Stjarnan - 01.09.1953, Page 8

Stjarnan - 01.09.1953, Page 8
72 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa, Ontario. Ritstjórn og afgreiðslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar_ Man., Can. Ert þú viðbúinn? Endir allra hluta er nálægur, hvort sem menn trúa því eða ekki. Hið eina nauðsynlega er að vera viðbúinn, vaka og biðja svo vér föllum ekki í freistni. Hvað gjörum vér til að vera undirbúnir að mæta fyrir Krists dómstóli? Hvað gjörum vér fyrir börnin til að hjálpa þeim að vera viðbúin? Fyrir nokkru síðan gekk ég fram hjá leikhúsinu og mætti þá konu með tvö börn, á að gizka 3—5 ára að aldri. ,,Þú ert þó ekki að fara í leikhúsið?“ spurði ég. „Jú, börnin langaði til að fara.“ Kona þessi er elskuleg manneskja, álitin vel kristin. Börnin eru send á sunnudagaskóla, en þegar þau fara í leikhús þá fer móðirin með þeim. Hvaða áhrif hlýtur þetta að hafa á æskulýðinn, sem elzt upp við slíkt? Þau skilja orðalaust, að foreldrarnir meta meir leikhúsið heldur en kirkjuna. Foreldrar, Guð hefir gefið ykkur börnin til að ala upp fyrir sig til að verða þegnar og hluttakendur í hans dýrðarríki. Ef þér hafið leitt þau afvega og alið þau upp til að elska heiminn og glys hans, þá hafið þér fulla ástæðu til að óttast og kvíða fyrir degi dómsins. „Heimurinn ferst og hans lystingar, en sá sem gjörir Guðs vilja varir að eilífu." Vinir mínir, snúið yður alvarlega til Guðs, biðjið hann fyrir Jesú forþénustu um fyrirgefningu allra yðar synda og á- setjið yður framvegis, með hans hjálp, að leita fyrst Guðs ríkis og hans réttlætis og þannig gefa hinum yngri rétt eftirdæmi. —S. JOHNSON -------☆-------- „Elskan sé flærðarlaus, hatið hið vonda, en haldið fast við hið góða. Verið í bróðurlegum kærleika ástúð- legir innbyrðis, og verið hver öðrum fyrri til að veita hinum virðingu. í iðninni ólat- ir, í andanum brennandi, Drotni þjónandi. í voninni glaðir, í þjáningunni þolinmóðir, í bæninni staðfastir. Takið þátt í nauðsynjum heilagra, stundið gestrisnina. Blessið þá, er ofsækja yður, blessið en bölvið ekki. Fagnið með fagnendum og grátið með grátendum. Verið samlyndir innbyrðis, hugsið eigi hátt, heldur haldið yður við hið lága; verið eigi sérvitrir. Gjaldið eng- um ilt fyrir ilt; stundið það sem fyrir allra manna sjónum er sómasamlegt. Ef mögulegt er, þá hafið frið við alla menn að því leyti sem í yðar valdi stendur. Lát ekki hið vonda yfirbuga þig heldur sigra þú hið vonda með hinu góða.“ Rom. 12:9.—21. ---------------- HvaS er framundan hjá Indverjum? í Indlandi eru rúmar 370 milljónir rnanna, meðalaldur þeirra er 27 ár, en á Norðurlöndum um 70 ár. í Indlandi verður hungurvofan árlega milljónum manna að bráð, en þó falla enn fleiri fyrir drepsótt- um eins og kóleru og malaríu, og tæringin tekur hundruð þúsunda. Ein hjúkrunar- kona er fyrir hverjar 43 þúsundir íbúa í landinu. Það svarar til þess, að á íslandi væru 3—4 hjúkrunarkonur. Um 80% af þjóðinni kann hvorki að lesa né skrifa. En Indland er vaknað. Stærsta fimm ára áætlun heimsins hefir nýlega verið gerð þar. Framleiðsluna á að auka stórkostlega og vinna allavega að umbótum og fram- förum. Þegar hefir verið komið á áfengis- banni í ýmsum hlutum landsins til mikillar blessunar fyrir milljónir manna, og ríkis- stjórnin stefnir að algeru áfengisbanni. — Það er þó enn ráðgáta, hvað fram undan er hjá Indverjum, en eitthvað stórfenglegt verður það og mun snerta allan heiminn. —EINING -------☆-------- „Það sem ég hef orðið áskynja um trúarlífið er þetta: Það gefur manninum kjark á stundu hættunnar til að afráða það sem ekki verður umflúið og treysta svo æðri mætti fyrir úrslitunum. Aðeins í trausti til Guðs getur sá maður, er mikil ábyrgð hvílir á, verið geðrór og öruggur.“ —EISENHQWER

x

Stjarnan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.