Fréttablaðið - 05.02.2019, Side 2
Veður
Austan 15-23 fyrir hádegi S- og
SV-lands og hvessir meira er líður
á daginn. 18-28 seinnipartinn og
hvassast við fjöll S-til. Slydda eða
rigning syðst á landinu en dálítil
slydda eða snjókoma A-lands.
SJÁ SÍÐU 14
Fullt tungl í Hörpu
Aðstandendur UTmessunnar sviptu hulunni af einstöku verki breska listamannsins Luke Jerram í Hörpu í gær. Verkið ber heitið Museum of the
Moon og er sett up á messunni í tilefni af 50 ára afmæli fyrstu tunglgöngunnar. Tunglið er uppblásið og sjö metrar í þvermál. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Akstur undir áhrifum vímuefna er
aldrei réttlætanlegur. Ökum allsgáð.
Minningarsjóður Lovísu Hrundar | lovisahrund.is
VEÐUR Gul viðvörun er í gildi vegna
veðurs en von er á hvassviðri eða
stormi víða um land í dag. Vega
gerðin boðaði lokanir vega í dag
milli Hvolsvallar og Víkur og milli
Skeiðarársands og Öræfasveitar.
Lokanir taka gildi á hádegi í dag og
er talið að ekki verði opnað á ný fyrr
en seinni hluta dagsins á morgun,
miðvikudag.
Vegagerðin hefur jafnframt beint
því til vegfarenda að kalt veður með
stífri norðanátt hafi mótað aðstæður
á vegi þannig að hálkuvörn bindist
illa við yfirborð vega. Það geti því
verið hált þrátt fyrir hálkuvarnir.
Gul viðvörun er í gildi fyrir Suður
land, Faxaflóa, Suðausturland og
miðhálendið. Von er á stormi eða
roki á Suðurlandi. – khn
Skítaveður víða um land
Það er leiðindaveður í kortunum fyrir næstu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
ALMANNAVARNIR Tvíþætt æfing
Neyðarsamstarfs raforkukerfisins
verður haldin 28. febrúar. Æfingin
mun snúast um viðbrögð við eldgosi
í Öræfajökli við lágmarksmönnun
vegna farsóttar.
„Lögð áhersla á að sveitarfélög
taki þátt að því leyti að kortleggja
sína innviði og mögulegar aðgerð
ir,“ segir um æfinguna í fundargerð
almannavarnanefndar Horna
fjarðar. – gar
Æfa viðbrögð
vegna eldgoss
Öræfajökull. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNMÁL Talsverðrar óánægju
gætir meðal þingmanna Sjálfstæðis
flokks með fjölmiðlafrumvarp
Lilju Alfreðsdóttur menntamála
ráðherra, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins. Þeim sem blaðið
ræddi við úr röðum flokksins kom
einnig saman um að sérkennilegt
hefði verið hvernig staðið var að
kynningu þess, en frumvarpið var
ekki kynnt fyrir ríkisstjórn áður en
blaðamannafundur um málið var
haldinn á fimmtudag. Eftir fund
inn lét Lilja þó hafa eftir sér í fjöl
miðlum að einhugur væri innan
ríkisstjórnarinnar um frumvarpið.
Minnisblað um áform ráðherrans í
málefnum einkarekinna fjölmiðla
var til umræðu á ríkisstjórnarfundi
daginn eftir, á föstudag.
Lilja segir sjálf að málinu hafi
verið vel tekið innan ríkisstjórnar
innar. „Það er mikill stuðningur frá
Framsókn og VG. Formaður allsherj
ar og menntamálanefndar sagðist
sáttur við frumvarpið þó að mætti
gera meira í samtali við fjölmiðla,“
segir Lilja og á þar við Pál Magnús
son, fyrrverandi útvarpsstjóra og
þingmann Sjálfstæðisflokks, sem
tjáði sig um málið í útvarpsþættin
um Harmageddon í gær. Lilja hafði
aðspurð að öðru leyti ekki heyrt af
óánægjuröddum innan Sjálfstæðis
flokksins, en nefndi að fulltrúi frá
fjármálaráðuneytinu hefði komið
að vinnu frumvarpsins.
Lilja kynnti efni frumvarpsins
í menntamálaráðuneytinu þann
31. janúar síðastliðinn. Þar segir að
einkareknir fjölmiðlar geti sótt um
styrki í formi endurgreiðslu á allt að
25 prósentum við rekstur ritstjórnar.
Fyrir styrkveitingunni eru sett ýmis
skilyrði svo sem að efni fjölmiðils
sé fjölbreytt og fyrir allan almenn
ing, það byggist á fréttum, frétta
tengdu efni og samfélags umræðu í
víðum skilningi. 50 milljóna króna
þak verður sett á hámarksfjárhæð
styrkja til fjölmiðlanna.
Málið var rætt á þingflokksfundi
Sjálfstæðisflokksins í gær. Þeim sem
Fréttablaðið ræddi við kom meðal
annars saman um að ef ekkert væri
gert í fyrirferð Ríkisútvarpsins á aug
lýsingamarkaði, sem skekkti sam
keppni á fjölmiðlamarkaði, væri
stuðningurinn sem leggja ætti til
í frumvarpi ráðherrans við einka
rekna fjölmiðla til lítils. Frumvarpið
er nú í samráðsgátt stjórnvalda og
samráð stendur yfir til 15. þessa
mánaðar.
„Frumvarpið er í samráðsgáttinni
til þess að umsagnir og athugasemd
ir berist. Að öðru leyti er þetta tíma
mótafrumvarp, sem er almennt og
nær yfir mikilvægi þess hvaða hlut
verki fjölmiðlar gegna,“ segir Lilja en
segir aðspurð, að fullsnemmt sé að
segja til um hvort frumvarpið fari í
gegnum þingið óbreytt.
kjartanh@frettabladid.is
Sjálfstæðismenn amast
við fjölmiðlafrumvarpi
Óánægjuraddir innan raða Sjálfstæðismanna með fjölmiðlafrumvarp Lilju Al-
freðsdóttur. Þingmenn segja hafa komið á óvart þegar ráðherrann sagði einhug í
ríkisstjórn um málið. Lilja segist ekki hafa heyrt af óánægju Sjálfstæðismanna.
Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra segir frumvarpið vel unnið og hefur
ekki heyrt af óánægju innan samstarfsflokks síns. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Frumvarpið er í
samráðsgáttinni til
þess að umsagnir og athuga-
semdir berist.
Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráð-
herra
5 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
5
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
C
-C
6
B
0
2
2
3
C
-C
5
7
4
2
2
3
C
-C
4
3
8
2
2
3
C
-C
2
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
0
s
_
4
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K