Stjarnan - 01.06.1955, Blaðsíða 3

Stjarnan - 01.06.1955, Blaðsíða 3
STJARNAN 43 „Enginn getur séð Guðs ríki nema hann endurfæðist11. Jóh. 3:3. Það er sagt, að Wesley hafi prédikað yfir þúsund ræður út af þessum texta. Þegar hann var spurð- ur, hvers vegna hann gjörði það svaraði hann: „Af því að þú verður að endur- fæðast“. Þetta nýja líf felur í sér sigur yfir synd. Fyrirgefning er dýrmæt náðargjöf, en ennþá dásamlegra er að vera varðveittur frá synd fyrir Guðs kraft. „Ég fyrirverð mig ekki fyrir Krists fagnaðarerindi, því að það er kraftur Guðs til sáluhjálpar hverjum þeim sem trúir“. Róm. 1:16. Það er dýrðlegt að vita, að hann „megn- ar að varðveita frá hrösun og láta yður koma fram fyrir dýrð sína lýtalausa í fögnuði“. Jud. 24. Kristindómur er það að lifa daglega í samfélagi við Krist, hlýða kenningum hans og fylgja dæmi hans. Þetta er leynd- ardómur kraftarins í lífi sannkristins manns. &> —ANDREW FEARING -----------☆----------- Takmarkalaus auðlegð Það er ekki hvað maðurinn byrjar á, heldur hvað hann hefir fullgjört, sem bendir á manngildi hans í þjóðfélaginu. Skólanám sýnir hvað er inni fyrir hjá nemendunum. Ég hef séð marga gáfaða drengi byrja að haustinu með áhuga fyrir að standa hátt við prófin, en sem smám saman urðu leiðir á. bókunum, hirtu lítið um námið og hættu svo þegar skólinn var úti. Það er dásamlegt að geta tekið skrúfur, hjól, fjaðrir og gimsteina og geta búið til úr þessu vasaúr, sem geta nákvæmlega fylgt gangi sólarinnar. Eins er það undra- vert, er menn geta tekið viðarfjöl og búið til úr henni fíólín, sem framleiðir fegurstu tóna. Þetta er ekki öllum gefið að geta gjört. En að taka hið dýrmæta líf og hæfi- leika sem manninum er gefið og byggja með því innræti, sem Guði er þóknanlegt, og sem endursþeglar líferni Krists, það er lífstíðarstarf, sem er öllu öðru starfi há- leitara og dýrmætara. Jesús stendur reiðu- búinn til að hjálpa oss að ná þessu tak- marki. Hjörtu vor njóta fyrst friðar og hvíldar, er vér sjáum tilgang lífsins og höfum ei- lífðina í Guðs ríki fyrir takmark leiðar vorrar og keppum að því takmarki. Ef þú ert 20 ára gamall, þá væntir þú að hafa um 40—50 ár fyrir framan þig og svo eilífðina. Það væri í meira lagi heimsku- legt að hugsa aðeins um daginn í dag og á morgun, þar sem vér höfum svo langan tíma framundan. „Ég kæri mig alls ekki um að fara til himins“, sagði hraustur ungur maður, „því ég hef heyrt að allt sem menn gjöra þar er að sitja á skýi og leika á hörpu“. Þessi drengur misskildi, eins og margir fleiri, hvað Guð hefir fyrirbúið þeim, sem hann elska. Á hinni nýju jörð munum vér byggja hús og búa í þeim, stunda garðyrkju, gróð- ursetja ávaxtatré, og enginn mun ágirnast né taka þetta frá okkur. Vér munum halda áfram menntun vorri í háskóla Guðs í alheiminum. Ef þér hafið haft áhuga fyrir vísindum í sambandi við útvarp og sjónvarp og samtal við fjarlæga staði, hugsið yður þá að geta haft samband við.fjarlæga hnetti. Eða ef þú ert hrifinn af ferðalagi, þá fær þú tækifæri til að heimsækja hnetti, sem eru svo fjarlægir að það tekur þúsundir ára fyrir ljós frá þeim að ná til jarðar- innar. Ef þú elskar söng og hljóðfæraslátt, þá getur þú iðkað þá list í þúsundir ára og náð fullkomnun í henni. Ef þú ert málari, þá getur þú fengið reglulega dýrðlinga til að sitja fyrir hjá þér, og alla fegurð alheimsins til að mála eftir. Guð mun veita sínum útvöldu tækifæri til að ná þeim þroska og framförum, sem þeir þráðu hér, en gátu aldrei náð, já, og langt fram yfir allt það, sem þeir óskuðu eftir. Þegar hinn útvaldi skari frá öllum tím- um og kynslóðum gengur um perluhliðin inn í borgina verður efst í huga þeirra hið dýrðlega endurgjald, sem þeim er veitt. Hin æðsta gleði allra verður að fá að sjá Jesúm augliti til auglitis og njóta samvistar við hann um alla eilífð. Einu sinni var falleg ung stúlka og hraustur ungur maður hrifin hvort af öðru. Hið eina, sem skyggði á var að mað- urinn var steinblindur, en ást þeirra hvors

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.