Stjarnan - 01.11.1956, Blaðsíða 7
STJARNAN
87
ekki framar minst verða og engum í hug
koma.“ Jes. 65:17.
I Opinberunarbókinni höfum vér lýs-
ing á nýju jörðinni eins og Jóhannes
postuli sá hana í sýn. „Ég sá nýjan himin
og nýja jörð, því sá fyrri himin og sú fyrri
jörð voru horfin, og sjórinn var ekki
framar til.“ Op. 21:1.
Eins og Adam og Eva voru verulegar
manneskjur í verulegum heimi, eins munu
hinir frelsuðu verða verulegt fólk og lifa
verulegu lífi. Þeir munu hafa heimili sín
þar og jurtagarða á landinu. Þeir munu
byggja hús og búa í þeim, planta víngarða
og eta ávöxtu þeirra.“ Jes. 65:21.
Maðurinn misti líf sitt í Eden aldingarði.
Hann misti heimili sitt og yfirráð yfir
jörðinni. En Jesús sagði: „Mannsins sonur
er kominn til að leita þess sem 'glatað var
og frelsa það.“ Lúk. 19:10.
Lærisveinarnir skildu ekki hve starf
Krists var yfirgripsmikið. Stuttu áður en
hann sté til himna spurðu þeir hann:
„Ætlar þú, herra, á þessum dögum að
endurreisa ísraelsríki? Hann svaraði þeim:
Það er ekki yðar að vita tíðir eða tíma,
sem faðirinn hefir sett í sjálfs síns vald.“
Post. 1:6.—7.
Eftir að Jesús sté til himna opninberaði
hann marga ókomna atburði fyrir læri-
sveinum sínum. Pétur postuli gefur oss
þennan spádóm: „En dagur Drottins mun
koma . . . þá munu himnarnir með miklum
gný líða undir lok, frumefnin af eldi
sundurleysast, jörðin og þau verk sem eru
á henni uppbrenna.“ „En eftir hans fyrir-
heiti væntum vér nýs himins og nýrrar
jarðar, þar sem réttlætið mun búa.“
2. Pét. 3:10.-13.
Mig langar til að búa á nýju jörðinni og
á hverjum hvíldardegi ferðast til hinnar
nýju Jerúsalem að tilbiðja Guð og veg-
sama hann. „Því eins og hinn nýi himin og
hin nýja jörð, sem ég skapa standa fyrir
mínu augliti, segir Drottinn, eins skal yðar
afsprengi og nafn standa. Og á mánuði
hverjum tunglkomudaginn og á viku
hverri hvíldardaginn, skal alt hold koma
til að falla fram fyrir mér, segir Drottinn.“
Jes. 66:22.-23.
Því oftar sem ég les síðustu kapítula
Biblíunnar, því meira þrái ég að búa á
hinni dýrðlegu nýju jörð. Það verður in-
dælí að eiga heimili úti á landi og vita að
það verður eilíflega mín eign. Þar mun
ég njóta lífsins án als ótta fyrir sjúkdómi
eða dauða. Allir, sem ég mæti verða vinir
mínir, því þeir elska Guð og elska hver
annan. Þar verðum vér aldrei þreyttir eða
leiðir á lífinu. Þar verður svo mikið að
læra, mikið að sjá og mikið að gjöra.
Framar öllu öðru fagnaðarefni verður
návist og samfélag frelsara vors. Fyrir
Guðs náð vænti ég að vera þar. Mættu
mér þar, vinur minn.
—L. C. LEE
------------☆------------
Fyrsta sporið til frelsunar
Hvernig lýsir Guð ástandi mannsins?
„Allir hafa syndagð og skortir Guðs
dýrð.“ Róm. 3:23.
„Allir eru þeir fallnir frá, allir spiltir
orðnir, enginn er sá sem gjörir gott, ekki
einn.“ Sálm. 53:3.
„Vér vorum allir sem óhreinir menn, og
alt vort réttlæti var sem saurgað klæði.“
Jes. 64:5. „Laun syndarinnar er dauði.“
Hvernig talar Guð til vor, þegar ástand
vort er þannig: Jesús lofaði að senda
heilagn anda og sagði: „Þegar hann kemur
mun hann sannfæra himinn um synd, um
réttlæti og um dóm.“ Jóh. 16:8.
Heilagur andi minnir oss á Guðs boðorð,
sem vér höfum brotið og sýnir oss að vér
erum syndarar, svo laðar hann og knýr
oss að koma til Krists til að öðlast fyrir-
gefning og náð.
Hvernig lýsir Biblían áhrifum fyrstu
hvítasunnuræðunnar?
„En er þeir heyrðu þetta skárust þeir í
hjörtum sínum.“
Hvað er það sem kallað er synd þegar
heilagur andi sannfærir oss um að vér
séum syndarar?
„Hver sem synd drýgir, drýgir líka laga-
brot, og syndin er lagabrot.“ 1. Jóh. 3:4.
Hvað segir Guðs andi til syndarans?
„Hvort sem þér víkið til hægri eða
vinstri munuð þér heyra þessi orð töluð
að baki yðar: Hér er sá vegur, sem þér
skuluð ganga, farið hann.“ Jes. 30:21.
Þegar Guð talar til vor hverju ættum
vér að svara?
„Hvað eigum vér að gjöra,“ eða „Herra,