hann var rólegur
þó hinn djöfulóði hindraði samkomu hans
í Kapernaum, og þó hann mætti hinum
óðu í Gadara, eða þeir í Jerúsalem ætluðu
að grýta hann. Hann svaraði engu þegar
óvinir hans báru sakir gegn honum fyrir
Pílatusi, eða þegar hann var leiddur út til
krossfestingar. „Hann lítillætti sig og lauk
ekki upp munni sínum eins og lamb, sem
leitt er til slátrunar, og eins og sauður
þegir fyrir þeim sem klippa hann.“
Jes. 53:7.
Hvernig gat Jesús verið rólegur er
hann mætti öllum þessum kringumstæð-
um? Hugsjón hans náði út yfir þennan
heim.
Fyrir trú á hann og samfélag við hann,
getum vér líka lífað sigursælu lífi. Eins
og Móses getum vér verið öruggir eins og
vér sæjum hinn ósýnilega.
Trú vor þarf ekki að vera á hæsta
stigi til að byrja með, en hún verður að
þroskast og vaxa eins og mustarðskornið,
sem er „Hverju frækorni smærra, en þegar
það er sprottið er það stærra en jurtirnar
og verður að tré.“ Matt. 13:32.
Einn rithöfundur hefir sagt: „Þó must-
arðskornir sé minst allra frækorna, þá
hefir það í sér hinn sama leyndardóms-
fulla lífskraft sem framleiðir vöxt hinna
stærstu trjáa. Þegar mustarðskorninu er
sáð í moldina, þá dregur lífskraftur þess
að sér öll þau efni, sem Guð hefir veitt
því til næringar, og það tekur undraverð-
um þroska. Ef trú þín líkist mustarðskorn-
inu þá meðtekur þú Guðs orð með fögnuði
og notar öll tækifæri sem gefast þér til
framfara og fullkomnunar. Trú þín mun-
styrkjast og þú munt öðlast kraft frá
himni. Allar þær Viindranir, sem satan
leggur í veg fyrir þig, þó þær sýnist ósigr-
andi, munu hverfa fyrir krafti trúarinnar.
Ekkert skal vera yður um megn.“
Ef vér höfum slíka trú, sjáum vér í
anda hinn ósýnilega, eins og Guðs menn
á fyrri tímum, og Jesús framar þeim öll-
um, þá munum vér hafa sigur yfir ótta,