Fréttablaðið - 05.02.2019, Page 14

Fréttablaðið - 05.02.2019, Page 14
Fólk er kynningarblað sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Sólveig Gísladóttir, solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid. is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir, brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson, starri@ frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Mikil staðfesta og þrautseigja hefur skilað hinum sextán ára gamla Emin Kadri Eminssyni nafnbótinni Hnefaleika- maður ársins 2018. Hann hóf ungur að stunda hnefaleika en segja má að hann hafi virkilega byrjað að helga sig íþróttinni fyrir alvöru fyrir um fjórum árum, þá tólf ára gamall. Í maí á síðasta ári varð hann t.d. fyrsti Íslendingurinn til að sigra á alþjóðamóti í hnefaleikum en þá sigraði hann í sínum aldursflokki á Boxam, sterku alþjóðlegu móti sem haldið er á Spáni. Það er því óhætt að segja að framtíðin sé björt hjá þessum unga og efnilega íþrótta- manni. „Ég held að ég hafi verið 8-9 ára gamall þegar ég byrjaði í hnefa- leikum. Eins og flestir jafnaldrar mínir byrjaði ég í hópíþróttum eins og fótbolta og handbolta. Ég fann mig samt aldrei þar heldur kunni ég strax betur við mig í einstaklings- íþróttum. Þar þurfti ég að stóla á sjálfan mig. Ef ég vann var það mér að þakka og ef ég tapaði gat ég engum kennt um nema sjálfum mér.“ Hvatning frá pabba Hnefaleikarnir voru þó ekki aug- ljóst skref fyrir hinn unga Emin. Hann segir föður sinn eiga stærstan þátt í að ýta honum í þá átt. „Ég man að ég var ekki spenntur fyrst en pabbi hvatti mig áfram og vildi endilega að ég myndi prófa. Eftir nokkra tíma var áhuginn ekki kominn en hann píndi mig áfram. Á þessum tímapunkti vildi ég frekar hanga heima í tölvuleikjum eins og margir félaga minna og vera latur. En svo kom áhuginn smátt og smátt og eftir að hafa æft um tíma fannst mér íþróttin mjög skemmtileg. Um 11-12 ára aldurinn hóf ég að keppa og þá áttaði ég mig fyrst á því að ég var bara nokkuð góður. Frá þessum tíma hef ég tekið íþróttina föstum tökum enda hefur þetta verið mikil vinna en um leið auðvitað mjög gaman.“ Mikil hvatning Það skipti hann því miklu máli að hljóta útnefninguna Hnefaleika- maður ársins á síðasta ári. „Það var frábært að fá þau verðlaun og um leið eru þau enn meiri hvatning fyrir mig til að gera betur á næstu árum. Ég hef lagt mikla vinnu í hnefaleikana undanfarin ár og þroskast mikið, þrátt fyrir ungan aldur.“ Emin keppir í ólympískum hnefaleikum þar sem keppt er í þremur lotum meðan atvinnu- menn keppa í tólf lotum. Keppnis- Emin Kadri keppti gegn Ethan Tisbury úr Romford BC á hnefaleikamóti Hnefaleikafélags Kópavogs undir lok síðasta árs. MYND/RÓBERT ELÍS ERLINGSSON Emin (t.h.) ásamt félaga sínum Krist- jáni Kristjánssyni. MYND/HELGA BRÍET Emin Kadri Eminsson ætlar sér langt í íþrótt- inni. MYND/SIG- TRYGGUR ARI Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ Áhugasamir lesendur geta fylgt Emin eftir á Instagram (emn_kdri). n Uppáhaldstónlistarmaður: Ég á engan einn sérstakan en þessa dagana hlusta ég nær daglega á Travis Scott. n Uppáhaldsmatur: Nautalund og nautasteik með góðu meðlæti. n Hvað færðu þér helst í morgunmat? Hafragraut. n Ertu sælgætisgrís? Já n Uppháhaldsíþróttamaður: Floyd Mayweather. n Uppáhaldsfótboltalið: Real Madrid. n Uppáhaldssjónvarpsefnið: Ég horfi mest á Friends og Rick and Morty. n Hvert er draumastarfið? Ég vil ekki starfa við neitt annað en box í framtíðinni. árið í fyrra var viðburðaríkt en fyrir utan það að sigra á fyrrnefndu móti á Spáni tók hann m.a. þátt í Olaine Cup í Lettlandi og stuttu síðar í Riga Open, sem einnig var haldið í Lettlandi. „Boxam á Spáni var gríðarlega sterkt alþjóðlegt mót þar sem tólf þjóðir tóku þátt. Ég vann Spánverja í úrslitunum og var það afar sætur sigur. Í september tók ég svo þátt í Olaine Cup í Lettlandi sem er einn- ig alþjóðlegt mót. Þar keppti ég við Íra í undanúrslitum og sigraði ungl- ingameistara Lettlands í úrslitum. Í nóvember sigraði ég Englending frá Romford BC á hnefaleikamóti sem Hnefaleikafélag Kópavogs hélt og tveimur vikum síðar tók ég þátt í mjög sterku alþjóðlegu móti sem heitir Riga Open og var haldið í Lettlandi. Ég sigraði keppanda frá Lettlandi í fyrsta bardaga en tapaði á móti keppanda frá Litháen í undan úrslitum.“ Auk þess sem að framan er talið varð Emin Íslandsmeistari árið 2017 í sínum aldursflokki og vann til gullverðlauna á móti í Svíþjóð sama ár. Átök fram undan Það er sannarlega engin slökun fyrirhuguð á þessu ári. „Ég er nýlega kominn heim úr vikulöngum æfingabúðum á Írlandi og fer þangað aftur með liðinu mínu til að keppa í mars. Í lok sama mánaðar tek ég þátt á Norðurlandameistara- mótinu í fyrsta sinn og langar mikið að vinna þar en enginn Íslend- ingur hefur sigrað á því móti. Þessa dagana er ég einmitt að leita að styrktaraðilum enda kostar sitt að taka þátt í þessu öllu saman.“ Gítarinn róar Allir dagar eru vel skipulagðir hjá Emin en auk þess að æfa hnefaleika stundar hann nám við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti. „Svo hef ég líka verið í gítarnámi undanfarin sjö ár en þar spila ég á klassískan gítar. Þetta er ágætis blanda, hnefaleikar með öllum sínum látum og svo róandi gítarleikurinn sem hvílir líkama og sál. Annars er ég frekar rólegur og „tsjillaður“ gaur þótt ég stundi hnefaleika, bara dæmigerður ungur maður á mínum aldri.“ Evonia er hlaðin bæti- efnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Myndirnar hér til hliðar sýna hversu góðum árangri er hægt að ná með Evonia. Evonia www.birkiaska.isFyrir Eftir Evonia eykur hárvöxt með því að veita hárrótinni næringu og styrk. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R 0 5 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 0 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 3 C -E 4 5 0 2 2 3 C -E 3 1 4 2 2 3 C -E 1 D 8 2 2 3 C -E 0 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 4 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.