Stjarnan - 01.05.1955, Side 3

Stjarnan - 01.05.1955, Side 3
STJARNAN 35 voru drepnir. Hermaðurinn minn sagði þrisvar við mig: „Þú ert númer eitt.“ Fyrir sjö mánuðum mætti ég Sung. Það hittist svo á, að við báðir höfðum skýli yfir nótt í sama tóma húsinu; síðan höfum við altaf verið saman.“ Chai þagnaði alt í einu, svo bætti hann við: „Ég gleymi aldrei, að þvo mér um andlitið og hendurnar á hverjum morgni.“ Jafnvel þó fatnaður hans væri tötralegur, þá leit drengurinn hreinlega út. Einn af starfsmönnum vorum tók mynd af Chai og sagðist ætla að skrifa um hann í blöðunum. Þá fór 8 ára gamli drengurinn að gráta og sagði: „Nú verður mögulegt fyrir pabba að finna mig.“ Sung var veikur. Hann hafði slæma ígerð í öðrum fætinum og sagði ekkert alt kvöldið. Við vöfðum þá innan í teppi og fluttum þá til Seoul sjúkrahússins, svo ásettum vér oss að taka þá inn á barna- heimilið, þar sem þegar voru 280 aðrir munaðarleysingjar. Sögur þeirra líkjast mikið reynslu Chai. Þeir eru farnir að kunna við sig þar. Síðast er ég kom þang- að brosti ég til þeirra og Chai og Sung brostu á móti, þó hálf feimnir væru, eins og þeir vissu ekki hvort þeir mættu það. Nú virðist sem þeir eigi hægra með að brosa aítur. —IRENE ROBSON, (hj úkrunarkona) ------------&----------- Ávalt reiðubúinn Ef slys eða óhapp kemur fyrir einhvers staðar í heinum, þá eru hjörtu, hendur og fépyngja opin til hjálpar. Meðaumkvun er náttúrleg mannshjartanu og kemur í ljós hvar og hvenær, sem þörfin krefur. Fáum klukkutímum eftir að varnargarð- urinn í Hollandi brast, þegar stríðið braust út í Kórea, Mississippi flóði yfir bakka sína eða jarðskjálfti hristi eyjarn- ar í Aegean hafinu, þá var hjálpin á leið- inni til fólksins. Alstaðar eru menn reiðu- búnir að veita aðstoð í tímanlegum efnum, þar sem þörfin krefur og þar með fylgir venjulega andleg og siðferðisleg hjálp. Mannkærleiki hefir víðtækt starfssvið og krefst almennrar hluttekningar. „Verið góðir hver við annan,“ er boðorð sem flestir viðurkenna. „Elskið hver annan,“ er meginregla sem allir dást að. Fjöldi fólks á svo annríkt, að það hefir ekki tíma til að gjöra alt, sem það þó gjarnan vildi. Menn sjá þörfina og hafa það, sem þarf til að bæta úr henni og vilja fegnir gjöra það. Það mundi gleðja þá að sjá tárin þerruð og heyra gleðihljóma barnanna, sem notið höfðu lækningar og annarar hjálpar. Sá, sem veitir öðrum hjálp nýtur sjálf- ur ánægju og blessunar af starfi sínu. Hans eigin reynsla staðfestir það, sem Jesús kendi, að það er „Sælla að gefa en þiggja.“ Það veitir blessun bæði gefanda og þiggjanda. Þá er nauðsynlegt að finna ráð til þess að menn geti framkvæmt það, sem þeir gjarnan vildu gjöra ef þeir hefðu tíma og vissu hvað þeir gætu gjört gott, hvernig þeir gætu fundið þá, sem þyrftu hjálp. Peningar, sem þú og aðrir gáfu síðast- liðið ár, hafa gjört félagsskap vorum mögulegt að hjálpa þúsundum manna, sem ekki hefðu fengið hjálp, hefðuð þér ekkert gefið. Nú eru þarfirnar enn meiri. Nú hafið þér aftur tækifæri til að gefa það, sem kringumstæður leyfa og hjarta yðar girnist til að hjálpa nauðstöddum. Trúboðar vorir og líknarstarfendur finnast á öllum meginlöndum heimsins, í 197 löndum. Tvö þúsund útlendir trúboðar starfa nú í Japan, Asíu, Ástralíu og eyjum Kyrrahafsins. Afríka, Suður-Ameríka og Mið-Ameríka hafa fjölda starfsmanna, sem fúslega gegna líknarstörfum þeim, sem þér gjarnan vilduð hafa framkvæmt hefði tími og kringumstæður leyft. Söfnuður Krists hefir helgað líf sitt því starfi að flytja gleðiboðskapinn allri skepnu, og vér vitum af eigin reynslu, að þeir, sem fá líkamlega hjálp og heilsubót, eru fúsastir til að gefa gaum að boð- skapnum, sem veitir hjarta mannsins hvíld og frið. Maðurinn þráir að njóta þess frjálsræðis, sem fæst með góðri sam- vizku. Hann gleðst af að læra betri lifnað- arhætti svo hann geti hughraustur mætt heiminum og kringumstæðum lífsins. Vér förum með gjöf þína til einstakl- ingsins, sem þarfnast hjálpar og vitnum um göfuglyndi þitt með því að rétta hin- um þyrsta svaladrykk, gefa hinum ber-

x

Stjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.