Fréttablaðið - 05.02.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —3 0 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R Þ R I Ð J U D A G U R 5 . F E B R Ú A R 2 0 1 9
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Jón Kaldal skrifar um
laxeldi og peningaslóðina. 8
SPORT Guðni Bergsson vill að
Ísland haldi HM kvenna 2027. 10
FRÉTTIR Sveinn R. Eyjólfsson
segir brýnna að skoða aug-
lýsingasölu RÚV en beinan
stuðning við fjölmiðla. 2
LÍFIÐ Þýskir bíódagar eru hafnir í
Bíói Paradís. 22
PLÚS 2 SÉRBLÖÐ l FÓLK l BÍLAR
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Settu punktinn
yfir ferðalagið
Halldór
Fjölmörg Evrópuríki hafa lýst yfir stuðningi við Juan Guaidó, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Venesúela. Þar á meðal Ísland. Nicolá Maduro, sitjandi forseti, hefur lýst því yfir að líkur séu á
að borgarstyrjöld brjótist út í landinu vegna afskipta erlendra ríkja af stjórnarháttum í Venesúela. Guaidó sagði fullyrðingar andstæðings síns fráleitar. Sjá síðu 4. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
VIÐSKIPTI Laun stjórnar Íslands-
pósts ohf. (ÍSP) hafa hækkað um 65
prósent frá árinu 2014. Launin voru
hækkuð um rétt rúm tuttugu pró-
sent í upphafi árs í fyrra. Þetta sýna
fundargerðir stjórnar sem Frétta-
blaðið fékk aðgang að í krafti upp-
lýsingalaga.
Árið 2017 skilaði ÍSP afgangi
upp á rúmlega 216 milljónir króna.
Var það annað árið í röð sem fyrir-
tækið hagnaðist eftir að hafa tapað
samanlagt 280 milljónum árin þrjú
á undan. Ársreikningur ársins 2018
liggur ekki fyrir.
Í upphafi síðasta árs samþykkti
stjórn ÍSP að leggja fyrir aðalfund
félagsins að laun hennar yrðu
hækkuð. Laun formanns yrðu 330
þúsund krónur en laun almennra
stjórnarmanna helmingi lægri.
Skömmu áður hafði stjórnin sam-
þykkt að hækka laun forstjóra fyrir-
tækisins um 25 prósent en hann var
áður undir valdsviði kjararáðs.
Þá var einnig samþykkt í upp-
hafi síðasta árs að greiða starfsfólki
launauppbót í ljósi góðrar afkomu
fyrirtækisins árið á undan. Upp-
bótin hljóðaði upp á tuttugu þúsund
krónur til starfsfólks í fullu starfi en
greiðslur lækkuðu í samræmi við
starfshlutfall til annarra. Lágmarks-
greiðsla var þó ávallt tíu þúsund
krónur. Heildarkostnaður var áætl-
aður 14,3 milljónir króna.
Hin góða afkoma ÍSP var aftur á
móti ekki betri en svo að rétt rúmu
hálfu ári síðar þurfti fyrirtækið að
leita á náðir ríkisins til að forðast
gjaldþrot. Fyrirtækið fékk í septem-
ber í fyrra 500 milljóna króna lán frá
ríkinu til að bregðast við lausafjár-
skorti eftir að viðskiptabanki þess,
Landsbanki Íslands, hafði lokað á
frekari lánveitingar. Þá samþykkti
Alþingi fyrir jól heimild til að lána
fyrirtækinu allt að milljarð til við-
bótar. Fjárlaganefnd þingsins sam-
þykkti í upphafi árs beiðni til ríkis-
endurskoðanda um að unnin yrði
stjórnsýsluúttekt á starfsemi ÍSP.
– jóe / sjá síðu 4
Stjórn Íslandspósts lagði til 20
prósenta hækkun launa sinna
Laun fyrir stjórnarsetu í
Íslandspósti hækkuðu um 65
prósent frá 2014 til 2018.
Stjórn Íslandspósts sam-
þykkti í upphafi árs í
fyrra að greiða starfsfólki
sínu launauppbót í ljósi
góðrar afkomu sinnar.
Rúmu hálfu ári síðar fór
fyrirtækið fram á neyðar-
lán frá ríkinu.
0
5
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
3
C
-C
1
C
0
2
2
3
C
-C
0
8
4
2
2
3
C
-B
F
4
8
2
2
3
C
-B
E
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
4
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K