Fréttablaðið - 05.02.2019, Side 14
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í
formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.
is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson,
jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Mikil staðfesta og þrautseigja hefur skilað hinum sextán ára gamla Emin Kadri
Eminssyni nafnbótinni Hnefaleika-
maður ársins 2018. Hann hóf ungur
að stunda hnefaleika en segja má
að hann hafi virkilega byrjað að
helga sig íþróttinni fyrir alvöru fyrir
um fjórum árum, þá tólf ára gamall.
Í maí á síðasta ári varð hann t.d.
fyrsti Íslendingurinn til að sigra á
alþjóðamóti í hnefaleikum en þá
sigraði hann í sínum aldursflokki á
Boxam, sterku alþjóðlegu móti sem
haldið er á Spáni. Það er því óhætt
að segja að framtíðin sé björt hjá
þessum unga og efnilega íþrótta-
manni.
„Ég held að ég hafi verið 8-9 ára
gamall þegar ég byrjaði í hnefa-
leikum. Eins og flestir jafnaldrar
mínir byrjaði ég í hópíþróttum eins
og fótbolta og handbolta. Ég fann
mig samt aldrei þar heldur kunni ég
strax betur við mig í einstaklings-
íþróttum. Þar þurfti ég að stóla
á sjálfan mig. Ef ég vann var það
mér að þakka og ef ég tapaði gat
ég engum kennt um nema sjálfum
mér.“
Hvatning frá pabba
Hnefaleikarnir voru þó ekki aug-
ljóst skref fyrir hinn unga Emin.
Hann segir föður sinn eiga stærstan
þátt í að ýta honum í þá átt. „Ég
man að ég var ekki spenntur fyrst
en pabbi hvatti mig áfram og vildi
endilega að ég myndi prófa. Eftir
nokkra tíma var áhuginn ekki
kominn en hann píndi mig áfram.
Á þessum tímapunkti vildi ég frekar
hanga heima í tölvuleikjum eins og
margir félaga minna og vera latur.
En svo kom áhuginn smátt og smátt
og eftir að hafa æft um tíma fannst
mér íþróttin mjög skemmtileg. Um
11-12 ára aldurinn hóf ég að keppa
og þá áttaði ég mig fyrst á því að ég
var bara nokkuð góður. Frá þessum
tíma hef ég tekið íþróttina föstum
tökum enda hefur þetta verið mikil
vinna en um leið auðvitað mjög
gaman.“
Mikil hvatning
Það skipti hann því miklu máli að
hljóta útnefninguna Hnefaleika-
maður ársins á síðasta ári. „Það var
frábært að fá þau verðlaun og um
leið eru þau enn meiri hvatning
fyrir mig til að gera betur á næstu
árum. Ég hef lagt mikla vinnu í
hnefaleikana undanfarin ár og
þroskast mikið, þrátt fyrir ungan
aldur.“
Emin keppir í ólympískum
hnefaleikum þar sem keppt er í
þremur lotum meðan atvinnu-
menn keppa í tólf lotum. Keppnis-
Emin Kadri keppti gegn Ethan Tisbury úr Romford BC á hnefaleikamóti Hnefaleikafélags Kópavogs undir lok síðasta árs. MYND/RÓBERT ELÍS ERLINGSSON
Emin (t.h.) ásamt félaga sínum Krist-
jáni Kristjánssyni. MYND/HELGA BRÍET
Emin Kadri
Eminsson ætlar
sér langt í íþrótt-
inni. MYND/SIG-
TRYGGUR ARI
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Framhald af forsíðu ➛
Áhugasamir lesendur geta fylgt Emin eftir á Instagram (emn_kdri).
n Uppáhaldstónlistarmaður:
Ég á engan einn sérstakan en þessa dagana hlusta ég nær daglega
á Travis Scott.
n Uppáhaldsmatur:
Nautalund og nautasteik með góðu meðlæti.
n Hvað færðu þér helst í morgunmat?
Hafragraut.
n Ertu sælgætisgrís?
Já
n Uppháhaldsíþróttamaður:
Floyd Mayweather.
n Uppáhaldsfótboltalið:
Real Madrid.
n Uppáhaldssjónvarpsefnið:
Ég horfi mest á Friends og Rick and Morty.
n Hvert er draumastarfið?
Ég vil ekki starfa við neitt annað en box í framtíðinni.
árið í fyrra var viðburðaríkt en fyrir
utan það að sigra á fyrrnefndu móti
á Spáni tók hann m.a. þátt í Olaine
Cup í Lettlandi og stuttu síðar í
Riga Open, sem einnig var haldið í
Lettlandi.
„Boxam á Spáni var gríðarlega
sterkt alþjóðlegt mót þar sem tólf
þjóðir tóku þátt. Ég vann Spánverja
í úrslitunum og var það afar sætur
sigur. Í september tók ég svo þátt í
Olaine Cup í Lettlandi sem er einn-
ig alþjóðlegt mót. Þar keppti ég við
Íra í undanúrslitum og sigraði ungl-
ingameistara Lettlands í úrslitum.
Í nóvember sigraði ég Englending
frá Romford BC á hnefaleikamóti
sem Hnefaleikafélag Kópavogs hélt
og tveimur vikum síðar tók ég þátt
í mjög sterku alþjóðlegu móti sem
heitir Riga Open og var haldið í
Lettlandi. Ég sigraði keppanda frá
Lettlandi í fyrsta bardaga en tapaði
á móti keppanda frá Litháen í
undan úrslitum.“
Auk þess sem að framan er talið
varð Emin Íslandsmeistari árið
2017 í sínum aldursflokki og vann
til gullverðlauna á móti í Svíþjóð
sama ár. Átök fram undan
Það er sannarlega engin slökun
fyrirhuguð á þessu ári. „Ég er nýlega
kominn heim úr vikulöngum
æfingabúðum á Írlandi og fer
þangað aftur með liðinu mínu til að
keppa í mars. Í lok sama mánaðar
tek ég þátt á Norðurlandameistara-
mótinu í fyrsta sinn og langar mikið
að vinna þar en enginn Íslend-
ingur hefur sigrað á því móti. Þessa
dagana er ég einmitt að leita að
styrktaraðilum enda kostar sitt að
taka þátt í þessu öllu saman.“
Gítarinn róar
Allir dagar eru vel skipulagðir hjá
Emin en auk þess að æfa hnefaleika
stundar hann nám við Fjölbrauta-
skólann í Breiðholti. „Svo hef ég líka
verið í gítarnámi undanfarin sjö ár
en þar spila ég á klassískan gítar.
Þetta er ágætis blanda, hnefaleikar
með öllum sínum látum og svo
róandi gítarleikurinn sem hvílir
líkama og sál. Annars er ég frekar
rólegur og „tsjillaður“ gaur þótt ég
stundi hnefaleika, bara dæmigerður
ungur maður á mínum aldri.“
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R
0
5
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
3
C
-E
4
5
0
2
2
3
C
-E
3
1
4
2
2
3
C
-E
1
D
8
2
2
3
C
-E
0
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
4
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K