Fréttablaðið - 05.02.2019, Page 10
Afturelding - Selfoss 28-29
Markahæstir: Birkir Benediktsson 6, Júlíus
Þórir Stefánsson 6, Elvar Ásgeirsson 5 -
Haukur Þrastarson 9, Atli Ævar Ingólfsson 6,
Einar Sverrisson 3, Hergeir Grímsson 3.
ÍBV - ÍR 24-24
Markahæstir: Hákon Daði Styrmisson 8,
Dagur Arnarsson 5, Kári Kristján Kristjáns-
son 5 - Sturla Ásgeirsson 6, Björgvin Þór
Hólmgeirsson 6, Pétur Árni Hauksson 4 .
Efri
Valur 22
Haukar 21
Selfoss 20
FH 20
Afturelding 15
ÍBV 13
Neðri
Stjarnan 12
KA 12
ÍR 12
Akureyri 8
Fram 7
Grótta 6
Nýjast
Olís-deild karla
ÍBV - Valur 16-29
Markahæstar: Ester Óskarsdóttir 5, Arna
Sif Pálsdóttir 4, Ásta Björt Júlíusdóttir 3 -
Díana Dögg Magnúsdóttir 10, Ragnhildur
Edda Þórðardóttir 6, Lovísa Thompson 5.
Olís-deild kvenna
KR - Njarðvík 55-71
Stigahæstir: Julian Boyd 29/11 fráköst,
Kristófer Acox 7, Helgi Már Magnússon 5 -
Elvar Már Friðriksson 25, Jeb Ivey 17, Maciek
Stanislav Baginski 10.
Skallagrímur - Haukar 80-79
Stigahæstir: Domogoj Samac 21/10 fráköst,
Eyjólfur Ásberg Halldórsson 13, Matej
Bouvac 12 - Hilmar Smári Henningsson 21,
Haukur Óskarsson 16, Russell Woods 14.
Breiðablik - Keflavík 86-108
Stigahæstir: Kofi Omar Josephs 21, Snorri
Vignisson 14, Erlendur Ágúst Stefánsson
10 - Andri Þór Tryggvason 22, Hörður Axel
Vilhjálmsson 17, Mindaugas Kacinas 17
Efri
Njarðvík 28
Stjarnan 26
Tindastóll 24
Keflavík 22
KR 22
Þór Þorl. 18
Neðri
Grindavík 16
ÍR 14
Haukar 14
Valur 10
Skallagr. 8
Breiðablik 2
Domino’s-deild karla
West Ham - Liverpool 1-1
1-0 Sadio Mane (22.), 1-1 Michail Antonio
(28.).
Enska úrvalsdeildin
Elvar til Skjern
HANDBOLTI Selfyssingurinn Elvar
Örn Jónsson gengur í raðir Dan-
merkurmeistara Skjern í sumar.
Hann hefur skrifað undir tveggja ára
samning við félagið.
Elvar heldur því áfram að spila
undir stjórn Patreks Jóhannessonar
sem hættir hjá Selfossi eftir tíma-
bilið og tekur við Skjern. Hjá félag-
inu hittir Elvar fyrir félaga sinn í
íslenska landsliðinu, Björgvin Pál
Gústavsson. Tandri Már Konráðs-
son leikur einnig með Skjern en
yfirgefur félagið eftir tímabilið.
Elvar, sem er 21
árs, var í lykilhlut-
verki í íslenska
landsliðinu á HM
í Danmörku og
Þýskalandi og var
næstmarka-
hæsti leik-
maður þess
á mótinu
m e ð 2 6
mörk.
– iþs
FÓTBOLTI Á 73. ársþingi Knatt-
spyrnusambands Íslands á laugar-
daginn kemur í ljós hver verður
formaður KSÍ næstu tvö árin. Í fram-
boði eru Guðni Bergsson, formaður
KSÍ frá 2017, og Geir Þorsteinsson
sem var formaður KSÍ 2007-17.
„Fyrst og fremst með samtali við
aðildarfélögin. Ég hef fundað með
þeim og kynnt þau mál sem við
höfum unnið að undir minni for-
mennsku. Á síðasta ári fórum við í
skipulagðar heimsóknir til aðildar-
félaganna sem hafði ekki verið gert
í áraraðir. Eftir að þessi staða kom
upp varð maður að bregðast við því
og ræða aftur við félögin um okkar
verkefni og hvernig við sjáum fram-
tíð KSÍ fyrir okkur,“ segir Guðni í
samtali við Fréttablaðið, aðspurður
hvernig kosningabaráttan fari fram.
Upplifir jákvæðni og kraft
Það eru aðildarfélög KSÍ sem kjósa
formann sambandsins. En hvað er
það sem brennur helst á þeim?
„Það eru vissir þættir sem félögin
eru að velta fyrir sér, eins og með
reksturinn. Menn hafa ákveðnar
áhyggjur af því að það sé erfiðara að
fá styrktaraðila en áður. En ég upp-
lifi líka jákvæðni og kraft. Það er
mikilvægt að horfa fram á veginn og
halda áfram að efla okkur á fótbolta-
sviðinu. Það þarf m.a. að byggja upp
aðstöðuna og í því sambandi er
nýlegt frumvarp um endurgreiðslu
á byggingarkostnaði við íþrótta-
mannvirki mikilvægt,“ segir Guðni.
Þegar hann lítur yfir árin tvö á
formannsstóli kveðst hann heilt yfir
ánægður með það sem hann hefur
komið til leiðar.
„Ég held að við höfum gert margt
gott og jákvætt undir minni for-
mennsku. Við höfum náð árangri
og farið á tvö stórmót. Við fórum á
HM sem gaf okkur góðar tekjur sem
félögin nutu góðs af. Ég held að við
höfum styrkt rekstur skrifstofunnar
og eflt markaðsstarfið. Sjálfsafla-
fé KSÍ hefur aukist, aðallega með
því að breikka tekjugrunninn. Við
höfum haldið tónleika og erum með
vörumerkjasamninga á erlendum
vettvangi,“ segir Guðni.
Hillir undir lausn með völlinn
Aðstaðan á Laugardalsvellinum,
þjóðarleikvangi Íslendinga, er bág-
borin enda í grunninn um 60 ára
gamalt mannvirki. Guðni hefði
kosið að vinnan við nýjan þjóðar-
leikvang hefði gengið hraðar fyrir
sig en segir að það sjái til lands í
þeim efnum.
„Ég átta mig á því að þetta er stór
ákvörðun og virði það. Við erum á
lokastigi í þessu ákvörðunarferli.
Við verðum að vera með samkeppn-
ishæfan völl og ég heyri ekki annað
en að það sé skilningur á því. Við
verðum að horfa fram á veginn, til
50 ára. Með nýjum velli opnast enn
frekari möguleikar á tónleikahaldi.
Það skapar okkur auknar tekjur sem
eru mjög mikilvægar,“ segir Guðni.
„Þetta er líka mikið hagsmuna-
mál, fyrir félögin, t.d. hvað varðar
bikarúrslitaleiki, úrslitakeppni í
Íslandsmóti og líka að geta spilað
vetrarleiki.“
En hversu miklu máli skiptir að
komast á EM 2020 karla? „Auðvitað
koma tekjurnar sér vel. Við höfum
fengið á bilinu 1.200-1.300 milljónir
í hagnað vegna stórmótanna sem
við höfum farið á og meirihlutinn
hefur verið greiddur út til félaganna.
Það er almennt ekki gert í Evrópu.
Hvatningin er líka mikil, sérstaklega
fyrir yngstu iðkendurna, svo ekki sé
talað um landkynninguna.“
Guðni segir að knattspyrnusam-
böndin á Norðurlöndum hafi rætt
um möguleikann á að halda HM
kvenna 2027 í sameiningu. „Norð-
urlandasamstarfið er mjög sterkt
og virkt. Upphaflega var einblínt
á Skandinavíu og Finnland en ég
sagði að við myndum að sjálfsögðu
taka þátt í að halda mótið því ég
hef það að markmiði að búið verði
að byggja nýjan völl þá. Við gætum
verið með leiki hérna, annaðhvort í
riðla- eða útsláttarkeppni.“
Ekki er enn búið að ráða yfir-
mann knattspyrnumála en starfið
var auglýst á síðasta ári. „Í mínum
huga skipta einhverjir mánuðir
til eða frá ekki máli,“ segir Guðni.
„Aðalmálið er að réttur einstakling-
ur komi inn í starfið.“
Ekki trúverðugar hugmyndir
Mótframbjóðandi Guðna, Geir
Þorsteinsson, hefur talað um að
styrkja þurfi aðildarfélögin. Hann
vill ráðast í breytingar á skipulagi
KSÍ og stofna deildasamtök innan
sambandsins.
„Ég hef ekki séð útfærsluna á
þessu og finnst þetta ekkert sér-
staklega trúverðugt. Við erum með
deildasamtök og höfum verið í
auknu samstarfi við Íslenskan topp-
fótbolta,“ segir Guðni um hugmynd-
ir Geirs. „Ég tel að við að höfum
unnið eftir því plani að styrkja þráð
á milli KSÍ og deildanna og deilda-
samtakanna. Við höfum unnið náið
saman í móta- og markaðsmálum.“
Guðni segir að samstarfið við ÍTF,
sem eru hagsmunasamtök félaga í
efstu deildum karla og kvenna á
Íslandi, hafi batnað með tímanum.
„Það hefur gengið vel. Þetta er stór
hreyfing og það eru skoðanaskipti.
Ég viðurkenni að við höfum tekist
á en samstarfið hefur gengið vel
að undanförnu og við höfum náð
saman um ýmis mál. Þetta samstarf
hefur mótast og styrkst. Ef það er
talað um togstreitu var hún mun
meiri áður en ég kom.“
Guðni segist hafa orðið var við þá
umræðu að landsliðin hafi fengið
aukna athygli á kostnað félaganna
og Íslandsmótsins. „Ég hef heyrt
þetta sjónarmið þótt það hafi ekki
margir rætt það við mig. Það má
vera að einhverjum finnist það.
Þegar við förum á stórmót er mikil
athygli á þeim en við höfum lært
af því og að vega á móti því. Við
erum með innanlandssvið sem ein-
blínir alltaf á þjónustu við félögin,
sama hvað á bjátar,“ segir Guðni að
lokum. ingvithor@frettabladid.is
Verðum að horfa fram á veginn
Guðni Bergsson kveðst ánægður með verk sín sem formaður KSÍ. Hann segir að það sjái til lands í málefn-
um Laugardalsvallar og vill taka þátt í að halda HM kvenna 2027. Guðni segir samstarfið við ÍTF ganga vel.
Guðni Bergsson var kosinn formaður KSÍ árið 2017. Hann þarf að endurnýja umboð sitt á ársþingi sambandsins um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Við erum á lokastigi
í þessu ákvörðunar-
ferli. Við verðum að vera
með samkeppnishæfan völl.
Guðni Bergsson, formaður KSÍ
5 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
5
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
C
-D
5
8
0
2
2
3
C
-D
4
4
4
2
2
3
C
-D
3
0
8
2
2
3
C
-D
1
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
4
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K