Stjarnan - 01.06.1955, Síða 8

Stjarnan - 01.06.1955, Síða 8
48 STJARNAN STJARNAN Authorized as second class mail, Post Office Depart- ment, Ottawa. Published monthly. Price $1.00 a year. Publishers: The Can. Union Conference of S. D. A., Oshawa Ontario. Ritstjórn og afgreiBslu annast: MISS S. JOHNSON, Lundar, Man. Can. neska föðurlands. En það er ein ákvörðun af vissu tagi, sem stundum er erfitt að ákveða sig með. Ýmiskonar lífsstarf liggur framundan, hvert þeirra á ég að velja að það verði mest Guði til dýrðar? Hér er ungur maður, sem er vel fær fyrir ýmiskonar störf. Getur hann vitað hvað Guð vill hann velji fyrir lífsstarf sitt? Má vera nýgift hjón hugsi um hvar þau skuli stofna heimili sitt, hvar þau geti bezt unnið fyrir Guðs ríki og leitt aðra til frelsarans. Verzlunarmaður veit þrjár aðferðir til þess á ráðvandan hátt að auka verzlun sína. Hann hefir kosið að hafa Guð meðeiganda í verzlun sinni, og nú hugsar hann um hvað honum sé þóknan- legast. Sumir undir slíkum kringumstæðum loka augunum og ljúka svo upp Biblíunni, þar sem hittir á að hún opnist, og halda að Guð á þann hátt muni skera úr málum fyrir þá. En er þetta ekki að reiða sig á hendingu heldur en á Guð? Fyrir nokkrum árum varð ég að taka ákvörðun í vissu máli. Ég bað mikið til Guðs og las orð hans mér til leiðbeiningar, svo virtist mér sem einn vegur lægi beint fyrir, en ég var ekki eins viss og ég vildi vera. Einn dag, þegar ég var að velta þessu fyrir mér bað ég Guð og sagði: „Ég sé ekki annan veg en þennan og vil gjöra mitt bezta að þjóna þér á þann hátt, en ef þú vilt ég taki annað fyrir, þá lokaðu þessari leið fyrir mér“. Þegar ég stóð upp frá bæn minni fyltist hjarta mitt innilegum frið og rósemi. Stuttu seinna náði ég í æfisögu leiðtoga nokkurs í kirkju Krists, og það gladdi mig að sjá, að hann notaði sömu bænar- aðferð, er hann stóð á þeim tímamótum að velja lífsstarf sitt. Hann sagði þetta hefði reynst sér vel ,og ég hef sjálfur sannfærst um að það er bezta aðferðin. Ég verð þó að kannast við að það tók mig marga mánuði að geta skilið hvers vegna Guð lokaði dyrunum fyrir mér. En eitt er ég sannfærður um og það er, að „allt samverkar þeim til góðs, sem elska Guð“. Róm. 8:28. Lífsferill þinn líkist ef til vill skipi, sem fer á víxl til hægri og vinstri hliðar á fljótinu. Áhorfendurnir skilja ekki hvers vegna það fer svona marga króka, en þeir frétta svo seinna að fljótið hefir svo mörg sandrif, sem siglingamenn verða að forð- ast. Ef þú leyfir Guði að leiða þig, þá má vera þú skiljir ekki strax tilgang hans með þig, en hans leið er ætíð bezt. Ef þú hefir vandamál að greiða úr, þá minstu þess að Jesús er dásamlegur leið- sögumaður. „Mundu til hans á öllum veg- um þínum, þá mun hann gjöra alla þína vegu slétta“. Orðskv. 3:6. —P. K. FREIWIRTH -----------☆------------ Australíu búar hafa lagt meira fé á banka heldur en nokkru sinni fyr, eða 2.25 biljón dollara. Það verður að meðaltali 240 dollarar fyrir hvern íbúa landsins. -----------■☆----------- Sjóliðs flugvél Bandaríkjanna var á flugi í loftinu yfir 200 klukkutíma án þess að staðnæmast eða ná í gasólín. ------------A----------- Kyrrahafið er nærri 11,000 mílur þar sem það er breiðast, milli Panama og Kínverska flóans. -----------☆------------ Indland hefir 22000 miðskóla og nærri 215000 barnaskóla, sem stjórnin annast um. -----------•☆----------- Finnland var fyrsta landið til að innleiða handavinnu í skólunum. Það var byrjað Þeir sem veita á sig sjálfir við borðið éta minna heldur en þegar þeim er þjónað fyrir borðum, segir matreiðslumaður í Tennessee. ------------☆----------- Röng 'meðferð á rafmagni orsakar 12 hundruðustu af öllum húsbruna í Ameríku. ------------☆----------- Engisprettur í biljónatali fóru yfir Can- ary eyjarnar síðastliðið haust og eyðilögðu stóra blómlega tómato akra.

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.