Stjarnan - 01.06.1953, Page 8

Stjarnan - 01.06.1953, Page 8
48 STJARNAN STJARNAN Authorized as second elass mail, Post Otfice Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ontario. Ritstjðrn og afgreiSslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar. Man., Can. hann. En það var orsök til þess. Guð talaði. fyrir hönd þjóns síns og hann ætlaði að gjöra dásemdarverk fyrir konuna, sem var svo góð við þá þurfandi. Hún hafði altaf: treyst Guði til að uppfylla þarfir sínar, svoi í trausti til Guðs gjörði hún það, sem Elías bað hana. Hún bakaði köku fyrir ókunna, manninn. Guð brást henni ekki. Dag eftir dag fann hún mél í tunnunni og olíu í krúsinni, svo þau höfðu öll nóg að lifa á í langan tíma, því það leið heilt ár áður en regn kom á jörðina. Guð endurgalt vin- gjarnleika ekkjunnar er hún sýndi þjóni hans og hélt við lífi þeirra beggja, hennar og sonar hennar. Davíð segir: „Ungur var ég og gamall er ég orðinn, en aldrei sá ég réttlátan, mann yfirgefinn, né niðja hans biðja sér matar.“ Guð uppfyllír þarfir þjóna sinna enn í dag alveg eins og á dögum Elíasar. —M. V. --------☆—------- „Sælir eru þeir sem heyra Guðs orð og varðveita það.“ „Sælir eru hreinhjartaðir, því þeir munu Guð sjá.“ „Sælir eru þeir, sem breyta eftir hans boðorðum, svo þeir nái að komast að lífs- trénu, og megi inn ganga um borgar hliðin. inn í borgina.“ „Lofa þú Drottinn sála mín og alt hvað í mér er hans heilaga nafn.“ --------☆-------- Á eyjunni Man við strendur Englands bjó skipstjóri einn með fjölskyldu sinni. Þau voru Aðventistar. Skipstjóri ferðaðist víða og var oft lengi í burtu að heiman. Einu sinni var hann svo lengi í burtu, að konan hans var orðin hrædd um hann. Hún hafði mörg börn. Nú var fé og mat- væli nærri að þrotum komið, og það þarf mikið til að fæða mörg börn. Einn morgun, eftir að fjölskyldan hafði staðið kring um morgunborðið og lesið: „Faðir vor,“ eins og þau voru vön, þá sagði móðirin þeim, að maturinn á borðinu væri það síðasta, sem til væri. Þá gall við lítil stúlka og sagði: „Mamma, Guð sendir okkur mat. Við vorum að biðja hann: „Gef oss 1 dag vort daglegt brauð, hann mun svara og senda okkur mat.“ Móðirin leit á litlu stúlkuna og hresstist í huga. Hún hafði líka innilega beðið um mat fyrir sig og börnin. Þau voru rétt sest við borið þegar barið var að dyrum. Það var ráðskonan í höll koungsins á eyjunni. „Ég kem yfir af því ég hef frétt að hópur af gestum, sem von var á, getur ekki komið. Við höfum undir- búið ósköpin öll af mat. Mér þykir leitt að kasta honum út. — Ætli þið gætuð ekki notað hann?“ „Sér þú nú,“ hrópaði litla stúlkan. „Ég vissi Guð mundi senda okkur mat og nú hefir hann ekki sent okkur bara eitthvað, heldur mat sem var tilreiddur fyrir konungsborðið.“ Börnin fóru margar ferðir miili heimilis síns og hallar konungs og báru með sér það sem þau komust með af mat frá konungsborði. Þetta nægði þeim þangað til faðirinn kom heim. Óveður hafði hindr- að hann frá að koma á tilteknum tíma. Dásamlegt er það hvernig Guð uppfyllir oft þarfir barna sinna. —M. V. --------☆-------- „Fel þú Drotni verk þín, þá munu þínar ætlanir framgang fá.“ „Treystu Guði af öllu hjarta, en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit, mundu til hans á öllum vegum þínum, þá mun hann gjöra stigu þína slétta.“ „Ótti við menn leiðir í snöru, en þeim er borgið, sem treysta Drotni.“ „Nafn Drottins er sterkur turn, þangað hleypur hinn réttláti og er óhultur." „Þegar Drottinn hefir þóknun á breytni einhvers manns þá sættir hann óvini hans við hann.“ „Mannsins hjartá upphugsar sinn veg, en Drottinn stýrir hans gangi.“ t „Nálægið yður Guði, þá mun hann nálgast yður.“ „Hrein og óflekkuð guðsdýrkun fyrir Guði og föður er sú að vitja munaðarlausra og ekkna í þeirra þrengingu, og varðveita sjálfan sig flekklausan frá heiminum."

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.